Íslandspóstur tapaði 161 milljón á fyrstu sex mánuðum ársins

Bréfa­send­ingum á Íslandi fækk­aði um 12 pró­sent milli ára. Ófjár­magn­aður kostn­aður Íslands­pósts við fram­kvæmd alþjón­ustu er áætl­aður um 700 millj­ónir króna í ár. Unnið er að því í sam­starfi við stjórn­völd að tryggja fjár­mögnun.

Íslands­póstur tap­aði 161,2 millj­ónum króna á fyrri helm­ingi árs­ins 2018. Það er mik­ill við­snún­ingur frá sama tíma­bili í fyrra þegar fyr­ir­tækið skil­aði 99,1 milljón króna hagn­aði. Þetta kemur fram í hálfs­árs­upp­gjöri Íslands­pósts.

Íslands­póstur reiknar með að tekjur sínar muni drag­ast saman um hátt í 400 millj­ónir króna á árinu 2018 vegna fækk­unar á bréfa­send­ingum. Ófjár­magn­aður kostn­aður við alþjón­ustu var um 600 millj­ónir króna á síð­ast­liðnu ári og áætlað er að hann muni nema um 700 millj­ónum króna á árinu 2018.

[links]Í til­kynn­ingu frá Íslands­pósti vegna afkomu fyr­ir­tæk­is­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins segir að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins vinni nú að því „í sam­vinnu við stjórn­völd að leita leiða til að tryggja fjár­mögnun alþjón­ust­unnar og laga hana að breyttum for­sendum. Nauð­syn­legt er að nið­ur­staða liggi fyrir í þeim efnum á næstu mán­uðum.“

Bréfasendingum fækkað um tólf prósent

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018 fækk­aði bréfa­send­ingum umtals­velt, líkt og þeim hefur gert á hverju ári í langan tíma, og þegar þær eru bornar saman við sama tíma­bil í fyrra nemur sá sam­dráttur um tólf pró­sentum. Í til­kynn­ing­unni segir að afkoma fyr­ir­tæk­is­ins, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hafi versnað um 260 millj­ónir króna á tíma­bil­inu og rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magns­kostnað, skatta og afskriftir lækk­aði um 349 millj­ónir króna. Á sama tíma hafi rekstr­ar­kostn­aður auk­ist um 285 millj­ónir króna á milli ára.

Þar skipti mestu máli að sam­dráttur í bréfa­magni sem sent var hafi verið langt umfram spár.

[adspot]Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að vegna þessa hafi árið 2018 um margt verið Íslands­pósti erfitt. „Fækkun bréfa þýðir minni tekjur sem hefur veru­leg áhrif á rekstur félags­ins. Íslands­póstur sinnir svo­kall­aðri alþjón­ustu­skyldu fyrir ríkið og hefur á móti einka­rétt rík­is­ins á að dreifa árit­uðum bréfum allt að 50 grömmum. Tekjum af einka­rétt­ar­bréf­unum er ætlað að greiða fyrir þá alþjón­ustu sem ekki stendur undir sér, s.s. dreif­ingu í sveitum lands­ins. Nú er svo komið að tekjur af einka­rétti duga ekki til þar sem þær hafa dreg­ist mikið saman með minnk­andi magni. Önnur þjón­usta sem fyr­ir­tækið veitir í sam­keppni hefur því verið að greiða niður hluta alþjón­ust­unnar. Það dugar hins­vegar ekki lengur til og því hefur sax­ast á eigið fé Íslands­pósts sem gengur ekki til lengdar.“

Mikið tap af erlendum sendingum

Íslands­póstur segir að minnk­andi bréfa­magn hafi gert það að verkum að óhjá­kvæmi­legt sé að end­ur­skoða þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins. Undir alþjón­ustu­skyldu rík­is­ins sem Íslands­póstur sinnir fellur m.a. mót­taka, með­höndlun og dreif­ing á send­ingum frá útlöndum. „Mikil aukn­ing hefur verið í net­verslun frá útlöndum á und­an­förnum árum og þá sér­stak­lega frá Kína. Vegna óhag­stæðra alþjóða­samn­inga þar sem Kína er flokkað sem þró­un­ar­ríki fær Íslands­póstur mjög lágt gjald greitt fyrir þessar send­ingar og standa þær greiðslur ein­ungis undir litlum hluta þess kostn­aðar sem fellur til við að með­höndla þær. Mikið tap af þessum erlendu send­ingum, sem Íslandi ber að sinna sam­kvæmt alþjóða­samn­ingum, er stór hluti vand­ans við fjár­mögnun alþjón­ust­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár