Helmingur andvígur flutningi flugvallar úr Vatnsmýri

Rúmlega 50 pró­sent lands­manna eru and­vígir brott­hvarfi flug­vall­ar­ins úr Vatns­mýri en tæp­lega 30 pró­sent hlynntir sam­kvæmt nýrri Zenter könnun. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar liggur fyrir á Alþingi.

Flugvöllurinn í Vatnsmýri
Flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rúmlega helm­ingur lands­manna er and­vígur því að flug­völl­ur­inn verði færður úr Vatns­mýri. Tæp 30 pró­sent eru hins vegar hlynnt flutn­ingi flug­vall­ar­ins en 20 pró­sent svör­uðu hvorki né. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum könn­unar sem Zenter fram­kvæmdi fyrir Frétta­blaðið í síð­ustu viku. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vall­ar liggur fyrir á Alþingi.

Mesta andstaðan meðal stuðningsmanna Miðflokksins, Framsóknar og Flokks fólksins

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur fram að 36,4 pró­sent svar­enda eru mjög and­vígir því að flug­völl­ur­inn verði fluttur úr Vatns­mýr­inni. Þá segj­ast 13,6 pró­sent vera frekar and­víg flutn­ingum flug­vall­ar­ins. Aftur á móti segj­ast 17,1 pró­sent vera mjög hlynnt því að flug­völl­ur­inn sé fluttur og 9,7 pró­sent frekar hlynnt því. Þá svör­uðu 19,1 pró­sent að þau væru hvorki and­víg né hlynnt flug­vell­inum.

Jafn­framt kemur fram í umfjöllun Frétta­blaðs­ins að and­staðan sé mest við flutn­ing flug­vall­ar­ins meðal stuðn­ings­manna Mið­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Flokks fólks­ins. And­staðan við flutn­ing flug­vall­ar­ins er yfir 80 pró­sent meðal stuðn­ings­manna þess­ara flokka. Meiri­hluti stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru einnig and­snúnir flutn­ingi flug­vall­ar­ins, eða alls 60 pró­sent.

Þá er mestur stuðn­ingur við flutn­ing flug­vall­ar­ins úr Vatns­mýri hjá stuðn­ings­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar en alls 59 pró­sent segj­ast hlynnt flutn­ingum. Þá eru stuðn­ings­menn Við­reisnar og Vinstri grænna hlynnt­ari því en and­vígir að flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýri. Þá segj­ast 33 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata vera hlynntir flutn­ingum en 35 pró­sent and­víg.

Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar

[links]Í mars í fyrra lögðu 23 þing­menn úr sex stjórn­mála­flokkum fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vall­ar. Í henni fólst að kosið yrði um hvort flug­völl­ur­inn eigi áfram að vera í Vatns­mýr­inni eða ekki. Nið­ur­staða slíkrar atkvæða­greiðslu yrði alltaf ráð­gef­andi, en ekki bind­andi.

Allir þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins voru á meðal flutn­ings­manna. Auk þeirra voru sjö þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks á til­lög­unni, tveir frá Framsókn og einn þing­maður frá VG og einn frá Pírötum. Einu flokk­arnir sem eiga full­trúa á Alþingi sem ekki voru með flutn­ings­mann á til­lög­unni eru Sam­fylk­ing og Við­reisn. Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan náði þó ekki fram að ganga.

Tillagan var aftur lögð fram í sept­em­ber á síð­asta ári en þá lögðu sextán þing­menn úr fimm stjórn­mála­flokkum frá til­lög­una. Þingmenn úr Mið­flokknum, Flokki fólks­ins, Framsókn, Sjálf­stæð­is­flokknum og Vinstri- grænum. Málið gekk síðan til umhverfis- og sam­göngu­nefndar í mars 2019.

Á borg­ar­ráðs­fundi í apríl síð­ast­liðnum var lögð fram umsögn borg­ar­lög­manns um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una. Umsögn stað­geng­ils borg­ar­lög­manns í mál­inu var á þann veg að Reykja­vík­ur­borg legg­ist ein­dregið gegn því að til­lagan verði sam­þykkt, meðal ann­ars vegna þess að hún skerðir stjórn­skrár­varðan sjálf­stjórn­ar­rétt borg­ar­inn­ar, að slík laga­setn­ing gengi gegn skipu­lags­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins og væri í and­stöðu við óskráða meg­in­reglu stjórn­skip­unar um með­al­hóf. Umsögnin var sam­þykkt með fimm atkvæðum í borg­ar­ráði og send til end­an­legrar stað­fest­ingar hjá borg­ar­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár