Tæplega fjörutíu þúsund færri ferðamenn

Brott­farir erlendra far­þega frá land­inu um Kefla­vík­ur­flug­völl voru 195 þús­und í júní­mán­uði eða um 39 þús­und færri en í júní í fyrra. Fækkun milli ára nemur 16,7 pró­sentum.

Brottförum ferðamanna hefur fækkað í hverjum mánuði frá síðustu áramótum. Í júní voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 195 þúsund eða alls 39 þúsund færri ferðamenn en í júní árið á undan. Fækkun milli ára nemur 16,7 prósentum. Þetta kemur fram í talningu Ferðamálastofu og Isavia.

Bandarískum farþegum fækkar um 35 prósent milli ára

Frá áramótum hafa 900 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 12,4 prósent fækkun miðað við sama tímabil í fyrra. Fækkun hefur verið alla mánuði frá áramótum, í janúar fækkaði brottförum um 5,8 prósent, í febrúar um 6,9 prósent, í mars um 1,7 prósent, í apríl um 18,5 prósent og um 23,6 prósent í maí.[adspot]

Banda­ríkja­menn voru fjöl­menn­astir í júní eða tæplega þriðjungur brottfara. Þeim fækkaði hins vegar um 35,1 prósent á milli ára. Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru 17 þúsund talsins eða 6,4 prósent fleiri en í júní árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Breta, um tíu þúsund talsins og fækkaði þeim um 21,1 prósent á milli ára.

Færri Íslendingar ferðast

[links]Þó ferða­mönnum hafi fækkað mikið á und­an­förnum mán­uðum þá hefur korta­velta ferða­manna ekki dreg­ist jafn mikið saman og fjöldi ferða­manna. Þó að heild­ar­korta­velta hafi dreg­ist saman í apríl og maí þá ráð­staf­aði hver ferða­maður 28 pró­sent fleiri krónum hér á landi í apríl en fyrir ári síðan og 30 pró­sent fleiri kónum í maí en korta­velta á hvern ferða­mann hefur aldrei ver­ið ­jafn mikil og í maí.

Þá ráð­staf­aði jafn­framt hver og einn ferða­maður mun meira í sinni eigin mynt en áður. Í apríl ráð­staf­aði hver ferða­maður 13 pró­sent meiru í eigin mynt en fyrir ári síðan og 15 pró­sent meira í maí.

Auk þess­arar auknu eyðslu­gleði ferða­manna þá hefur dval­ar­tími ferða­manna á land­inu lengst. Ef skráðar og óskráðar eru gistinætur teknar saman og deilt niður á fjölda ferða­manna þá sést að hver ferða­maður dvaldi mun lengur á land­inu í apríl og maí en fyrir ári síð­an. Þannig var dval­ar­tím­inn 19,6 pró­sent lengri í apríl og 18,7 pró­sent í maí, sem er nálægt sól­ar­hrings lengri dval­ar­tími.

Þessa breytingu í hegðun ferðamanna má að einhverju leyti rekja til falls WOW air en sam­kvæmt könnun Ferða­mála­stofu meðal erlendra ferða­manna dvöld­u ­ferða­menn ­með­ WOW air ­skemur en aðrir ferða­menn og eyddu minna að með­al­tali en til dæmis ferða­menn með­ Icelandair. Þá flutt­i WOW air hlut­falls­lega fleiri ­ferða­menn ­sem stöldr­uðu aðeins í skamma stund á land­inu án þess að gista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár