Netverslun 9 prósent af allri verslun Íslendinga í samkomubanninu

Net­verslun tók mikið stökk í apr­íl­mán­uði sam­an­borið við fyrra ár og nam heilum 9 pró­sentum af allri verslun með íslenskum kortum. Bygg­inga­vöru­versl­anir virð­ast hafa notið góðs af breyttu neyslu­mynstri í sam­komu­bann­inu.

Erlend kortavelta hefur ekki verið minni hér á landi frá upphafi mælinga árið 2002.
Erlend korta­velta hefur ekki verið minni hér á landi frá upp­hafi mæl­inga árið 2002. Mynd: Pexels

Net­verslun nam heilum 9 pró­sentum af heild­ar­verslun Íslend­inga í apr­íl­mán­uði, sam­kvæmt nýjum tölum frá Rann­sókna­setri versl­un­ar­innar. Í sama mán­uði í fyrra var net­versl­unin ein­ungis um þrjú pró­sent af allri verslun, en jókst mjög mikið í ár vegna sam­komu­banns­ins sem var í gildi í apríl.

Mikil aukn­ing varð í fata­verslun á net­inu, en hún jókst um tæp 280 pró­sent frá því í sama mán­uði í fyrra fyrra og nam 308 millj­ónum króna. Heilt yfir dróst fata­verslun þó saman um 28 pró­sent, en velta fata­búða nam 1,2 millj­örðum króna.

Korta­velta bygg­inga­vöru­versl­ana nam 2,8 millj­örðum króna í apríl, jókst um þriðj­ung frá fyrra og virð­ist ljóst að margir hafi nýtt aukna heima­veru vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins til þess að ráð­ast í ein­hverjar verk­legar fram­kvæmdir.

Mikill sam­dráttur varð á sama tíma á veltu veit­inga­þjón­ustu og elds­neyt­is­sölu. Elds­neytis­kaup land­ans minnk­uðu um 1,4 millj­arða króna á milli ára, enda margir búnir að vera að vera vinna heima og fáir að fara í ferðir á milli lands­hluta að nauð­synja­lausu, enda var fólki ráðið frá því.

Greiðslu­korta­velta Íslend­inga í versl­unum inn­an­lands nam 34,7 millj­örðum króna í apríl og jókst um 11 pró­sent sam­an­borið við apríl í fyrra, en heild­ar­korta­velta Íslend­inga inn­an­lands dróst þó saman um 13,6 pró­sent á milli ára og nam 53,1 millj­arði króna.

Erlend kortavelta ekki minni frá upphafi mælinga

Erlend korta­velta hér­lendis í mán­uð­inum nam 949 millj­ónum króna og hefur aldrei verið lægri að raun­gildi frá því að Seðla­banki Íslands hóf mæl­ingar árið 2002. Enda landið nær alveg lokað fyrir erlendum ferða­mönnum.

Velta banda­rískra korta var mest í mán­uð­inum, 241 milljón króna, en í sama mán­uði í fyrra nam velta þeirra hér­lendis 4,45 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár