Þingmenn úr sex flokkum vilja þjóðaratkvæði um Reykjavíkurflugvöll

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar hefur verið lögð fram í þriðja sinn. Flutn­ings­menn eru 23 úr sex stjórn­mála­flokkum. Einungis Sam­fylk­ing og Viðreisn eiga ekki full­trúa á til­lög­unni.

23 þing­menn úr sex stjórn­mála­flokkum hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar. Í henni felst að kosið yrði um hvort flug­völl­ur­inn eigi áfram að vera í Vatns­mýr­inni eða ekki. Nið­ur­staða slíkrar atkvæða­greiðslu yrði alltaf ráð­gef­andi, en ekki bind­andi.

Fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar er Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Allir þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins eru á meðal flutn­ings­manna. Auk þeirra eru sjö þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks á til­lög­unni. Þá eru þær Líneik Anna Sæv­ars­dóttir og Þórunn Egils­dóttur úr Fram­sókn­ar­flokki og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, á meðal flutn­ings­manna. Það er líka Jón Þór Ólafsson frá Pírötum. Einu flokk­arnir sem eiga full­trúa á Alþingi sem eru ekki með flutn­ings­mann á til­lög­unni eru Sam­fylk­ing og Viðreisn.

Sjúkrahús við Hringbraut notað sem rök

Tillagan gerir ráð fyrir því að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar. Sam­bæri­legar til­lögur voru fluttar haustið 2016 og vorið 2017 en fengu ekki braut­ar­gengi á þingi.

Í grein­ar­gerð segir að mark­mið til­lög­unnar sé að „ þjóðin fái tæki­færi til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flug­völl­ur­inn og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs verða í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð, m.a. með til­liti til þjóð­hags­legra hags­muna. Ljóst er að ríkir almanna­hags­munir fel­ast í greiðum sam­göngum innan lands og að stað­setn­ing flug­vall­ar­ins, sem er mið­stöð inn­an­lands­flugs, hefur afar mikla þýð­ingu í því sam­hengi. Flug­völl­ur­inn gegnir mjög mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir almenn­ing í land­inu vegna sjúkra- og neyð­ar­flugs svo og sem vara­flug­völlur. Þá gegnir flug­völl­ur­inn mjög mik­il­vægu hlut­verki í almanna­varna­kerfi lands­ins.“

Þá er sér­stak­lega til­tekið að stjórn­völd hafi markað þá opin­beru stefnu í heil­brigð­is­málum að aðeins verði byggt upp og rekið eitt hátækni­sjúkra­hús og það við Hring­braut í Reykja­vík, í næsta nágrenni við flug­völl­inn. „Greiðar sam­göngur milli flug­vallar og sjúkra­húss­ins eru því afar mik­il­vægar.“

Á að víkja í áföngum eftir 2022

Ekki hefur verið ein­hugur um hvort að mið­stöð inn­an­lands­flugs verði áfram í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík eða verði færð ann­að. Ráðandi öfl í Reykja­vík­ur­borg hafa lengi viljað að flug­völl­ur­inn verði færður svo hægt sé að byggja í Vatns­mýr­inni og þétta þar með höf­uð­borg­ina. Um sé að ræða verð­mætasta bygg­ing­ar­landið innan marka hennar sem sé auk þess afar mik­il­vægt fyrir þróun henn­ar.

Sam­kvæmt sam­göngu­á­ætlun er gert ráð fyrir að flug­völl­ur­inn verði þar sem hann er til 2022 en aðal­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyrir að hann víki í áföngum eftir það ár. Sumarið 2016 komst Hæsti­réttur Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið þurfi að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­ur­borg um loka norð­aust­­ur/suð­vest­­ur­-flug­braut­inni, sem stundum er kölluð neyð­­ar­braut­in, á Reykja­vík­ur­flug­velli.

Fyrsta þings­á­lykt­un­ar­til­lagan um þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una var lögð fram í kjöl­far­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár