Ragnar Þór segir dreifibréf FME staðfesta að engin lög hafi verið brotin

Formaður VR segir gott að fá það stað­fest af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu að engar reglur eða lög hafi verið brotin þegar VR aft­ur­kall­aði umboð stjórn­ar­manna sinna í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna og vísar þar til dreifi­bréfs FME frá því í gær.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Hringbraut

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins um stjórnir lífeyrissjóða staðfesti það sem VR hafi alla tíð haldið fram, að það sé ekkert sem banni þeim að skipta út fulltrúum í stjórn lífeyrissjóða. Ragnar Þór segist jafnframt reikna með því að ný stjórn verði kjörin við fyrsta tækifæri. Þetta kemur fram í stöðufærslu Ragnars á Facebook.

[links]Í dreifibréfi Fjármálaeftirlitsins sem Kjarninn fjallaði um í gær kemur fram að Fjármálaeftirlitið telur afturköllun á tilnefningu stjórnarmanna sjóða vega að sjálfstæði stjórna þeirra og að afturköllun á tilnefningu stjórnarmanna sjóða, sem byggi á ósætti tilnefningaraðila við einstakar ákvarðanir stjórnar, geti talist tilraun til beinnar íhlutunar í stjórnun lífeyrissjóða, sem með óbeinum hætti færir ákvörðunarvaldið frá stjórn lífeyrissjóða. „Slíkt vegur að sjálf­­stæði stjórnar og gengur í ber­högg við almenn sjón­­­ar­mið um góða stjórn­­­ar­hætt­i,“ segir í dreifibréfinu.


Jafnframt beinir Fjár­mála­eft­ir­litið því til stjórna líf­eyr­is­sjóða að taka sam­þykktir sínar til skoð­unar með það að leið­ar­ljósi að skýra hvort og þá við hvaða aðstæður sé mögu­legt að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna sem kjörn­ir/til­nefndir hafa ver­ið.

Ný stjórn kölluð saman við fyrsta tækifæri

Ragnar Þór segir í stöðufærslu sinni að dreifibréf FME feli í sér tilmæli um að setja þurfi skýrari reglur um afturköllun umboða og með hvaða hætti það verði gert í framtíðinni og með því „staðfestist það sem við höfum alla tíð haldið fram að það er ekkert sem bannar okkur og skipta út fulltrúum okkar og vísum þannig í reglur okkar um fulltrúaráð VR í Lífeyrissjóði verslunarmanna, sem öll stjórn VR samþykkti á sínum tíma að meðtöldum fráfarandi stjórnarformanni LIVE.“

Í stöðufærslunni greinir Ragnar Þór jafnframt frá því að á fundi VR með lífeyrissjóðnum í byrjun árs hafi það verið sameiginlegur skilningur beggja aðila að reglur um afturköllun umboða yrðu settar af skipunaraðilum, sem í tilfelli VR er fulltrúaráð VR í lífeyrissjóðnum.

„Forsvarsmenn sjóðsins og VR voru því sammála um að setja EKKI slíkar reglur í samþykktir sjóðsins heldur væru þær settar af skipunaraðilum. Þessi sjónarmið og staðfesting á því að þessi fundur var haldin með forsvarsmönnum sjóðsins í byrjun árs hafa ekki fengið áheyrn FME en VR var aldrei beðið um greinargerð eða frekari útskýringar á okkar sjónarmiðum í málinu sem hlýtur að teljast frekar sérstakt af eftirlitsstofnun sem predikar hæst um fagleg vinnubrögð,“ segir í stöðufærslunni.

Þá segir Ragnar að VR muni virða ábendingar FME um að fylgja góðum stjórnarháttum en að það sé „gott að fá það staðfest af FME að engar reglur eða lög voru brotin og við í fullum rétti. Við höfum nú þegar farið ítarlega yfir málið með lögmönnum félagsins sem taka af allan vafa í þessu máli.“ Hann segist jafnframt reikna með að ný stjórn verði kölluð saman við fyrsta tækifæri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár