Lánveitingarheimild til Íslandspósts dregin til baka

Lán­veit­ing­ar­heim­ild til Íslands­pósts var felld út úr breyt­ing­ar­til­lögum til fjár­laga í gær en meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafði lagt til að veita Íslands­pósti 1.500 milljón króna lán. Fjár­laga­nefnd vill skoða málið betur fyrir þriðju umræðu fjár­laga.

Lán­veit­ing­ar­heim­ild til Íslands­pósts var felld út úr breyt­ing­ar­til­lögum meiri­hluta fjár­laga­nefndar en ann­ari umræðu um fjár­laga­frum­varp næsta árs lauk í gær. Til stóð að greidd yrðu atkvæði um heim­ild rík­is­sjóðs til að lána Íslands­póst 1,5 millj­arða króna en sú breyt­ing­ar­til­laga var dregin til baka áður en greitt voru atkvæði um málið. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

[links]Meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafði lagt til að hækkað yrði lán rík­is­ins til Íslands­póst um einn millj­arð króna en fyr­ir­tækið hafði þegar fengið vil­yrði fyrir láni upp á 500 millj­ónir. Lánið átti að hjálpa Íslands­pósti að mæta lausa­fjár­vanda félags­ins en ekki lá fyrir um hvort að það sé eina orsök rekstr­ar­vanda­fé­lags­ins. Sú breyt­ing­ar­til­laga var hins vegar dregin til baka.

Íslands­póstur tap­aði 161,2 millj­ónum króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2018. Það er mik­ill við­snún­ingur frá sama tíma­bili í fyrra þegar fyr­ir­tækið skil­aði 99,1 milljón króna hagn­aði. Samkvæmt hálfs­árs­upp­gjöri félags­ins reiknar Íslands­póstur með því að tekjur sínar muni drag­ast saman um hátt í 400 millj­ónir króna á árinu 2018 vegna fækk­unar á bréfa­send­ingum. Í til­kynn­ingu frá Íslands­pósti í ágúst vegna afkomu fyr­ir­tæk­is­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins segir að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins vinni nú að því „í sam­vinnu við stjórn­völd að leita leiða til að tryggja fjár­mögnun alþjón­ust­unnar og laga hana að breyttum for­send­um. Nauð­syn­legt er að nið­ur­staða liggi fyrir í þeim efnum á næstu mán­uð­u­m.“

Fjárlaganefnd vill skoða málið betur

„Meiri­hluti fjár­laga­nefndar tók þá ákvörðun í [gær­morgun] að draga breyt­ing­ar­til­lög­una til baka og skoða málið betur. Það er til skoð­unar hvort ein­hver frek­ari skil­yrði verði sett fyrir þess­ari heim­ild til lán­veit­ingar. Þá kæmi breytt breyt­ing­ar­til­laga inn á milli ann­arrar og þriðju umræðu. Nefndin vildi skoða málið betur og kalla eftir frek­ari skýr­ingum áður en þessi heim­ild yrði veitt,“ segir Páll Magn­ús­son, nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd í sam­tali við Frétta­blaðið.

Á Alþingi liggur fyrir frum­varp, sem er nú til með­ferðar í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, til nýrrar heild­ar­lög­gjafar um póst­þjón­ustu. Þar stendur meðal ann­ars til að afnema einka­rétt Íslands­póst á almennum bréfum. Heim­ildir Frétta­blaðs­ins herma að það frum­varp spili rullu í mál­inu auk þess að mik­illi óvissu sé háð hvort Íslands­póstur geti með nokkru móti end­ur­greitt lánið. Fjárlög fara nú fyrir fjár­laga­nefnd áður en þriðja umræða um það hefst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár