Framboð hótelherbergja aukist um 126 prósent á tíu árum

Frá júní 2014 hefur fram­boð á hót­el­her­bergjum farið úr 6.100 her­bergjum upp í 10.400 hér á landi. Íslands­banki áætlar að um 1300 hót­el­her­bergi muni bæt­ist við á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu þremur árum.

Á síð­ustu fimm árum hefur fram­boð hót­el­her­bergja á land­inu farið úr 6100 her­bergjum í 10.400, sem er aukn­ing um 70,3 pró­sent. Árið 2009 voru 4600 hót­el­her­bergi á Íslandi og hefur þeim því fjölgað um 125,5 pró­sent á síð­ustu tíu árum. Þá áætlar grein­ing­ar­deild Íslands­banka að hót­el­her­bergjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu muni fjölga um 1333 her­bergi á næstu þremur árum.

Minni nýting milli ára

[links]Með fækkun ferða­manna hefur greiddum gistin­óttum einnig fækkað á und­an­förnum mán­uðum. Í nýj­ustu gistin­átta­tölum Hagstofu Íslands kemur fram að gistinætur ferða­manna á öllum gisti­stöðum voru um 1.124.000 í júní síð­ast­liðnum en þær voru um 1.148.000 í sama mán­uði í fyrra. Þá fækk­aði gistnóttum á hót­elum um 5 pró­sent á meðan þeim fjölg­aði um 14 pró­sent á gisti­heim­ilum í júní. Á stöðum sem miðla gist­ingu gegnum Airbnb og svip­aðar síður fækk­aði gistin­óttum um 10,5 pró­sent. [adspot]

Í tölum Hag­stof­unnar kemur jafn­framt fram að her­bergj­a­nýt­ing á hót­elum í júní 2019 var 72,1 pró­sent sem er lækkun um 5,4 pró­sentu­stig frá júní í fyrra þegar hún var um 77,5 pró­sent. Á sama tíma hefur fram­boð gisti­rýmis auk­ist um 3,1 pró­sent, mælt í fjölda her­bergja. Þá var nýt­ingin í júní best á Suð­ur­nesjum, eða 79,8 pró­sent.

Síðan á seinni hluta árs­ins 2017 hefur nýt­ing hót­­el­her­bergja lækkað í flest­öllum lands­hlut­u­m. Nýt­ing hót­­ela í Reykja­vík dróst saman um tæp sex pró­­sent­u­­stig á árinu 2018 miðað við fyrra ár eða úr 84,4 pró­­sentum á árinu 2017 í 78,6 pró­­sent á árinu 2018. 

Hótelgisting á Íslandi ein sú dýrasta í heimi

Á tíma­bil­inu 2011 til 2017 hækk­aði verð á hót­elum í Reykja­vík um 60 pró­sent sam­hliða upp­gangi í ferða­þjón­ustu. Í skýrslu Íslands­banka um stöðu íslenskrar ferða­þjón­ustu frá því í maí kemur fram að hót­elgist­ing í Reykja­vík sé rúm­lega þriðj­ungi dýr­ari, 36 pró­sent, en að með­al­tali hjá hót­elum innan Evr­ópu. Þá er gist­ingin á bil­inu 4 til 11 pró­sent dýr­ari en í stór­borgum á borð við New York, Barcelona og London.

Í skýrsl­unni segir að hátt verð­lag hér á landi rýri sam­keppn­is­hæfni lands­ins á alþjóða­vísu og ljóst sé að lítið sem ekk­ert svig­rúm sé fyrir frek­ari verð­hækk­anir hjá hót­elum í Reykja­vík, nú þegar nýt­ing fer lækk­andi og ferða­mönnum fækk­andi.

17 prósent fjölgun á næsta ári

Í sömu skýrslu kemur fram að það stefni í tals­verða fjölgun hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu miss­erum þrátt fyrir að útlit sé fyrir áfram­hald­andi fækkun ferða­mönnum. 

Íslands­banki áætlar að hót­el­her­bergj­u­m ­fjölgi um 6 pró­sent á árinu, 17 pró­sent árið 2020 og 2 pró­sent árið eftir. Í öðrum orðum telur bank­inn bæt­ast muni við 1333 ný hót­el­bergi á höf­uð­borg­ar­svæðið á næstu þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár