Hin mjög svo banvæna Marburg-veira

Að minnsta kosti tveir hafa lát­ist í Gana vegna sjúk­dóms sem Marburg-veiran veldur. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur þungar áhyggjur af stöð­unni enda voru sjúk­ling­arnir tveir ótengdir. Dán­ar­tíðni er talin vera allt upp í 88 pró­sent.

Veiran greindist í tveimur sjúklingum í Gana sem báðir létust. Beðið er niðurstöðu úr rannsóknum á blóðsýnum fólks sem þá umgekkst.
Veiran greind­ist í tveimur sjúk­lingum í Gana sem báðir lét­ust. Beðið er nið­ur­stöðu úr rann­sóknum á blóð­sýnum fólks sem þá umgekkst. Mynd: EPA

Tvö and­lát af völdum sýk­ingar af Marburg-veirunni hafa verið stað­fest í Gana. Um 100 manns eru í ein­angrun eftir smitrakn­ingu. Sjúk­ling­arnir tveir sem lét­ust, 26 ára og 51 árs karl­menn, voru ótengdir sem vakið hefur ugg í brjóstum heil­brigð­is­starfs­manna og Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO). Það er skilj­an­legt því veiran hefur valdið mjög mann­skæðum far­öldrum í nokkrum Afr­íku­ríkjum. Og svo ban­væn er hún að dán­ar­tíðnin er jafn­vel um 88 pró­sent.

Marburg-veiran til­heyrir ætt svo­nefndra þráð­veira (Filoviri­dae) og er skyld ebólu-veirunni. Með því að greina mun á genum ebólu- og Marburg-veir­unum hafa vís­inda­menn sýnt fram á að þráð­veir­urnar tvær hafi þró­ast frá sam­eig­in­legum for­föður fyrir um 700-850 árum síðar.

[adspot]

Þráð­veirur eru til­tölu­lega ungur hópur veira sem leggj­ast á menn. Veir­urnar eiga það sam­eig­in­legt að lama ónæm­is­kerfi hýs­ils­ins. Þær valda mjög alvar­legum sjúk­dóms­ein­kennum og dán­ar­tíðni sýktra er allt að 90 pró­sent eins og fyrr segir. Sjúk­dóms­ein­kenni koma skyndi­lega og þau helstu eru hár hiti, mik­ill höf­uð­verkur, slen og bein­verkir, að því er fram kemur í upp­lýs­ingum WHO. Eftir að þessi ein­kenni koma fram er algengt að sjúk­lingar fái útbrot á brjóst­kassa, baki og kvið. Sjúk­lingar geta svo fengið miklar blæð­ingar úr vitum og kyn­færum.

Faraldrar í nokkrum ríkjum

Marburg-veiru­far­aldur hefur ekki orðið í Gana til þessa og enn er von­ast til þess að til­vikin séu ein­angruð. Slíkir far­aldrar hafa hins vegar átt sér stað í Angóla, Austur-Kongó, Kenía, Suður-Afríku og Úganda. Minni hóp­sýk­ingar hafa svo orðið í Evrópu og í Banda­ríkj­unum.

Borin voru kennsl á Marburg-veiruna í fyrsta skipti í Þýska­landi árið 1967 og sama ár í Júgóslavíu sem þá var og hét. Veiran greind­ist í litlum apa sem hafði verið fluttur inn frá Afr­íku­landi. Líkt og með margar aðrar veirur eru leð­ur­blökur þeirra helstu hýslar í nátt­úr­unni. Fyrstu til­fellin í mönnum voru enda greind í námu­verka­mönnum. Eftir að mann­eskja smit­ast getur hún borið smit í aðra, með snerti- eða úða­smiti. Veiran hefur einnig smit­ast manna á milli með lík­ams­vessum, ekki síst blóði.

Í þeim Marburg-far­öldrum sem áður hafa geisað hefur dán­ar­tíðnin verið á bil­inu 24-90 pró­sent eftir því hvaða afbrigði veirunnar er á kreiki.

Engin lækn­ing er til við veiru­sýk­ing­unni. Hins vegar er hægt að veita með­ferð við ákveðnum ein­kennum sem eykur líkur á bata. Sjúkra­hús í Afríku eru mörg hver engan veg­inn í stakk búin til að sinna gjör­gæslu­sjúk­lingum og sjúk­lingum í ein­angrun. Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin hefur því sent teymi til Gana til aðstoðar. „Þetta er gott því ef ekki er gripið strax inn í getur orðið óvið­ráð­an­legt að halda Marburg-veirunni í skefjum,“ segir Mats­hi­diso Moeti, yfir­maður WHO í Afríku.

Aðstoðin felst m.a. í því að rann­saka, ásamt heil­brigð­is­yf­ir­völdum í Gana, hvaðan smitin bár­ust inn í landið. Þá útvegar WHO einnig nauð­syn­legan hlífð­ar­búnað fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk sem og sér­fræð­inga ýmsa.

Veiran er talin bráðsmit­andi og til að koma í veg fyrir smit þarf því að grípa til mik­illa aðgerða, bæði á sjúkra­húsum sem per­sónu­bund­inna sótt­varna ein­stak­linga. Við með­höndlun á dýra­af­urðum þarf gæta sér­stakrar var­úðar og í aðgerðum WHO felst m.a. fræðsla til almenn­ings hvað það varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár