Laun forstjóra Isavia hækkuðu um rúm 43 prósent

Heild­ar­laun Björns Óla Hauks­son­ar, for­stjóra Isavia, hafa hækkað um 43,3 pró­sent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjara­ráði árið 2017 til stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Mán­að­ar­laun for­stjór­ans hækk­uðu um rúm 750 þús­und á tæpu ári.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
Björn Óli Hauksson, for­stjóri Isavia Mynd: Aðsend mynd

Heild­ar­laun Björns Óla Hauks­son­ar, for­stjóra Isavia, hafa hækkað um 43,3 pró­sent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjara­ráði árið 2017 til stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins á ný. Launin hafa því hækkað úr 1.748.000 krónum á mán­uði í nóv­em­ber 2017 í 2.504.884 í maí 2018. Þetta kemur fram í svari Isavia við fyr­ir­spurn fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um hvernig fyr­ir­tækið hefði brugð­ist við til­mælum sem beint var til fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu í jan­úar 2017 er varðar launa­á­kvarð­anir og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið óskaði eftir upplýsingunum

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi 12. febr­úar síð­ast­lið­inn bréf til stjórna fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu og Banka­sýslu rík­is­ins þar sem óskað var upp­lýs­ingum launa­á­kvarð­anir og starfs­kjör fram­kvæmda­stjóra. Í bréf­inu var fyr­ir­tækj­unum gef­inn viku­frestur til að svara. Isavia var meðal þeirra fyr­ir­tækja en Isaiva er opin­bert hluta­­fé­lag og að öllu leyti í eigu íslenska rík­­is­ins. Félagið ann­­ast rekstur og upp­­­bygg­ingu allra flug­­valla á Íslandi auk þess sem það stýrir flug­um­ferð á íslenska flug­­­stjórn­­­ar­­svæð­inu.

Í svari Isavia við fyr­ir­spurn ráðu­neyts­ins segir að í byrjun árs 2017 barst stjórn Isavia bréf frá fjár­mála og efna­hags­ráðu­neyt­inu varð­andi ákvörðun launa­kjör for­stjóra fyr­ir­tæks­ins. Í bréf­inu var bent á þá skyldu stjórnar að við ákvörðun launa og starfs­kjara yrði almennt fylgt ákvæðum eig­enda­stefnu rík­is­ins um að félög í eigu rík­is­ins settu sér hóf­lega en sam­keppn­is­hæfa launa­stefnu sem sé ekki leið­andi. Í kjöl­farið afl­aði stjórn Isavia úttektar hjá ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu Intellecta sem sér­hæfir sig í að kanna launum for­stjóra fyr­ir­tækja í því skyni að fá fram við­mið til að vinna út frá við ákvörðun launa. Intellecta skil­aði mati sem byggði á fyr­ir­tækjum með svip­aða veltu og fjár­hags­lega stjórn­unará­byrgð og Isavia og nið­ur­staðan var sú að laun for­stjóri í sam­bæri­legu fyr­ir­tæki væru á bil­inu 3,1 til 4,1 milljón króna.

Stjórn Isavia leit svo á að hækkun í neðstu mörk mats Intellica væri of mikil í einu skrefi og ekki í sam­ræmi við eig­enda­stefnu og til­mæli um var­kárni við ákvörðun launa, segir í bréf­inu. Á fundi stjórnar 26. sept­em­ber 2017, sam­þykkti stjórnin að fela for­manni að end­ur­nýja ráðn­ing­ar­samn­ing við for­stjóra í sam­ræmi við sam­þykkt til­lögu starfs­kjara­nefnd­ar­innar. Á fundi stjórnar þann 2. nóv­em­ber 2017 sam­þykkti stjórnin nýjan ráðn­ing­ar­samn­ing þar sem laun for­stjóra félags­ins voru ákveðin 2.380.000 krónur frá og með 1. júlí 2017. Fyrir voru laun for­stjóra 1.748.000 og nam launa­breyt­ingin því 36,1 pró­sent. Samhliða því var ákveðið í sam­ræmi við ákvæði starfs­kjara­stefnu Isavia og ráðn­ing­ar­samn­ing for­stjóra félags­ins að end­ur­meta laun for­stjóra á árinu 2018. Á stjórn­ar­fundi 20. des­em­ber 2018 var síðan sam­þykkt til­laga starfs­kjara­nefndar um að laun for­stjóra skyldu hækka um 2,3 pró­sent frá 1. jan­úar 2018 og um 3 pró­sent frá l. maí 2018 í sam­ræmi við ákvæði almenn­ara kjara­samn­inga. Heild­ar­laun for­stjóra Isavia hafa því hækkað alls um 43,4 pró­sent frá því ákvörðun launa var færð kjara­ráði árið 2017 og til dags­ins í dag.

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að auk þess að byggja á launa­á­kvörð­un­ina á fram­an­greindri ráð­gjöf Intellecta þá tók stjórnin mið af ákvörðun kjara­ráðs á tíma­bil­inu 2013 til 2017 með hækkun launa aðila sem féllu undir úrskurð­ar­svið ráðs­ins. For­stjóri Isavia er eins og fyrr segir Björn Óli Hauksson en hann hefur gegnt starf­inu frá upp­hafi rekstrar árið 2018.

Ráðu­­neytið bað um var­kárni

Fyrir liggur að stjórn­­völd ótt­uð­ust launa­skrið hjá æðstu stjórn­­endum fyr­ir­tækja í opin­berri eigu í kjöl­far þess að ákvörð­un­­ar­­vald yfir launum þeirra var fært frá kjara­ráði. Í bréfi sem fjár­­­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­­neytið sendi stjórnum fyr­ir­tækja í rík­­­­i­s­eigu og Banka­­­­sýslu rík­­­­is­ins í jan­úar 2017 var þeim til­­­­­­­mælum beint til þeirra að stilla öllum launa­hækk­­­­unum for­­­­stjóra í hóf eftir að ákvarð­­­­anir um laun þeirra færð­ust undan kjara­ráði um mitt ár í fyrra. Þar stendur að ástæða hafi verið til þess að „vekja sér­­­­staka athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hafi í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöð­ug­­­­leika á vinn­u­­­­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­­­­bandi. Æski­­­­legt er að launa­á­kvarð­­­­anir séu var­kár­­­­ar, að forð­­­­ast sé að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­­­­þró­un.“

Af­­­rit af bréf­inu var sent til allra stjórn­­­­anna dag­inn áður en að ný lög um kjara­ráð, sem færðu launa­á­kvörð­un­­­­ar­­­­vald frá ráð­inu til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Þá fund­aði Bene­dikt Jóhann­es­­­son, þáver­andi fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, með for­­­mönnum stjórna stærri félaga þann 10. ágúst 2017 og var þar farið yfir efni bréfs­ins. Hægt er að lesa það hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár