Íslenska ríkið greiðir 500 milljónir á ári í póstburðargjöld

Bjarni Bene­dikts­son vill að raf­rænar birt­ingar á til­kynn­ingum hins opin­bera til borg­ara lands­ins verði meg­in­reglan. Við það megi spara fjár­muni, draga úr nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum og bæta þjón­ustu.

Íslenska ríkið greiðir um 500 millj­ónir króna á ári í póst­burð­ar­gjöld vegna bréfa­send­inga til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Þar af nemur árlegur kostn­aður rík­is­ins við að senda út til­kynn­ingar opin­berra gjalda um 120 millj­ónum króna. Tekjur Íslands­pósts af póst­þjón­ustu voru 7,5 millj­arðar króna á árinu 2017. Það þýðir að tæp­lega sjö pró­sent af öllum póst­þjón­ustu­tekjum Íslands­pósts eru vegna póst­burð­ar­gjalda sem ríkið greiðir vegna bréfa­send­inga. Íslands­póstur er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. Ef það hefði ekki greitt hálfan millj­arð króna í póst­burð­ar­gjöld á síð­asta ári hefði Íslands­póstur verið rek­inn með tæp­lega þrjú hund­ruð millj­óna króna tapi á því rekstr­ar­ári. Póst­burð­ar­gjöld Íslands­pósts hafa þre­fald­ast á tíu árum.

Þann 4. maí síð­ast­lið­inn sendi Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, frá sér breyt­ing­ar­til­lögu vegna fyr­ir­hug­aðra laga­breyt­inga á ýmsum laga­á­kvæðum um skatta og gjöld. Í til­lög­unni felst breyt­ing­ar­til­laga vegna raf­rænna birt­ingar álagn­ing­ar­seðla. Þar koma ofan­greindar upp­lýs­ingar um kostnað rík­is­ins af póst­burð­ar­gjöldum fram.

Vill stafræna þjónustugátt

Í til­lögu Bjarna segir að unnið sé að því á vegum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að koma upp staf­rænni þjón­ustu­gátt fyrir hið opin­bera og að auka aðganga almenn­ings að staf­rænni þjón­ustu. Hluti af þeirri þjón­ustu­gátt er póst­hólf þar sem borg­urum lands­ins verður gert fært að nálg­ast öll gögn og erindi frá opin­berum aðilum. Stefnt er að því að síðar verði mögu­legt að senda erindi á allar stofn­anir rík­is­ins í gegnum póst­hólfið og fá til­kynn­ingar þegar ný erindi ber­ast. Þetta kemur fram í breyt­ing­ar­til­lögu vegna raf­rænnar birt­ingar álagn­ing­ar­seðla sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram 4. maí síð­ast­lið­inn.

Í henni segir að póst­hólfið sé nú þegar upp­sett og aðgengi­legt undir mínum síðum á vef­svæð­inu Island.is. „Þrátt fyrir að hafa verið aðgengi­legt í nokkur ár hafa fáar stofn­anir og sveit­ar­fé­lög valið að nýta sér póst­hólfið til að senda bréf og skila­boð til fyr­ir­tækja og almenn­ings. Unnið er að bættri fram­setn­ingu póst­h­ólfs­ins og ein­földun á tækni­legu aðgengi til að laða fleiri stofn­anir og sveit­ar­fé­lög til að nýta sér póst­hólfið. Nota­gildi póst­h­ólfs­ins er háð því hversu margir opin­berir aðilar miðla bréfum og öðrum sam­skiptum í gegnum póst­hólfið. I nýlegu sam­komu­lagi ríkis og sveit­ar­fé­laga er póst­hólfið til­greint sem eitt af sam­eig­in­legum verk­efnum sem unnið verður að á gild­is­tíma fjár­mála­á­ætl­unar.“

Meginreglan að allt verði birt rafrænt

Bjarni segir í skjal­inu að með því að birta skjöl í sam­eig­in­legu staf­rænu póst­hólfi megi spara fjár­muni, draga úr nei­kvæðum umhverf­is­á­hrifum og bæta þjón­ustu.

Öll erindi frá hinu opin­bera verða á einum stað og hægt verður að nálg­ast þau hvar og hvenær sem er. Þó er æski­legt að þeir sem óska þess sér­stak­lega að fá til­kynn­ingar sendar bréf­lega geti fengið þá þjón­ustu. Til þess að hag­ræðið náist ætti meg­in­reglan að verða sú að allar til­kynn­ingar um álagn­ingu skatta og gjalda verði birtar með raf­rænum hætti.“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra óskar eftir því við efna­hags- og við­skipta­nefnd að hún taki til skoð­unar hvort ekki sé unnt að bæta ákvæði við áður­nefnt laga­frum­varp, sem nefndin hefur til með­ferðar, er heim­ili að til­kynn­ingar um álagn­ingu skatta og gjalda verði birtar með raf­rænum hætti. „Taki nefndin jákvætt í beiðni mína er rétt að árétta að það er mik­il­vægt að heim­ildin verði að lögum áður en Alþingi verður frestað í júní næst­kom­andi svo raf­rænar birt­ingar í stað bréfa­send­inga geti haf­ist sem fyrst á þessu ári,“ segir Bjarni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár