Hótelherbergjum fjölgar þrátt fyrir fækkun ferðamanna

Áætlað er að hót­el­her­bergjum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgi um 6 pró­sent á árinu þrátt fyrir fyr­ir­hug­aða fækkun ferða­manna. Íslands­banki reiknar því með áfram­hald­andi lækkun á nýt­ingu hót­ela á svæð­inu en nýt­ingin dróst saman um 6 pró­sent í fyrra.

Hótel Borg, Reykjavík, Kea Hótel
Hótel Borg, Reykja­vík, Kea Hótel Mynd: Aðsend mynd

Ísland var dýr­asti áfanga­staður Evrópu árið 2017 og greiddi ferða­mað­ur­inn næstum tvö­falt hærra verð hér en að með­al­tali innan Evr­ópu­sam­bands­ins. Hót­elgist­ing í Reykja­vík hefur hækkað um 60 pró­sent frá árinu 2011 og er ein sú dýrasta í heimi um þessar mundir. Þá hefur nýt­ing hót­ela dreg­ist saman frá árinu 2017 og dróst saman um tæp sex pró­sent í fyrra. Íslands­banki spáir að nýt­ing hót­ela muni halda áfram að lækka í ár vegna fyr­ir­hug­aðrar fækkun ferða­manna. Þrátt fyrir það er áætlar Íslands­banki að hót­el­her­bergjum fjölgi um 6 pró­sent á árinu og 17 pró­sent árið 2020.

Hagnaður dróst saman um 61 prósent á milli ári

Íslands­banki gaf í dag út nýja skýrslu um stöðu íslenskrar ferða­þjón­ustu. Í skýrsl­unni kemur fram að ytri áhrif á borð við styrk­ingu krón­unnar, hæg­ari fjölgun ferða­manna og verð­þrýst­ing í flug­rekstri vegna auk­innar sam­keppni hafa leitt af sér hæg­ari tekju­vöxt í grein­inni. Því virð­ist sem ekki hafi tek­ist nógu vel að mæta þeirri þróun með kostn­að­ar­hag­ræð­ingu og nið­ur­staðan því versn­andi rekstr­ar­nið­ur­stöður grein­ar­innar.

Árið 2017 skil­aði tæp­lega helm­ingur fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu tapi. Rekstr­ar­gjöld hækk­uðu hlut­falls­lega meira en tekjur og minnkar því EBITD- fram­legð grein­ar­innar úr 17 pró­sentum í 11,6 pró­sent milli ára. Dróst hagn­aður grein­ar­innar saman úr rúmum 27 millj­örðum króna í tæp­lega 11 millj­arða króna, eða um 61 pró­sent á árinu 2017 frá fyrra ári.

Nýting hótela í Reykjavík dróst saman um sex prósent í fyrra

Ferða­maður hér á landi ver stærstum hluta neyslu sinnar í gisti­þjón­ustu eða 23 pró­sent af heild­ar­neyslu sinni. Frá árinu 2010 sam­hliða upp­gangi í ferða­þjón­ustu áttu hótel í Reykja­vík í fullu fangi með að mæta auk­inni eft­ir­spurn eftir gist­ingu hér á landi sam­hliða upp­gangi ferða­þjón­ust­unnar frá árinu 2010. Þessi mikla umfram eft­ir­spurn skap­aði skil­yrði fyrir tals­verðar verð­hækk­anir en verð á hót­elum í Reykjaum hækk­aði um 60 pró­sent á tíma­bil­inu 2011 til 2017 á meðan það stóð í stað hjá hót­elum innan Evrópu að með­al­tali.

Síðan á seinni hluta árs­ins 2017 hefur nýt­ing hót­el­her­bergja hins vegar lækkað á flest­öllum lands­hlutum. Nýting hót­ela í Reykja­vík dróst saman um tæp sex pró­sentu­stig á árinu 2018 miðað við fyrra ár eða úr 84,4 pró­sentum á árinu 2017 í 78,6 pró­sent á árinu 2018. Hótel í Reykja­vík veltu tæp­lega 25 millj­örðum á síð­ast­liðnu ári og jókst veltan um 5,8 pró­sent frá árinu 2017. Með­al­verð hót­ela í Reykja­vík jókst um 3,3 pró­sent á árinu 2018 miðað við fyrra ár og náð­ist því aukin velta með hærri með­al­verði yfir árið þrátt fyrir lak­ari nýt­ingu.

Samkvæmt skýrsl­unni er hót­elgist­ing í Reykja­vík um þessar mundir rúm­lega þriðj­ungi dýr­ari, 36 pró­sent, en að með­al­tali hjá hót­elum innan Evrópu og á bil­inu 4 til 11 pró­sent dýr­ari en í stór­borgum á borð við New York, Barcelona og London. Í skýrsl­unni segir að hátt verð­lag hér á landi rýrir sam­keppn­is­hæfni lands­ins á alþjóða­vísu og ljóst sé að ekki sé svig­rúm fyrir frek­ari verð­hækk­anir hjá hót­elum í Reykja­vík, nú þegar nýt­ing fer lækk­andi og ferða­mönnum fækk­andi, er lítið sem ekk­ert

1333 hótelherbergi á næstu þremur árum

Í skýrsl­unni er greint frá því að áfram stefni í tals­verða fjölgun hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þrátt fyrir að útlit sé fyrir að ferða­mönnum muni fækka á árinu en fram­boð flug­sæta um Kefla­vík­ur­flug­völl hefur dregst saman um 28 pró­sent í ljósi gjald­þrots WOW air. Nýting á hót­ela fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2019 hefur lækkað mest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum frá sama tíma árið 2018. Að öðru óbreyttu má því gera ráð fyrir að nýt­ing hót­ela á höf­uð­borg­ar­svæð­inu muni verða lægri á þessu ári en á síð­ast­liðnu ári að jafn­aði, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Engu að síður er áætluð fjár­fest­ing hót­ela á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rúmir 61 millj­arðar króna út árið 2021 eða um 20 millj­arðar að með­al­tali ár hvert. Greining Íslands­banka áætlar að fjölgun hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði um 1.300 til og með árinu 2021. Hlut­falls­leg fjölgun hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er því um 8 pró­sent að með­al­tali á hverju ári út spá­tíma­bilið. 

1 prósent fyrirtækja með rúman helming allra tekna í ferðaþjónustu

Ferða­þjón­ustan á Íslandi ein­kenn­ist því af fáum mjög stórum fyr­ir­tækjum og mörgum litlum. Lítil fyr­ir­tæki, með tekjur undir 500 milj­ónir króna er eru 1.234 tals­ins og mynda saman um 93 pró­sent af heild­ar­fjölda fyr­ir­tækja í grein­inni.

Rekstr­ar­tekjur þrettán stærstu fyr­ir­tækj­anna í ferða­þjón­ustu námu 245 millj­örðum króna árið 2017 sem nemur 58 pró­sent af heild­ar­tekjum grein­ar­innar á árinu. Þar af námu tekjur tveggja stærstu flug­fé­lag­anna, Icelandair og WOW air 160 millj­örðum sem nemur rúmum þriðj­ungi af heild­ar­tekjum grein­ar­innar. Lítil fyr­ir­tæki eða 93 pró­sent af heild­ar­fyr­ir­tækjum grein­ar­innar skil­uðu ein­ungis 19 pró­sent af heild­ar­tekjum grein­ar­innar á árinu 2017.

Í skýrslu Íslands­banka segir að nú líti allt út fyrir að á þessu ári muni í fyrsta sinn frá árinu 2011 draga úr fjölda ferða­manna til Íslands og þar með ljúki einu mesta vaxt­ar­skeiði íslenskrar ferða­þjón­ustu. Bankinn segir að því blasi við verðug áskorun við að auka verð­mæti á hvern ferða­mann til að við­halda verð­mæta­aukn­ingu grein­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár