Ingimundur hættir hjá Íslandspósti

For­stjóri Íslands­pósts hættir eftir fjórtán ára starf.

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, hefur sagt starfi sínu lausu sem for­stjóri eftir fjórtán ára starf.

Í yfir­lýs­ingu frá Ingi­mundi segir hann að frum­varp sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu­ráð­herra, hefur mælt fyrir, taki á lagaum­hverfi póst­þjón­ust­unnar og mik­il­vægt sé að nýr for­stjóri komi að og fái svig­rúm til að leiða póst­þjón­ust­una inn í nýja tíma.

Eins og greint var frá fyrr í dag, tap­aði Íslands­póstur 293 millj­ónum króna í fyrra, sem var um 500 millj­ónum lak­ari afkoma en árið á undan.

Launa­skrið hjá Íslands­pósti hefur verið afar umdeilt, en laun Ingi­mundar hækk­uðu um 43 pró­sent á einu ári. Fjallað var ítar­lega um það í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans 6. mars síð­ast­lið­inn.

Yfir­lýs­ing Ingi­mundar fer hér að neðan:

„Sam­göngu­ráð­herra hefur á Alþingi mælt fyrir frum­varpi að nýjum lögum um póst­þjón­ustu.
Með nýjum póst­lögum verða miklar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi póst­þjón­ust­unnar og munu
þau mjög lík­lega hafa víð­tæk áhrif á rekstur Íslands­pósts. Frum­varpið gerir ráð fyrir afnámi
einka­réttar rík­is­ins á dreif­ingu árit­aðra bréfa og þar er jafn­framt opnað fyrir mögu­leika á
fjár­mögnun á þeim hluta lög­bund­innar póst­þjón­ustu, sem ekki stendur undir kostn­aði
tengdum henni. Mik­il­vægt er að nýr for­stjóri fái mögu­leika á því að koma að og móta
und­ir­bún­ing nauð­syn­legra breyt­inga, sem óhjá­kvæmi­lega fylgja gild­is­töku hinna nýju laga í
árs­byrjun 2020, og hafi þá jafn­framt mögu­leika á að fylgja þeim eftir.
Það hefur verið mjög áhuga­vert, gef­andi og krefj­andi að koma að rekstri Íslands­pósts
und­an­farin fjórtán ár. Á ýmsu hefur gengið í rekstri félags­ins á þessu tíma­bili, einkum eftir
efna­hags­hrunið 2008, en í kjöl­far þess hefur bréfum fækkað veru­lega. Á sama tíma hefur
verið unnið að viða­miklum breyt­ingum á rekstri félags­ins, sem fylgt hafa miklum sam­drætti í
bréfa­send­ingum á sama tíma og pökkum og þyngri send­ingum hefur fjölgað umtals­vert. Þá
hefur veru­leg hag­ræð­ing náðst með marg­vís­legum umbótum í rekstri félags­ins sem og
fækkun póst­af­greiðslna og dreif­ing­ar­stöðva jafn­hliða end­ur­bótum á allri aðstöðu fyrir
við­skipta­vini og starf­menn fyr­ir­tæk­is­ins.

Á þessum tíma­mótum er mér efst í huga þakk­læti fyrir að hafa fengið tæki­færi til þess að
vinna hjá traustu og öfl­ugu fyr­ir­tæki með starfs­stöðvar um allt land og í víð­tækum
alþjóð­legum sam­skiptum. Það er ómet­an­legt að hafa átt kost á að vinna með kraft­miklu og
frá­bæru fólki, sem hefur lagt sig fram um að vinna af vand­virkni og heil­indum og skila
fram­úr­skar­andi starfi. Ég er þakk­látur fyrir það sem áunn­ist hefur og þó að enn hafi ekki
tek­ist að ná fram fullri við­ur­kenn­ingu á því að stærsti við­skipta­vinur Íslands­pósts greiði fyrir
þá þjón­ustu, sem fyrir hann er sinnt, þá vænti ég þess og treysti að með nýjum póst­lögum
verði vel fyrir því séð. Ég þakka sam­starfs­fólki ómet­an­leg sam­skipti og fram­úr­skar­andi
sam­starf og sömu­leiðis þakka ég stjórn­ar­mönnum félags­ins í áranna rás fyrir góða sam­vinnu,
traust og stuðn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár