Hyggjast endurskoða siðareglur fyrir alþingismenn

Forseti Alþingis og for­maður stjórn­skip­unar-og eft­ir­lits­nefndar hafa hafið und­ir­bún­ing á end­ur­skoðun á fyr­ir­komu­lagi siða­reglna alþing­is­manna.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis Mynd: Hringbraut

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, og Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þings­ins, und­ir­búa nú end­ur­skoðun á umgjörð og fram­kvæmd siða­reglna þing­mannna. Frá þessu er greint í frétt Frétta­blaðs­ins í morgun.

Í frétt­inni er haft eftir Stein­grími að vinnan sé á frum­stigi, en hann hefur, ásamt Helgu, verið að safna hug­myndum og gögnum vegna máls­ins. Einblínt verður á fram­kvæmd regln­anna og far­veg kvart­ana, en ekki er búist við að regl­urnar sjálfar verði teknar til end­ur­skoð­unar.

„Alvarlegt brot á grundvallarreglum réttarríkja“

Nýlegar fram­kvæmdir og nið­ur­stöður siða­nefnd­ar­innar hafa sætt gagn­rýni frá þing­mönnum ólíkra flokka, en líkt og Kjarninn fjall­aði um fyrr í vik­unni töldu þing­menn Mið­flokks­ins Alþingi máls­með­ferð siða­nefndar fela í sér alvar­legt brot á lögum og grund­vall­ar­reglum rétt­ar­ríkja. „Í stað þess að verja þolendur alvar­legs glæps hafa full­trúar lög­gjafans leitað allra leiða til að refsa þolend­unum,“ skrif­uðu þing­menn­irnir í andsvörum við áliti nefnd­ar­innar.

„Fáránleikinn og samtryggingin koma til bjargar“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, gagn­rýndi einnig nýlega máls­með­ferð kvört­unar sinnar á þær nið­ur­stöður nefnd­ar­innar að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hafi brotið gegn siða­reglum með ummælum sínum um Ásmund Frið­riks­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar tók for­sætis­nefnd Alþingis nið­ur­stöður siða­nefndar til skoð­unar að ósk Björns en sam­þykkti þær svo í síð­ustu viku. Í gagn­rýni Björns á málið segir hann „fárán­leik­ann og sam­trygg­ing­una koma til bjargar fyrir elít­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár