520 ný hótelherbergi í Reykjavík á sex mánuðum

Á síð­ustu sex mán­uðum árs­ins munu 520 her­bergi bæt­ast við hót­el­mark­að­inn í Reykja­vík. Þar að auki mun 51 hót­el­í­búð bæt­ast við á tíma­bil­inu, þrátt fyrir sam­drátt í nýt­ingu hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ast­liðið ár.

Um 520 hót­el­her­bergi bæt­ast við hót­el­mark­að­inn í Reykja­vík á sex mán­aða tíma­bili, frá júní 2019 til næstu ára­móta. Þar að auki mun bæt­ast við að minnsta kosti 51 ný hót­el­í­búð í mið­bænum á sama tíma­bili. Þá verða 150 ný her­bergi á Marriott-hót­el­inu sem opnar við Leifs­stöð í haust. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Morg­un­blaðs­ins í dag.

Nýt­ing hót­ela dróst saman um sex pró­sent í fyrra 

[links]Ferða­maður hér á landi ver stærstum hluta neyslu sinnar í gisti­þjón­ustu eða 23 pró­sent af heild­ar­neyslu sinni. Frá árinu 2010 sam­hliða upp­gangi í ferða­þjón­ust­u áttu hótel í Reykja­vík í fullu fangi með að mæta auk­inni eft­ir­spurn eftir gist­ingu hér á landi sam­hliða upp­gangi ferða­þjón­ust­unnar frá árinu 2010. Þessi mikla umfram eft­ir­spurn ­skap­aði skil­yrði fyrir tals­verðar verð­hækk­anir en verð á hót­elum í Reykavík hækk­aði um 60 pró­sent á tíma­bil­inu 2011 til 2017 á meðan það stóð í stað hjá hót­elum innan Evr­ópu að með­al­tali.

Síðan á seinni hluta árs­ins 2017 hefur nýt­ing hót­el­her­bergja hins vegar lækkað í flest­öllum lands­hlut­u­m. Nýt­ing hót­ela í Reykja­vík dróst saman um tæp sex pró­sentu­stig á árinu 2018 miðað við fyrra ár eða úr 84,4 pró­sentum á árinu 2017 í 78,6 pró­sent á árinu 2018.

Hótel í Reykja­vík veltu aftur á móti tæp­lega 25 millj­örðum á síð­ast­liðnu ári og jókst veltan um 5,8 pró­sent frá árinu 2017. ­Með­al­verð hót­ela í Reykja­vík jókst um 3,3 pró­sent á árinu 2018 miðað við fyrra ár og náð­ist því aukin velta með hærri ­með­al­verð­i ­yfir árið ­þrátt fyr­ir­ lak­ari nýt­ing­u.

Ferðamönnum hefur fækkað um 12,4 prósent

Brott­förum ferða­manna hefur hins vegar fækkað hér á landi í hverjum mán­uði frá síð­ustu ára­mót­um. Í jan­úar fækk­aði brott­förum um 5,8 pró­sent, í febr­úar um 6,9 pró­sent, í mars um 1,7 pró­sent, í apríl um 18,5 pró­sent, um 23,6 pró­sent í maí og loks 16,7 pró­sent fækkun í júní eða alls 39 þús­und færri ferða­menn en árið á undan. Í heild­ina hafa 900 þús­und erlendir far­þegar farið frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl sem er 12,4 pró­sent fækkun miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Samhliða fækkun ferða­manna hefur heild­ar­gistin­óttum ferða­manna fækkað. Í apríl síð­ast­liðnum fækk­aði heild­ar­gistin­óttum ferða­manna um 6 pró­sent og um 9 pró­sent í maí síð­ast­liðnum. Fjöldi gistinótta á hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hins vegar sveifl­ast meira á milli mán­aða.

Gistin­ótt­u­m á hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fækk­aði um 14,3 pró­sent milli ára í apríl síð­ast­liðnum. Í maí fjölg­aði hins vegar gistin­óttum á hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 2 pró­sent sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Samhliða fækk­aði gistin­óttum á hót­elum á Suð­ur­nesj­unum um 25 pró­sent í maí síð­ast­liðnum en í mán­uð­inum á undan fjölg­aði gistin­óttum á Suð­ur­nesj­unum um 11 pró­sent.

Ef litið er yfir tíma­bilið júní 2018 til maí 2019 sam­an­borið við júní 2017 til maí 2018 má sjá að gistin­óttum á hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur í heild­ina aðeins dreg­ist saman um 3 pró­sent. Á Suð­ur­nesj­unum hefur gistin­óttum á hót­elum hins vegar fjölgað um 2 pró­sent á sama tíma­bili.

Þrátt fyrir sam­drátt í nýt­ingu hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og spár um áfram­hald­andi fækkun ferða­mann er engu að síður áætluð fjár­fest­ing hót­ela á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, rúmir 61 millj­arðar króna út árið 2021 eða um 20 millj­arðar að með­al­tali ár hvert, sam­kvæmt grein­ingu Íslands­banki frá því í maí. Bankinn áætlar að hót­el­her­bergj­u­m ­fjölgi um 6 pró­sent á árinu og 17 pró­sent árið 2020 eða um 1300 her­bergi til og með árinu 2021.

670 hótelherbergi bætast við á hálfu ári

Í sam­an­tekt Morg­un­blaðs­ins í dag kemur fram að á síð­ustu sex mán­uðum þessa árs bæt­ast við 520 her­bergi á sjö hót­elum í Reykja­vík. Til að mynda hefur nú þegar ný hót­el­bygg­ing með 38 her­bergjum verið tekin í notkun á Vega­móta­stíg 7-9. Þá var Oddsson hótel við Grens­ás­veg 16a einnig opnað í júní en þar eru 77 hót­el­her­bergi. Auk þess mun sjö­unda hót­elið í Center- Hót­el­keðj­unni opna á Lauga­vegi 95-99 þann 1. ágúst næst­kom­andi. Þar verða 102 her­bergi í nýbygg­ingu og upp­gerðum bygg­ingum. Þá verða 150 her­bergi í Marriott-hót­el­inu hjá Leifs­stöð sem opnað verður í haust

Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins segir að þrátt fyrir fall WOW séu áform hót­el­anna óbreytt í megin atriðum. Fjár­fest­ing hót­el­anna hleypur á 12 til 13 millj­örðum, ef miðað er við að hvert hót­el­her­bergi í mið­borg­inni kosti 25 millj­ónir í bygg­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár