Niðurgreiðslur á póstsendingum milli landa að sliga Íslandspóst

Alþjóða­samn­ingar um kostn­að­ar­þátt­töku í póst­send­ingum eru Íslands­pósti og rík­i­s­jóði dýrir.

Rekja má stóran hluta af tapi Íslands­pósts til nið­ur­greiðslna fyr­ir­tæk­is­ins á erlendum póst­send­ingum en kostn­að­ur­inn hleypur á hund­ruðum millj­óna.

Þetta segir Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag en fyr­ir­tæk­inu er skylt sam­kvæmt alþjóða­samn­ingi (Uni­ver­sal Postal Union) að greiða 70-80% af kostn­aði póst­send­inga frá þró­un­ar­löndum, þar á meðal Kína.

Rík­is­sjóður veitti Íslands­pósti lán á dög­unum til að mæta tap­rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Í sam­tali við Morg­un­blaðið segir Ingi­mundur að það megi að rekja tapið að miklu leyti til fyrr­nefndra nið­ur­greiðslna. Í til­kynn­ingu vegna lán­veit­ing­ar­innar, segir að þurfa ein­fald­lega að veita fyr­ir­tæk­inu meira fé svo það geti haldið áfram rekstri. „Ís­lands­póstur þarf á fjár­magni að halda til að við­halda rekstr­ar­fjár­munum sem og til að styrkja lausa­fjár­stöðu félags­ins. Þrátt fyrir aukna lán­töku und­an­farin ár er þörf á meira lausa­fé, allt að 500 millj­ón­um, til að standa undir skuld­bind­ingum næstu mán­uð­ina og fyr­ir­sjá­an­legum tap­rekstri á yfir­stand­andi ári, meðal ann­ars vegna mik­illar fækk­unar bréfa, og hefur félagið leitað til rík­is­ins um fyr­ir­greiðslu vegna þess.“

Íslands­póstur er að fullu í eigu rík­is­ins og hefur félagið rekstr­ar­leyfi frá Póst- og fjar­skipta­stofnun sem kveður á um að það fari með einka­rétt rík­is­ins til að sinna póst­þjón­ustu. Þar er átt við póst­send­ingar bréfa allt að 50 grömm­um, auk þess sem félagið sinnir alþjón­ustu fyrir hönd rík­is­ins til að tryggja öllum lands­mönnum aðgang að póst­þjón­ustu með skil­greindum gæðum og á við­ráð­an­legu verði. Nær alþjón­ustu­skyldan til send­inga allt að 20 kg. Í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að lán­veit­ingin tryggi tíma­bundið mögu­leika félags­ins til að standa undir þessum skyld­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár