Íslandspóstur fjárfest fyrir milljarða í rekstur á samkeppnismarkaði

Íslands­póstur hefur varið nær sex millj­örðum í fjár­fest­ingar í fast­eignum, tækjum og bif­reiðum frá árinu 2006. Fyr­ir­tækið hefur farið fram á 1,5 millj­arða neyð­ar­lán frá rík­inu. Íslands­póstur er opin­bert hluta­fé­lag en starfar á sam­keppn­is­mark­aði.

Frá árinu 2006 hefur Íslands­póstur varið rúm­lega 5,8 millj­örðum króna í fjár­fest­ingar í fast­eignum, lóðum, áhöldum, tækjum og bif­reiðum. Á móti hafa eignir fyrir rúmar 600 millj­ónir króna verið seldar. Nettófjár­fest­ing á tíma­bil­inu er því rúmir fimm millj­arðar króna. Þetta má lesa úr árs­skýrslum Íslands­pósts frá árinu 2006 til dags­ins í dag og frá þessu er greint í umfjöllun Frétta­blaðs­ins í dag.

Ef síð­ustu tvö ár eru skoðuð má sjá að nettófjár­fest­ingar tíma­bils­ins nema rúmum millj­arði króna. Við það bæt­ast á þessu ári minnst 700 millj­ónir króna vegna stækk­unar flutn­inga­mið­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins að Stór­höfða. Langstærstan hluta fjár­fest­inga und­an­far­inna ára má rekja til nýrra tækja og bif­reiða sam­kvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins

Á árunum 2005 og 2006 tók Íslands­póstur ákvarð­anir um að stækka hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á almennum flutn­inga­mark­aði en fyr­ir­tækið er einnig í sam­keppni þegar kemur að dreif­ingu aug­lýs­inga­blaða, bæk­linga og sölu á prent­vörum og ýmiss konar smá­vöru. Samtímis þessu hafa stöðu­gildi Íslands­póst fjölgað um tæp­lega níu­tíu stöðu­gildi frá árinu 2014, þar af um rúm­lega fjöru­tíu milli áranna 2016 og 2017, og launa­kostn­aður hækkað um 1,4 millj­arða króna.

Benda á tap Íslandspósts vegna láns til dótturfélaga

[links]Meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði til að Íslands­pósti yrði veitt neyð­ar­lán upp á 1,5 millj­arð króna sem var millj­arða við­bót­ar­lán við þeim 500 millj­ónum sem félagið hafði nú þegar fengið vil­yrða fyrir. Við­skipta­banki Íslands­póst hafði lokað á frekar skamm­tíma­lán­veit­ingar og lán rík­is­ins átti að koma í veg fyrir að fyr­ir­tækið færi í þrot. Tilkynnt hefur verið að bág rekstr­ar­staða félags­ins megi rekja til sam­dráttar í tekjum af alþjón­ustu og hversu langan tíma það hefur tekið fyrir Póst- og fjar­skipta­stofnun að taka ákvarð­anir um gjald­skrár­breyt­ingar. Sú breyt­ing­ar­til­laga meiri­hluta fjár­laga­nefndar var hins vegar dregin til baka og liggur nú til skoð­unar í fjár­laga­nefnd.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins kemur hins vegar fram að eft­ir­lits­að­ilar hafa bent á að slæma rekstr­ar­stöðu Íslands­pósts sé ekki aðal­lega að rekja til auk­ins kostn­aðar við alþjón­ustu. Í athuga­semdum Póst- og fjar­skip­sta­stofn­unnar við skýrslu um rekstr­ar­skil­yrði Íslands­pósts, frá árinu 2014, er meðal ann­ars bent á að hund­ruð millj­óna hafi tap­ast vegna lán­veit­inga til dótt­ur­fé­laga Íslands­pósts í sam­keppn­is­rekstri. Íslands­póstur, m.a. vegna fjár­fest­ingu í prent­smiðju Sam­skipta og láns til ePósts dótt­ur­fé­lags Íslands­pósts.

Vill úttekt á Íslandspósts

Fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, Ólafur Steph­ens­sen, telur nauð­syn­legt að unnin verði óháð úttekt á því hvernig sam­keppn­is­rekstri Íslands­pósts ohf. hefur verið háttað. Áður hefur Willum Þór Þórsson, for­maður fjár­laga­nefndar, sagt að til greina komi að gera slíka úttekt. Ólafur telur að ef ráð­ist verður í úttekt þá yrði að fá utan­að­kom­andi aðila til verks­ins. Hann bendir á að Póst- og fjar­skipta­stofnun telji það ekki sitt hlut­verk að rann­saka slíkt og þá er Rík­is­end­ur­skoðun van­hæf þar sem stofn­unin end­ur­skoði reikn­inga Íslands­pósts.

„Við höfum verið gagn­rýnin á þetta mál. Okkur finnst nauð­syn­legt að áður en Alþingi ákveður hvort þessir pen­ingar verða lán­aðir eða lagðir í fyr­ir­tækið, því það er alls óvíst að hægt sé að greiða þá til baka, liggi fyrir hvernig Íslands­póstur hefur hagað sér í sam­keppn­is­rekstri og hve miklu fyr­ir­tækið hefur tapað á þeim ævin­týrum sínum,“ segir Ólafur Steph­en­sen í sam­tali við Frétta­blaðið

Starf­semi Íslands­póst sem fellur undir sam­keppni er um sex­tíu pró­sent af starf­semi félags­ins en sá hluti starf­semi Íslands­póst lítur ekki gjald­skrár­eft­ir­liti Póst og fjar­skipta­stofn­unar sam­kvæmt athuga­semdum stofn­un­ar­innar. Samkvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins liggur fyrir sátt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Íslands­pósts frá síð­asta ári um aðgerðir til að styrkja sam­keppn­is­að­stæður á póst­mark­aði. Í sátt­inni við­ur­kenndi Íslands­póst engin brot og var ekki gerð sekt af hálfu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins en þurfti að breyta ýmsu í verk­lagi og nefnd var sett til að hafa eft­ir­lit með sátt­inni. Hana skipa þrír, einn til­nefndur af Íslands­póst og tveir óháðir. Annar þeirra óháðu sat á árunum 2014-2017 með Ingi­mundi Sig­ur­páls­syni, for­stjóra Íslands­póst, í stjórn Isavia og er nú vara­maður í stjórn. Samkvæmt Frétta­blað­inu.

„Það er mjög áleitin spurn­ing hvort eig­enda­stefnu rík­is­ins vegna opin­berra hluta­fé­laga sé ekki ábóta­vant. Þar segir að stjórnir slíkra félaga skuli leit­ast við að efla sam­keppni en stjórn Íslands­pósts virð­ist mis­skilja það sem svo að fyr­ir­tækið skuli fara í sam­keppni við allt sem hreyf­ist,“ segir Ólafur og bendir á að fyr­ir­tækið selji sæl­gæti, bækur og minja­vöru, dótt­ur­fyr­ir­tæki þess vinni að hug­bún­að­ar­gerð og annað sé í prent­þjón­ustu. Þá sé fyr­ir­tækið á fullu í frakt-, flutn­inga- og send­la­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

póstuirnn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár