Laun forstjóra Íslandspósts hækkuðu tvisvar í fyrra og um 43 prósent á innan við ári

Alls hafa laun Ingi­mundar Sig­ur­páls­sonar, for­stjóra Íslands­pósts, hækkað um 43 pró­sent í yfir tvær millj­ónir króna á mán­uði frá því að ákvörðun um þau var færð undan kjara­ráði. Ingi­mundur telur hækk­an­irnar samt ekki í sam­ræmi við ráðn­ing­ar­samn­ing sinn.

Ingimundur Sigurpálsson er forstjóri Íslandspósts.
Ingi­mundur Sig­ur­páls­son er for­stjóri Íslands­pósts. Mynd: Skjáskot

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Íslands­pósts, hækk­aði tví­vegis í launum á árinu 2018. Fyrst hækk­uðu laun hans í 1.992 þús­und krónur á mán­uði fyrsta jan­úar 2018 og svo aftur um þrjú pró­sent 1. maí sama ár. Eftir það voru laun hans 2.052 þús­und krónur á mán­uði.

[links]Laun Ingi­mundar hafa hækkað um tæp 43 pró­sent frá miðju ári 2017, þegar ákvörðun um laun hans var færð frá kjara­ráði til stjórnar Íslands­pósts.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svar­bréfi sem for­maður stjórnar Íslands­pósts sendi Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hagsáð­herra, vegna óska hans um upp­lýs­ingar um hvernig stjórn Íslands­pósts hafi brugð­ist við til­mælum fyr­ir­renn­ara Bjarna í starfi um að sýna hóf­semi við ákvörðun launa og starfs­kjara for­stjóra.

Ingi­mundur er einnig stjórn­ar­for­maður Isavia, sem einnig er í eigu rík­is­ins. Kjarninn greindi frá því í morgun að stjórn þess fyr­ir­tækis hafi hækkað heild­ar­laun Björns Óla Hauks­­son­­ar, for­­stjóra Isavia, um 43,3 pró­sent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjara­ráði árið 2017 til stjórn­ar ­fyr­ir­tæk­is­ins á ný.

Taldi launin ekki í samræmi við ráðningarsamning

Í bréfi stjórn­ar­for­manns Íslands­pósts, Bjarna Jóns­sonar, segir að stjórn Íslands­pósts hafi á árinu 2017 aflað sér úttektar frá fyr­ir­tæk­inu Interllecta ehf. um hver laun for­stjóra fyr­ir­tækja almennt væru „í því skyni að fá við­mið um hver væru laun for­stjóra á almennum vinnu­mark­aði og þar talin sam­keppn­is­hæf.“

[adspot]Samkvæmt skýrslu sem Intellecta skil­aði til til stjórn­ar­innar í apríl 2017 var nið­ur­staðan sú að mán­að­ar­laun í sam­bæri­legu fyr­ir­tæki og Íslands­póstur væru á bil­inu 2.717 til 3.601 þús­und krónur á mán­uði. „Stjórn félags­ins ákvað á fundi sínum þann 20.12.17. að laun for­stjóra skyldu hækka úr 1.436 þkr. í 1.795 þkr. frá og með 01.07.17. og 1.992 þkr. frá 01.01.18. Síðan þá hafa laun for­stjóra hækkað um 3,0 % frá 1. maí 2018 í sam­ræmi við ákvæði ráðn­ing­ar­samn­ings og kjara­samn­inga um launa­breyt­ingar á almennum vinnu­mark­aði.“

Ingi­mundur taldi að ákvörðun stjórn­ar­innar um laun hans hefði ekki verið í sam­ræmi við ákvæði ráðn­ing­ar­samn­ings hans og stjórnar frá því í nóv­em­ber 2004 og lét bóka þá afstöðu sína á stjórn­ar­fundi þann 29. jan­úar 2018.

Á fundi stjórnar Íslands­pósts sem hald­inn var 9. apríl 2018 var sam­þykkt að fela Ingi­mundi að láta taka saman grein­ar­gerð um þróun launa sinna í sam­an­burði við launa­þróun og þróun launa við­mið­un­ar­hópa frá því fyrir gild­is­töku laga um breyt­ingu kjara­ráði, sem sett voru árið 2009 og fólu í sér að allir rík­is­for­stjórar ættu að vera með lægri laun en þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir. Stjórn Íslands­pósts sendi Bjarna grein­ar­gerð frá ann­ars vegar Intellecta, dag­setta í maí 2018, og grein­ar­gerð frá Gísla Gísla­syni-Launa­ráð­gjöf, dag­sett í sama mán­uði, en þær voru ekki birtar með bréfi stjórn­ar­for­manns Íslands­pósts.

Þess má geta að vara­for­maður stjórnar Íslands­pósts er Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, til margra ára.

Þarf allt að 1,5 milljarði króna frá ríkinu

Fjár­hags­staða Íslands­pósts hefur verið afar var­huga­verð um nokkurn tíma. Í sept­em­ber í fyrra leit­aði Íslands­póstur á náðir rík­is­ins og fékk 500 millj­ónir króna að láni til að bregð­ast við lausa­fjár­skorti eftir að við­skipta­banki þess, Lands­banki Íslands, hafði lokað á frek­ari lán­veit­ing­ar. Nokkrum mán­uðum síð­ar, í des­em­ber, sam­þykkti Alþingi að lána fyr­ir­tæk­inu allt að millj­arð til við­bót­ar.

Í umsögn Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­un­ar, um auka fjár­veit­ingu rík­is­ins til Íslands­pósts, sagði að ­­­Rík­­­­is­end­­­­ur­­­­skoðun teldi að það væri óheppi­­­­legt að ekki liggi nákvæm­­­­lega fyrir hvernig fyr­ir­hugað sé að taka á rekstr­­­­ar­­­­vanda Íslands­­­­­­­pósts þannig að til­­­­skil­inn árangur náist áður en tekin er ákvörðun um fram­lög úr rík­­­­is­­­­sjóði til félags­­­­ins. Þá væri orsök fjár­­hags­vand­ans alls ógreind, ekki lægi fyrir hvort hann stafi af sam­keppn­is­­rekstri eða starf­­semi innan einka­rétt­­ar.

Fjár­laga­nefnd Alþingis sam­þykkti því í jan­úar á þessu ári beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­anda um að unnin yrði stjórn­sýslu­út­tekt á starf­semi Íslands­pósts.

Fjárfestingar og jeppakaup

Frá árinu 2006 hefur Íslands­­­póstur varið rúm­­lega 5,8 millj­­örðum króna í fjár­­­fest­ingar í fast­­eign­um, lóð­um, áhöld­um, tækjum og bif­­reið­­um. Á móti hafa eignir fyrir rúmar 600 millj­­ónir króna verið seld­­ar. Nettófjár­­­fest­ing á tíma­bil­inu er því rúmir fimm millj­­arðar króna.

Árið 2015 greidd­i Ís­lands­póstur 29,5 millj­ónir króna fyrir fimm jeppa og einn fólks­bíl sem for­stjóri og fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tæk­is­ins hafa til umráða sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ing­um. Í svari Íslands­póst við fyr­ir­spurn DV í fyrra sagði að fyr­ir­tækið hafi á að skipa öfl­ug­u ­stjórn­enda­teymi og það eigi við um stjórn­endur sem og aðra starfs­menn ­fyr­ir­tæk­is­ins, að það verði að vera sam­keppn­is­hæft í launum til að eiga kost á að laða til síns hæfa starfs­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár