Póstsendingar frá Kína hafa aukist um 202 prósent frá 2014

Inn- og útflutn­ingur á vörum frá Kína hefur stór­auk­ist frá því frí­versl­un­ar­samn­ingur Íslands og Kína tók gildi árið 2014. Ali­ex­press mark­aði vatna­skil í net­verslun Íslend­inga.

Aukning á póst­send­ingum sem rekja má til Kína var 202 pró­sent á árunum 2014 til 2018. Inn- og útflutn­ingur á vörum til Kína hefur stór­auk­ist á tíma­bil­inu vegna und­ir­rit­unar frí­versl­un­ar­samn­ings ríkj­anna. Enn fremur hefur Íslands­póstur lent í tölu­verðum vand­ræðum með auknar póst­send­ingar vegna net­versl­unar, þá sér­stak­lega frá Kína.

Frí­versl­un­ar­samn­ingur Kína og Íslands var und­ir­rit­aður árið 2013 og tók gildi árið 2014. 21 pró­sent aukn­ing varð á milli áranna 2014 til 2015 og 41 pró­sent þar á eftir. Mesta aukn­ing á milli ára var frá árinu 2016 til 2017, það er 51 pró­sent aukn­ing, en lækk­aði svo niður í 17 pró­sent aukn­ingu milli ára 2017 til 2018. Aukning á öllu tíma­bil­inu er 202 pró­sent.

Þetta kemur fram í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Póst­ur­inn getur þó ekki gefið upp heild­ar­fjölda send­inga vegna sam­keppn­is­sjón­ar­miða, að því er kemur fram í svar­inu.

[adspot]Inn- og útflutningur Íslands til Kína hefur aukist til muna

Bæði hefur inn­flutn­ingur og útflutn­ingur á vörum til og frá Kína auk­ist frá und­ir­ritun frí­versl­un­ar­samn­ings­ins. Virði útflutn­ings á vörum til Kína fór úr 3.413 millj­ónum árið 2010 í 4.803 millj­ónir árið 2014, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hag­stof­unni.

Árið 2018 stóð virðið í 15.642 millj­ónum. Inn­flutn­ingur fór úr 28731 millj­ónum árið 2010 í 46.390 millj­ónir árið 2014. Árið 2018 stóð inn­flutn­ingur í 73.606 millj­ónum króna.

Netverslun Íslendinga hefur aukist gífurlega

Aukning á net­verslun Íslend­inga á vörum frá Kína hefur auk­ist gíf­ur­lega á síð­ustu árum. Í við­tali við tíma­ritið Umræðan sagði Vésteinn Við­ars­son, fyrrum vöru­stjóri pakka­send­inga hjá Íslands­pósti, að vatna­skil hefðu orðið árið 2013 þegar Íslend­ing­ar upp­götv­uðu kín­versku net­versl­un­ina Ali­Ex­press og í fram­hald­inu aðrar sam­bæri­leg­ar vef­versl­an­ir.

Send­ingar til lands­ins frá útlöndum sjöföld­uð­ust frá 2013 til 2017 og stóð virðið árið 2017 í 4,3 millj­örðum króna sam­kvæmt toll­skrán­ingu frá Embætti toll­stjóra og toll­af­greiðslu Íslands­pósts. Kaup frá inn­lendum net­versl­unum voru 8,8 millj­arðar á sama tíma.

Íslandspóstur tapar á netverslun

Íslands­pósti er skylt sam­kvæmt al­þjóða­samn­ing­um að greiða 70 til 80 pró­sent af kostn­aði póst­send­inga frá þró­un­ar­lönd­um, þar á meðal Kína. Ingi­mund­ur Sig­ur­páls­son, fyrrum for­stjóri Íslands­pósts, sagði í við­tali við Morg­un­blaðið í sept­em­ber síð­ast­liðnum að rekja mætti stór­an hluta af tapi Ís­lands­póst til þess­ara nið­ur­greiðslna en ­kostn­að­­ur­inn hleypur á hund­ruð­u­m millj­­óna.

„­Mikil aukn­ing hefur verið í net­verslun frá útlöndum á und­an­­förnum árum og þá sér­­stak­­lega frá Kína. Vegna óhag­­stæðra alþjóða­­samn­inga þar sem Kína er flokkað sem þró­un­­ar­­ríki fær Íslands­­­póstur mjög lágt gjald greitt fyrir þessar send­ingar og standa þær greiðslur ein­ungis undir litlum hluta þess kostn­aðar sem fellur til við að með­­höndla þær. Mikið tap af þessum erlendu send­ing­um, sem Íslandi ber að sinna sam­­kvæmt alþjóða­­samn­ing­um, er stór hluti vand­ans við fjár­­­mögnun alþjón­ust­unn­­ar,“ sagði Ingi­mundur.

Frá og með 3. júní síð­ast­liðnum var Íslands­pósti leyfi­legt að rukka við­bót­ar­gjöld af pökkum sem koma erlendis frá. Send­ing­ar­gjaldið er nú 400 krónur fyrir send­ingar frá Evrópu en 600 krónur fyrir send­ingar frá löndum utan Evrópu, segir í frétt Íslands­pósts.

[links]Ástæðan fyrir hækk­un­inni er „sú að verð sam­kvæmt alþjóð­legum samn­ingum um póst­send­ingar hefur verið allt of lágt til að standa straum af kostn­aði við dreif­ingu á Íslandi og hefur Íslands­póstur þurft að fjár­magna þann mis­mun. Á síð­asta ári nam tapið af þessum hluta starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins alls um 920 millj­ónum kr. og hefur verið áfram­hald­andi tap á þessu ári. Íslands­póstur hefur ekki svig­rúm til þess að standa undir þessum kostn­aði og því hafa stjórn­völd staðið fyrir breyt­ingu á lögum um póst­þjón­ustu, sem heim­ila inn­heimtu send­ing­ar­gjalds til þess að fjár­magna mis­mun­inn,“ að því er segir í frétt Íslands­pósts.

Þó er ljóst að tapið er ekki ein­göngu vegna send­inga frá Kína, heldur er það einnig vegna send­inga frá Vest­ur­löndum, sam­kvæmt frétt RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

netverslun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár