Róðurinn ekki jafn þungur í ferðaþjónustu og óttast var

Ferða­menn dvelja nú fleiri nætur hér á landi en í fyrra og eyða meira. Að mati Arion banka gæti aukið vægi erlendra flug­fé­laga í flug­fram­boði lands­ins í kjöl­far falls WOW air skýrt breyt­ing­una.

Ferða­mönnum hefur fækkað mikið á und­an­förnum mán­uðum og greint hefur verið frá því að mörg ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki eigi erfitt upp­dráttar. Aftur á móti virð­ist róð­ur­inn í ferða­þjón­ustu ekki vera jafn þungur og ótt­ast var en nýj­ustu tölur sýna að nú dvelja ferða­menn lengur á land­inu og eyða meira. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu Arion banka á stöðu ferða­þjón­ust­unnar.

Varnarsigur fyrir íslenska ferðaþjónustu

Í grein­ingu Arion banka kemur fram að í maí síð­ast­liðnum hafi verið minni sam­dráttur í korta­veltu en í fjölda ferða­manna. Korta­velta dróst saman um 13,1 pró­sent á milli ára en ferða­mönnum fækk­aði á sama tíma um 23,6 pró­sent, sam­kvæmt tölum Rann­sókn­ar­set­urs versl­unar. Þá segir í grein­ingu bank­ans að sam­kvæmt upp­færðum tölum hafi heild­ar­korta­verslun dreg­ist saman um 0,7 pró­sent, í krónum talið, en 4,5 pró­sent aukn­ing var í korta­sölu í apríl.

Ferða­mönnum fækk­aði til sam­an­burðar um 18,5 pró­sent í apríl og 23,6 pró­sent í maí. Í grein­ingu Arion banka segir að það var við­búið að korta­velta á hvern ferða­menn í krónum talið myndi aukast sökum geng­is­veik­ingar krón­unnar en hversu mikil aukn­ingin virð­ist vera sé óvænt gleði­tíð­indi. „Að því gefnu að þetta sé end­an­leg nið­ur­staða um korta­notkun ferða­manna þá verður svo lít­ill sam­dráttur í maí og vöxtur í apríl að telj­ast mikil varn­ar­sigur fyrir íslenska ferða­þjón­ustu

Ennfremur hefur eyðsla hvers og eins ferðamanns aukist á milli ára. Hver ferðamaður ráðstafaði 28 prósent fleiri krónum hér á landi í apríl en fyrir ári síðan og 30 prósent fleiri kónum í maí en kortavelta á hvern ferðamann hefur aldrei verið jafn mikil og í maí.

„Ekki nóg með það, þá sýna tölurnar að hver og einn ferðamaður ráðstafaði mun meiru í sinni eigin mynt en áður, þróun sem skiptir tekjusköpun þjóðarbúsins gríðarlega miklu máli,“ segir í greiningunni. Í apríl ráðstafaði hver ferðamaður 13 prósent meiru í eigin mynt en fyrir ári síðan og 15 prósent meira í maí.

Spánverjar og Bandaríkjamenn eyða mest

Þá hefur kortavelta Spánverjar og Bandaríkjamenn aukist mest. Hver Spánverji eyddi rúmlega 31 prósent fleiri evrum í apríl og maí samanlagt en árið á undan. Þá varði hver Bandaríkjamaður tæplega 27 prósent fleiri dollurum í maí og apríl. Það munur um þessa eyðsluaukningu Bandaríkjamanna þar sem fimmti hver ferðamaður sem heimsótt hefur Ísland á þessu ári er Bandaríkjamaður. [adspot]

Enn fremur hefur kortavelta Breta og Rússa aukist töluvert á milli ára. Bretland er næst mikilvægasti markaður íslenskrar ferðaþjónustu í höfðatölu ferðamanna talið, á eftir Bandaríkjunum, og því segir í greiningu Arion banka að það sé fagnaðarefni að sjá svo mikla aukningu í kortaveltu hvers og eins Breta, mælt í pundum. Saman eru breskir og bandarískir ferðamenn rúmlega 40 prósent allra ferðamanna er sótt hafa landið heim það sem af er ári.

Hver ferðamaður dvelur lengur á landinu

Auk þessarar auknu eyðslugleði ferðamanna þá hefur dvalartími ferðamanna á landinu lengst. Heildargistinóttum fækkaði, skráðum og óskráðum, um rúm 9 prósent í maí á meðan erlendum ferðamönnum fækkaði um 23,6 prósent. Gistinóttum á hótelum á höfuðborgarsvæðinu, Austurlandi og Norðurlandi fjölgaði hins vegar í maí, og samanlagðar gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum fækkaði aðeins um 1 prósent milli ára.

Þá má sjá ef skráðar og óskráðar eru gistinætur teknar saman og deilt niður á fjölda ferðamanna að hver ferðamaður dvaldi mun lengur á landinu í apríl og maí en fyrir ári síðan. Þannig var dvalartíminn 19,6 prósent lengri í apríl og 18,7 prósent í maí, sem er nálægt sólarhrings lengri dvalartími.


Erlend flugfélög fljúga sjaldnar í viku til landsins

Að mati Arion banka hefur fall WOW air líklega haft áhrif á þessa breytta hegðun ferðamanna. Samkvæmt könnun Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna dvöldu ferðamenn með WOW air skemur en aðrir ferðamenn og eyddu minna að meðaltali en til dæmis ferðamenn með Icelandair. Þá flutti WOW air hlutfallslega fleiri ferðamenn sem stöldruðu aðeins í skamma stund á landinu án þess að gista.

Í kjölfar gjaldþrots WOW air jókst vægi erlendra flugfélaga í flugframboði landsins en erlend flugfélög fljúga alla jafna sjaldnar í viku til landsins. Auk þess segir í greiningu bankans að samsetning farþega með Icelandir hafi einnig breyst. Að mati bankans gætu þetta verið þáttur í aukinni eyðslugleði og lengri dvalartíma ferðamanna „Hvað svo sem veldur er ljóst að tölurnar eru virkilega jákvæðar fyrir íslenska ferðaþjónustu og íslenskan þjóðarbúskap í heild sinni,“ segir að lokum í greiningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár