Frumvarp ráðherra heimilar sérstakt gjald á viðtakendur erlendra póstsendinga

Verði frum­varp sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra um síð­ari breyt­ingar á póst­lögum að lögum mun það leiða til auk­ins kostn­aðar þeirra sem eiga við­skipti við erlendar net­versl­anir en draga úr kostn­aði Íslands­pósts.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhannesson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um póstþjónustu. Breytingarnar fela meðal annars í sér að heimila Íslandspósti að setja gjaldskrá fyrir erlendar póstsendingar sem mæta á raunkostnaði við sendingarnar. Verði frumvarpið að lögum mun það því leiða til aukins kostnaðar þeirra sem versla við erlendar netverslanir.

Í frumvarpinu er einnig lagt til að rekstarleyfishafa verði veitt heimild til að senda rafrænar upplýsingar til erlendra tollyfirvalda, flutningsaðila eða póstrekenda erlendis til að auðvelda flutning póstsendinga milli landa. Í greinargerð frumvarpsins segir að verði frumvarpið að lögum mun það hafa áhrif á afkomu Íslandspósts og mögulega ríkissjóðs.

Heimilt að leggja á sérstakt gjald á viðtakendur erlendra póstsendinga

[links]Íslands­póstur, sem er í eigu ríksins og sinnir alþjónustuskyldu, tap­aði 293 millj­ónum á árinu 2018 en hagn­aður fyrirtækisins var 216 millj­ónir árið á und­an. Fjár­hags­staða Íslands­pósts hefur verið var­huga­verð um nokkurn tíma. Í sept­em­ber í fyrra leit­aði Íslands­póstur á náðir rík­is­ins og fékk 500 millj­ónir króna að láni til að bregð­­ast við lausa­­fjár­­skorti eftir að við­­skipta­­banki þess, Lands­­banki Íslands, hafði lokað á frek­­ari lán­veit­ing­­ar. Nokkrum mán­uðum síð­­­ar, í des­em­ber, sam­­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­­arð til við­­bót­­ar.

Fram hefur komið af hálfu Íslandspósts að hluti af þeim fjárhagsvanda sem fyrirtækið stendur nú frammi fyrir sé tilkominn vegna þeirrar skyldu fyrirtækisins að sinna alþjóðlegum skuldbindingum ríkisins. [adspot]

Ísland er aðili að Alþjóðapóstsambandinu og þar með þjóðréttarlega bundið af samþykktum sambandsins, meðal annars hvað varðar endastöðvargjöld. Endastöðvargjöld eru gjöld sem rekstarleyfishafa er heimilt að innheimta af erlendum póstrekendum fyrir vinnslu og dreifingu bréfa frá útlöndum. Flest iðnríki fá hins vegar mun lægri endastöðvargjöld vegna ákvæða samningsins. Samkvæmt greinargerð frumvarpsins veldur það því að tekjur af endastöðvargjöldum eru í mörgum tilfellum langt frá því að standa undir raunkostnaði við móttöku, söfnun, flokkun, flutning og skil á póstsendingum.

Íslandspóstur hefur því bent á að kostnaður fyrirtækisins vegna erlendra póstsendinga hefur aukist gríðarlega síðustu ár og nemur um 500 milljónum króna á ári. Neytendur greiða í dag einungis þriðjung sendingarkostnaðar frá Kína þar sem Kína er enn skilgreint sem þróunarland.

Koma í veg fyrir að skattfé verði notað til að niðurgreiða sendingar frá útlöndum

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að því þyki ráð­herra nauð­syn­legt að leggja fram þær breyt­ingar á lögum sem taki mið af óbættum raun­kostn­aði við gjald­töku vegna erlendra pakka­send­inga, óháð ákvæðum um enda­stöðv­ar­samn­inga. Verði frum­varpið að lögum verður rekstr­ar­leyf­is­hafa, sem nú er Íslands­póstur, heim­ilt að leggja sér­stakt gjald á við­tak­endur erlendra póst­send­inga.

Þá segir jafn­framt að mark­miðið með frum­varp­inu sé í raun að verja stöðu rík­is­sjóðs til fram­tíðar litið og koma í veg fyrir að skattfé verði notað til að nið­ur­greiða kostnað vegna send­inga frá útlöndum. Auk þess telji ráðu­neytið að breyt­ingin muni hafa jákvæð áhrif á sam­keppn­is­stöðu inn­lendrar versl­unar gagn­vart erlendum net­versl­unum.

Í frum­varp­inu er auk þess kveðið á að rekstr­ar­leyf­is­hafi geti ekki farið þess á leit við Póst- og fjar­skipta­stofnun að honum verði með fjár­fram­lögum tryggt end­ur­gjald fyrir þjón­ustu vegna erlendra póst­send­inga.

Nettótekjur Íslandspósts gætu aukist um 400 milljónir króna

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að frum­varpið sé einnig til­komið vegna kröfu frá erlendum ríkjum um að fá sendar tolla­upp­lýs­ingar raf­rænt til flýta fyrir toll­með­ferð. Til að bregð­ast við þeim kröfum þykir ráð­herra mik­il­vægt að í póst­lögum verði heim­ild til að senda og taka við raf­rænum skeytum með tengi­upp­lýs­ingum um send­anda, við­tak­anda og inni­hald póst­send­inga. Sé slík heim­ild ekki fyrir hendi getur það leitt til þess að póstur frá Íslandi sæti miklum töfum í ákvörð­un­ar­landi og verði jafn­vel stöðv­aður.

Jafn­framt segir í grein­ar­gerð­inni að ákvæði frum­varps­ins sem varða raf­rænar send­inga muni leiða til þess að mögu­lega verði hægt að draga úr kostn­aði rekst­ar­leyf­is­hafa hvað varðar send­ingu til og frá land­inu. Þá segir að ef frum­varpið verði að lögum og taki gild fyrir 1. maí næst­kom­andi gætu nettó­tekjur rekst­ar­leyf­is­hafa auk­ist um 400 millj­ónir króna fyrir árið 2019.

Frumvarpið mun líklega hafa víðtæk áhrif á rekstur Íslandspósts

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, sagði starfi sínu lausu sem for­stjóri eftir fjórtán ára starf í síðustu viku. Í yfir­lýs­ingu frá Ingimundi sagði að frum­varp Sigurðs Inga um breytingar á póstlögum taki á lagaum­hverfi póst­þjón­ust­unnar og mik­il­vægt sé að nýr for­stjóri komi að og fái svig­rúm til að leiða póst­þjón­ust­una inn í nýja tíma.

„Með nýjum póstlögum verða miklar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi póst­þjón­ust­unnar og munu þau mjög lík­lega hafa víð­tæk áhrif á rekstur Íslands­pósts. Frum­varpið gerir ráð fyrir afnámi einka­réttar rík­is­ins á dreif­ingu árit­aðra bréfa og þar er jafn­framt opnað fyrir mögu­leika á fjármögnun á þeim hluta lög­bund­innar póst­þjón­ustu, sem ekki stendur undir kostn­aði tengdum henni. Mik­il­vægt er að nýr for­stjóri fái mögu­leika á því að koma að og mótaund­ir­bún­ing nauð­syn­legra breyt­inga, sem óhjá­kvæmi­lega fylgja gild­is­töku hinna nýju laga í ársbyrjun 2020, og hafi þá jafn­framt mögu­leika á að fylgja þeim eft­ir,“ sagði Ingimundur.

Sigurður Ingi hefur einnig mælt fyrir frumvarpi nýrra heildarlaga um póstþjónustu á yfirstandandi þingi en samkvæmt frumvarpinu er fyrirhugað að afnema einkarétt ríkisins á póstmarkaði og koma á samkeppni í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

póstuirnn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár