Lýsa yfir faraldri ebólu í Úganda

Heil­brigð­is­yf­ir­völd í Úganda lýstu í gær yfir far­aldri ebólu í land­inu í kjöl­far and­láts ungs karl­manns sem reynd­ist vera smit­aður af veirunni sem veldur sjúk­dómnum. Sex óút­skýrð dauðs­föll fólks af sama svæði eru einnig til rann­sóknar.

Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu í austurhluta Úganda fyrr á þessu ári. Heilbrigðiskerfið er mjög veikt víða í landinu.
Hjúkr­un­ar­fræð­ingur á heilsu­gæslu í aust­ur­hluta Úganda fyrr á þessu ári. Heil­brigð­is­kerfið er mjög veikt víða í land­inu. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Tilfelli ebólu hefur greinst í Austur-Afr­íku­rík­inu Úganda. 24 ára karl­maður úr þorpi Mubende-hér­aði, sem er í miðju lands­ins, lést og við rann­sókn kom í ljós að hann var smit­aður af ebólu­veirunni. Einnig eru sex óút­skýrð dauðs­föll fólks af sama svæði til rann­sóknar en grunur leikur á, að því er fram kemur í til­kynn­ingu Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO, að fólkið hafi verið með ebólu. Til við­bótar eru átta mann­eskjur, sem ótt­ast er að séu með veiruna, inniliggj­andi á sjúkra­húsi.

[adspot]

Um er að ræða svo­kallað Súdan-afbrigði ebólu­veirunnar og er þetta í fyrsta sinn í meira en ára­tug sem það grein­ist í Úganda að sögn Mats­hi­diso Moeti, fram­kvæmda­stjóra WHO í Afríku. Hún bendir á að þar sem Úganda hafi áður þurft að glíma við ebólu sé til þekk­ing til að fást við sjúk­dóm­inn og til að tak­marka útbreiðslu hans. Það hafi m.a. orðið til þess að um leið og grunur vakn­aði hafi verið gripið til aðgerða.

[links]Tilfelli af svo­nefndu Zaire-afbrigði veirunnar greindust í Úganda árið 2019. Það hafði borist til lands­ins með fólki frá nágranna­rík­inu Austur-Kongó. Í því landi var far­aldur ebólu á þeim tíma.

WHO veitir yfir­völdum í Úganda aðstoð og stuðn­ing vegna til­fell­is­ins sem nú hefur verið stað­fest og mögu­legs far­ald­urs. Meðal ann­ars hefur ýmiss bún­aður verið sendur til lands­ins.

Heil­brigð­is­kerfi Úganda er veik­byggt. Í land­inu búa á fimmta tug millj­óna manna og aðgengi að lækn­is­þjón­ustu er mjög tak­markað, sér­stak­lega í sveitum.

Bóluefni hefur verið þróað og reynt á ebólu. En aðeins gegn veiru­af­brigð­inu sem kennt er við Zaire. Það hefur enn ekki verið prófað gegn því afbrigði sem nú hefur upp­götvast í Úganda.

Ebóla er alvar­legur og oft lífs­hættu­legur sjúk­dómur sem leggst á menn og aðra prímata. Sex afbrigði af veirunni hafa verið greind og þrjú þeirra, meðal ann­ars þau sem kennd eru við Zaire og Súdan hafa leitt til far­aldra. WHO bendir á að erfitt sé að meta dán­ar­tíðni af völdum ebólu. Hún sé á bil­inu 41-100 pró­sent. Það hafi hins vegar sýnt sig að snemmtækt inn­grip í veik­indin geti skipt sköpum og dregið veru­lega úr hættu á dauða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ebóla

ErlentEbóla

Fyrsta dauðs­fallið af völdum ebólu í sex vikur skráð í Líberíu

Stjórn­völd í Líberíu til­kynntu í dag að ebólu­veiran hafi dregið mann til dauða. Enginn hefur lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins í meira en sex vikur í Líberíu. Frá þeessu greinir AFP-frétta­veitan. „Nýtt ebólu­til­vik hefur verið skráð í Margiby-sýslu. Mann­eskja er látin sem hafði verið greind með veiruna áður en hún lést,“ sagði Tolbert Nyensuah, stað­geng­ill heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins. Þegar hafa allir þeir...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár