Víðtæk vandræði Íslandspósts

Íslands­póstur hefur farið fram á 1,5 millj­arða króna neyð­ar­lán frá rík­is­sjóð en fjár­laga­nefnd hefur áhyggjur af end­ur­greiðslu láns­ins. Póst­þjón­usta Íslands­pósts hefur ekki staðið undir sér und­an­farin ár en fyr­ir­tækið tap­aði háum fjár­hæðum á árinu.

Íslands­póstur glímir við alvar­legan lausa­fjár­vanda og hefur því óskað eftir neyð­ar­láni frá rík­inu upp á 1.500 millj­ónir króna. Lána­línur Íslands­pósts hjá við­skipta­banka fyr­ir­tæk­is­ins hafa þegar verið full­nýttar og for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir stöðu pósts­ins tví­sýna ef ekki fáist lánið. Íslands­póstur hefur ekki staðið undir sér und­an­farin ár meðal ann­ars vegna mik­ils sam­dráttar í bréfa­send­ingum og nið­ur­greiðslu erlendra póst­send­inga. Dreif­ing­ar­dögum pósts­ins hefur verið fækkað og póst­burð­ar­gjald hefur þre­fald­ast á tíu árum. Fjár­fest­ingar fyr­ir­tæk­is­ins hlaupa á millj­örðum og fyr­ir­tækið hefur tapað hund­ruðum millj­ónum króna vegna lána til dótt­ur­fé­laga Íslands­pósts. Laun for­stjór­ans hækk­uðu um tæp tutt­ugu pró­sent á síð­asta ári og launa­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins hækk­aði um 1,4 millj­arða króna á síð­ustu tveimur árum.

Neyðarlán upp á 1.5 milljarð króna

[links]Meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lög fyrr í mán­uð­inum um að lán rík­is­ins til Íslands­pósts myndi nema 1.500 millj­ónum króna í stað 500 millj­ónum sem fyr­ir­tækið hafði þegar hlotið vil­yrða fyrir. Breyt­ing­ar­til­lagan var hins vegar dregin til baka áður en atkvæði voru greitt um málið í annarri umræðu um fjár­laga­frum­varpið á Alþingi í síð­ustu viku. Ástæður þess að lán­veit­ing­ar­heim­ildin var dregin til baka var sögð vegna þess að fjár­laga­nefnd vildi kanna hvort rétt væri að binda fjár­veit­ing­una ein­hverjum skil­yrðum.

Páll Magn­ús­son sem situr í fjár­laga­nefnd fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn sagði í sam­tali við frétta­stofu Rúv að fjár­laga­nefnd væri að skoða málið nánar:„Meiri­hluti fjár­laga­nefndar telur ein­fald­lega að áður en þessi heim­ild er veitt þá þurfi hugs­an­lega að setja ein­hver skil­yrði. Að fyrir liggi hvernig og hvenær fyr­ir­tækið telur sig verða gjald­fært og geta borgað þetta lán til baka. Ef þetta væri bara um tíma­bund­inn eðli­legan lausa­fjár­vanda að ræða þá hefði vænt­an­lega við­skipta­banki félags­ins séð um þetta og veitt þessa fyr­ir­greiðslu,“ segir Páll Magn­ús­son sem situr í fjár­laga­nefnd fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Vonar að Alþingi sjái að sér

For­stjóri Íslands­pósts Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­lands­póst, segir fjár­hags­vanda fyr­ir­tæk­is­ins meðal ann­ars til­kom­inn vegna þess að bréfa­send­ingar hafa dreg­ist saman um 15 pró­sent á þessu ári sem er mun meira en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Það leiðir til tekju­taps upp á 350 til 400 millj­ónir króna. Þá hafi Íslands­póstur þurft að standa undir ófjár­magn­aðri byrði sem nemi árlega um 600 millj­ónum króna, þetta hafi gert það að verkum að gengið hafi verið á vara­sjóði félags­ins. Ingi­mundur seg­ist því vona í við­tali við stöð 2 að fjár­laga­nefnd Alþingis sjái að sér og sam­þykki breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lög sem heim­ilar lánið 

Willum Þór Þórsson, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, segir að það komi til greina að breyta fjár­laga­frum­varp­inu fyrir þriðju umræðu og veita rík­is­sjóði heim­ild til að lána Íslands­pósti ef skýr svör ber­ast frá fyr­ir­tæk­inu um end­ur­greiðslu láns­ins og hvaða trygg­ingar verði settar fyrir end­ur­greiðsl­unni því þetta séu miklar upp­hæðir. Willum segir, í við­tali við frétta­stofu Stöð 2, að nú hafi fjár­laga­nefnd kallað til sín sam­göngu­ráðu­neytið, fjár­mála­ráðu­neytið og stjórn­endur Íslands­pósts og afla gagna og fá svör við spurn­ingum.

Stórt tap vegna samdráttar í bréfasendingum

Árið 2018 hefur verið Íslands­pósti margt erfitt, fyr­ir­tækið tap­aði 161,2 milj­ónum króna á fyrri helm­ing árs­ins 2018. Það er mik­ill við­snún­ingur frá sama tíma­bili í fyrra þegar fyr­ir­tækið skil­aði 99,1 milljón króna hagn­aði. Mikill sam­dráttur hefur verið í bréfa­magni eða um 15 pró­sent. Bréfa­sendum hefur fækkað á hverju ári í langan tíma en fækkun bréfa þýðir minni tekjur sem hefur veru­leg áhrif á rekstur félags­ins. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu varð­andi hálfs­árs­upp­gjör fyr­ir­tæk­is­ins.

Ingi­mundur segir rekstr­ar­halla fyr­ir­tæk­is­ins meðal ann­ars komin vegna þess að Íslands­póstur, fyrir hönd ríks­ins,hefur tekið á sig þá skyldu að dreifa pósti, bæði bréfum og pökkum upp að tutt­ugu kílóum, út um land allt en sam­kvæmt Ingi­mundi þá er tölu­verður stór hluti af þessum mark­aði sem stendur ekki undir sér, þ.e. kostn­að­ur­inn við dreif­ingu er miklu meiri en sem nemur tekj­unum. Þar verður Íslands­póstur að sinna þjón­ust­unni en ann­ars staðar er fyr­ir­tækið í sam­keppni við aðila um pakka­dreif­ingar þar sem það er hag­kvæmt. Ingi­mundur segir það vera þessa svoköll­uðu ófjár­magn­aða alþjón­ustu­byrði sem er vanda­málið og hefur verið vanda­mál í fjöl­mörg ár.

Ingi­mundur segir þetta ekki sér­ís­lenskt vanda­mál heldur standi öll póst­fyr­ir­tæki í heim­inum fyrir sama vanda­máli og hafa ert und­an­farin ár. „Það má segja að sér­staðan hér á Íslandi er sú að Íslands­póstur er senni­lega eina, eða eitt af örfáum póst­fyr­ir­tækjum í Evrópu sem ekki hefur notið neinna fram­laga úr rík­is­sjóði. Norski póst­ur­inn er til dæmis að fá sjö þús­und millj­ónir í greiðsluir frá norska rík­inu fyrir að sinna alþjón­ust­unni. Sænski og danski póst­ur­inn, sem er í sam­eig­in­legu fyr­ir­tæki, fékk þrjá­tíu millj­arða frá rík­is­stjórn Sví­þjóðar og Dan­merkur í byrjun þessa árs. Svona mætti lengi áfram telja,“ segir Ingi­mundur í fyrr­greindu við­tali við stöð 2.

Núverandi póstþjónusta stendur ekki undir sér.

Aðspurður um hvort að Íslands­póstur muni eiga erfitt með að end­ur­greiða lánið komi það til segir hann svo vera. Ingi­mundur seg­ist hafa áhyggjur af því og ástæða þess sé ein­fald­lega sú að póst­þjón­ustu­kerfið eins og það er sett núna stendur ekki undir sér. Sú póst­þjón­usta sem við höfum verið að veita und­an­farin ár skilar ekki inn tekjum umfram gjöld.

„Það þarf að stokka upp rekst­ur­inn það hvort sem kemur til láns­ins eður ei og enn frekar þarf að gera það þegar ný póst­lög taka gildi og ákvörðun verður tekin um afnám einka­réttar. Einka­rétt­ur­inn hefur það hlut­verk að greiða niður alþjón­ustu þar sem hún stendur ekki undir sér og hann hefur ekki gert það und­an­farin ár,“ segir Ingi­mundur að lokum.

Í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu kemur fram móta þurfi fram­tíð­ar­stefnu og áætlun um hvernig haga beri póst­þjón­ustu þannig hún verði sjálf­bær. Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið sem ráðu­neyti póst­mála vinnur nú þegar að end­ur­skoðun gild­andi lag­ara­mma til að tryggja góða póst­þjón­ustu um allt land segir í til­kynn­ing­unni.[adspot]

Íslenska ríkið greiðir um 500 milljónir vegna bréfsendinga

Samþykkt var í maí síð­ast­liðnum að álagn­ing­ar­seðlar almenn­ings væru birt þeim raf­rænt í staf­rænu póst­hólfi með það að mark­miði að spara fjár­muni, draga úr nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum og bæta þjón­ustu. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra lagði fram breyt­ing­ar­til­lög­unni, en sam­kvæmt henni greiðir íslenska ríkið um 500 millj­ónir króna á ári í póst­burð­ar­gjöld vegna bréfa­send­inga til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Þar af nemur árlegur kostn­aður rík­is­ins við að senda út til­kynn­ingar opin­berra gjalda um 120 millj­ónum króna.

Tekjur Íslands­pósts af póst­þjón­ustu voru 7,5 millj­arðar króna á árinu 2017. Það þýðir að tæp­lega sjö pró­sent af öllum póst­þjón­ustu­tekjum Íslands­pósts eru vegna póst­burð­ar­gjalda sem ríkið greiðir vegna bréfa­send­inga. Ef íslenska ríkið hefði ekki greitt hálfan millj­arð króna í póst­burð­ar­gjöld á síð­asta ári hefði Íslands­póstur verið rek­inn með tæp­lega þrjú hund­ruð millj­óna króna tapi á því rekstr­ar­ári.

Póstburðargjöld Íslandspósts hafa þrefaldast á tíu árum

Send­ing­ar­kostn­aður bréf­pósts í einka­rétti hjá Íslands­pósti var þrefalt hærri árið 2017 en tíu árum áður árið 2007 sam­kvæmt sam­an­tekt Póst- og fjar­skipta­stofn­unar sem birt var í byrjun árs. Í sam­an­tekt­inni kemur fram, að á tíu ára tíma­bili, frá 2007 til 2017, hefur gjald­skrá A-pósts hækkað um 220 pró­sent og gjald­skrá B-Pósts um 195 pró­sent. Á sama tíma­bili hækk­aði vísi­tala neyslu­verðs um 67 pró­sent og vísi­tala launa um 102 pró­sent.

Í sam­an­tekt Póst- og fjar­skipta­stofn­unar kom einnig fram að bréfum bréfum sem Íslands­póstur hefur einka­rétt á, það eru bréf allt að 50 grömmum, hafi fækkað úr rúmum 50 millj­ónum árið 2007 niður í tæp­lega 22 millj­ónir í fyrra. Það er 57 pró­sent sam­dráttur. Stofn­unin bendir þó á að hlið­stæð þróun hafi átt sér stað í öllum löndum EES

Í sam­an­tekt­inni kom fram að Póst- og fjar­skipta­stofn­unin fer fram á að Íslands­póstur end­ur­skoði gjald­skrá, með til­liti til verð­lækk­ana. Fyrr á árinu hafði stofn­unin heim­ilað Íslands­pósti að fækka dreif­ing­ar­dögum bréf­pósts í þétt­býli frá og með 1. febr­úar 2018 en dreif­ing­ar­dögum í dreif­býli hafði þegar verið sam­þykkt. Ákvörðun Íslands­pósts um að fækka dreif­ing­ar­dögum byggði á því að eft­ir­spurn eftir þjón­ust­unni hefði minnkað og bréf­send­ingum fækkað. Til að bregð­ast við þessu hefur gjald­skrá reglu­lega verið hækkuð á und­an­förnum árum.

Mikið tap af erlendum send­ingum

Und­an­far­inn ára­tug hefur bréfa­send­ingum farið ört fækk­andi um allan heim. Á sama tíma hefur net­verslun rutt sér til rúms og pakka­send­ingum fjölg­að. Tekjur af bréfa­send­ingum vegna alþjón­ustu hafa dreg­ist saman á sama tíma og dreifi­kerfið hefur stækkað með fjölgun íbúða og fyr­ir­tækja, en auknar tekjur af pakka­send­ingum hafa ekki dugað til að vega upp á móti sam­drætti í bréfa­send­ing­um

Íslands­póstur er skylt sam­kvæmt alþjóða­samn­ingum að greiða 70 til 80 pró­sent af kostn­aði póst­send­inga frá þró­un­ar­löndum, þar á meðal Kína. Ingi­mundur, for­stjóri Íslands­pósts, segir að rekja má stór­an hluta af tapi Íslands­póst til þess­ara nið­ur­greiðslna en ­kostn­að­ur­inn hleypur á hund­ruð­u­m millj­óna. „Mikil aukn­ing hefur verið í net­verslun frá útlöndum á und­an­förnum árum og þá sér­stak­lega frá Kína. Vegna óhag­stæðra alþjóða­samn­inga þar sem Kína er flokkað sem þró­un­ar­ríki fær Íslands­póstur mjög lágt gjald greitt fyrir þessar send­ingar og standa þær greiðslur ein­ungis undir litlum hluta þess kostn­aðar sem fellur til við að með­höndla þær. Mikið tap af þessum erlendu send­ing­um, sem Íslandi ber að sinna sam­kvæmt alþjóða­samn­ing­um, er stór hluti vand­ans við fjár­mögnun alþjón­ust­unn­ar.“ sagði Ingi­mundur í við­tali við Morg­un­blaðið í sept­em­ber.

Laun forstjóra hækkuð um 17,6 prósent

Breyt­ingar á lögum um kjara­ráð tóku gildi um mitt ár í fyrra. Með þeim var vald yfir launum rík­is­for­stjóra fært frá kjara­ráði til stjórna rík­iss­fyr­ir­tækja. Kjarninn fjall­aði um afleið­ingu þessa breyt­inga fyrr á árinu og greindi frá hvernig breyt­ingin leiddi af sér í sumum til­vikum tug­pró­senta launa­hækk­ana. Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­póst, hefur einnig notið góðs af þessum breyt­ing­um. Laun hans hækk­uðu um 17,6 pró­sent á síð­asta ári og mán­að­ar­laun hans eru nú 1,7 millj­ónir króna.

Á meðal þeirra sem sitja í stjórn Íslands­pósts, sem ákvað hækk­un­ina, er Svan­hildur Hólm Vals­dótt­ir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­son­ar. Hún er vara­for­maður stjórn­ar­inn­ar. Laun stjórn­ar­manna í Íslands­pósti voru einnig hækkuð milli ára. Sam­tals fóru greiðslur til stjórn­ar­manna úr níu millj­ónum króna í tíu millj­ónir króna. Þau eru ekki sund­ur­liðuð sér­stak­lega í árs­reikn­ingi Íslands­pósts. Um er að ræða hækkun um 11 pró­sent milli ára.

Árið 2015 greiddi Íslands­póstur 29,5 millj­ónir króna fyrir fimm jeppa og einn fólks­bíl sem for­stjóri og fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tæk­is­ins hafa til umráða sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingum. Í svari Íslands­póst við fyr­ir­spurn DV segir að fyr­ir­tækið hafi á að skipa öfl­ugt stjórn­enda­teymi og það eigi við um stjórn­endur sem og aðra starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins, að það verði að vera sam­keppn­is­hæft í launum til að eiga kost á að laða til síns hæfa starfs­menn.

Stöðu­gildum Íslands­póst hefur einnig fjölgað um tæp­lega níu­tíu stöður, þar af um rúm­lega fjöru­tíu milli áranna 2016 og 2017, og launa­kostn­aður hækkað um 1,4 millj­arða króna sam­kvæmt Frétta­blað­inu.[adspot]

Fjárfestingar og lán til dótturfélaga

Frá árinu 2006 hefur Íslands­póstur varið rúm­lega 5,8 millj­örðum króna í fjár­fest­ingar í fast­eign­um, lóð­um, áhöld­um, tækjum og bif­reið­um. Á móti hafa eignir fyrir rúmar 600 millj­ónir króna verið seld­ar. Nettófjár­fest­ing á tíma­bil­inu er því rúmir fimm millj­arðar króna. Þetta má lesa úr árs­skýrslum Íslands­pósts frá árinu 2006 til dags­ins í dag og var fjallað um í Frétta­blað­inu í dag.

Á árunum 2005 og 2006 tók Íslands­póstur ákvarð­anir um að stækka hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á almennum flutn­inga­mark­aði en fyr­ir­tækið er einnig í sam­keppni þegar kemur að dreif­ingu aug­lýs­inga­blaða, bæk­linga og sölu á prent­vörum og ýmiss konar smá­vöru.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins um helg­ina kemur hins vegar fram að eft­ir­lits­að­ilar hafa bent á að slæma rekstr­ar­stöðu Íslands­pósts sé ekki aðal­lega að rekja til auk­ins kostn­aðar við alþjón­ustu. Í athuga­semdum Póst- og fjar­skip­sta­stofn­unnar við skýrslu um rekstr­ar­skil­yrði Íslands­pósts, frá árinu 2014, er meðal ann­ars bent á að hund­ruð millj­óna hafi tap­ast vegna lán­veit­inga til dótt­ur­fé­laga Íslands­pósts í sam­keppn­is­rekstri. Íslands­póst­ur, m.a. vegna fjár­fest­ingu í prent­smiðju Sam­skipta og láns til ePósts dótt­ur­fé­lags Íslands­póst­s.

Kalla eftir óháðri úttekt

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent Sigurði Inga Jóhann­syni, sam­göngu og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, erindi og hvatt til þess að ráðu­neyti hans óski eftir óháðri úttekt á rekstri Íslands­pósts. Ólafur Steph­ens­sen, fram­kvæmda­stjóri FA telur að ef ráð­ist verður í úttekt þá yrði að fá utan­að­kom­andi aðila til verks­ins. Hann bendir á að Póst- og fjar­skipta­stofnun telji það ekki sitt hlut­verk að rann­saka slíkt og þá er Rík­is­end­ur­skoðun van­hæf þar sem stofn­unin end­ur­skoði reikn­inga Íslands­pósts.

„Það er mjög áleitin spurn­ing hvort eig­enda­stefnu rík­is­ins vegna opin­berra hluta­fé­laga sé ekki ábóta­vant. Þar segir að stjórnir slíkra félaga skuli leit­ast við að efla sam­keppni en stjórn Íslands­pósts virð­ist mis­skilja það sem svo að fyr­ir­tækið skuli fara í sam­keppni við allt sem hreyf­ist,“ segir Ólafur í sam­tali við Frétta­blaðið í dag og bendir á að fyr­ir­tækið selji sæl­gæti, bækur og minja­vöru, dótt­ur­fyr­ir­tæki þess vinni að hug­bún­að­ar­gerð og annað sé í prent­þjón­ustu. Þá sé fyr­ir­tækið á fullu í frakt-, flutn­inga- og send­la­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár