Íslandspóstur fái milljarð til viðbótar í lán frá ríkinu

Íslands­póstur þarf að fá allt að einum og hálfum millj­arði í fyr­ir­greiðslu frá rík­inu en fyr­ir­tækið hefur þegar fengið vil­yrði fyrir 500 millj­ónum. Lána­línur við­skipta­banka Íslands­pósts hafa þegar verið full­nýttar.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar mun leggja til að lán til Íslands­pósts nemi 1.500 millj­ónum króna í stað 500 líkt og fyr­ir­tækið hefur þegar fengið vil­yrði fyrir. Að und­ir­lagi Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, verður til­laga þess efnis lögð fram sem breyt­ing­ar­til­löga við fjár­lög. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Samkvæmt minn­is­blaði frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu til fjár­laga­nefndar sem Frétta­blaðið hefur undir hönd­unum mun fyr­ir­greiðsla rík­is­sjóðs ein­göngu bein­ast að lausa­fjár­vanda félags­ins en ekki liggur fyrir hvort hann sé eina orsök rekstr­ar­vanda félags­ins. Fram kemur að það stefni í óvið­un­andi rekstr­ar­af­komu hjá Íslands­póst á þessu ári og unnið sé að grein­ingu á orsökum vand­ans. Þá segir í minn­is­blað­inu að í stað láns geti verið um aukn­ingu eigin fjár að hluta eða öllu leyti að ræða enda kunni það að tryggja best hags­muni fyr­ir­tæk­is­ins og rík­is­sjóðs sem eig­anda. Því verði auk heim­ildar til lán­veit­ingar veitt heim­ild til að auka eigið fé félags­ins.

Lána­línur við­skipta­banka félags­ins þegar verið full­nýttar og ekki er mögu­legt að fá frek­ari fyr­ir­greiðslu þar, segir í minn­is­blað­inu.

Lítið er vikið að ástæðum lausa­fjár­vand­ans í minn­is­blað­inu sam­kvæmt Frétta­blað­inu en breyt­ingar á ein­stökum þáttum umfram áætl­anir eins og fækkun bréfa undir 50 grömmum, sem Íslands­póstur hefur einka­rétt á, og launa­breyt­ingar gefi til kynna að við­bót­ar­fjár­þörf gæti numið allt að einum millj­arði umfram þann hálfa millj­arð sem fjallað er um í frum­varpi til fjár­auka­laga.

Íslands­póst­ur ofrukk­að við­skipta­vini

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda segir í sam­tali við Frétta­blaðið að hann geti ekki séð hvernig rekstr­ar­vandi Íslands­pósts geti ein­göngu verið stöð­unni í einka­rétt­inum að kenna. Hann bendir á að í síð­ustu viku hafi Póst- og fjar­skipta­stofnun synjað fyr­ir­tæk­inu um heim­ild til gjald­skrár­hækk­ana enda afkoman í einka­rétt­inum talin ágæt og sam­kvæmt nýlegum úrskurði úrskurð­ar­nefndar fjar­skipta- og póst­mála hafi umfram­hagn­aður félags­ins í einka­rétt­inum numið 16 pró­sentum á árinu 2016, sem þýði að Íslands­póstur hafi ofrukkað við­skipta­vini.

„Við erum algjör­lega sann­færð um að það eru rangar ákvarð­anir og fjár­fest­ingar á sam­keppn­is­hlið­inni sem ráða mjög miklu um þessa stöðu,“ segir Ólafur og hvetur fjár­laga­nefnd ein­dregið til að fara ræki­lega yfir ákvarð­anir stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins, upp­bygg­ingu allt of dýrs dreifi­kerfis og margs konar sam­keppn­is­rekstur sem félagið hafi ekki átt neitt erindi í og engum árangri hafi skilað.

„Það fer að verða áleitin spurn­ing hver ætlar að axla ábyrgð á þeim röngu ákvörð­unum sem leiddu til þess­arar stöðu. Er það for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, er það stjórnin eða er það ráð­herra?“ spyr Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár