Tap Íslandspósts 293 milljónir í fyrra

Megin ástæða meira taps Íslands­pósts en reiknað var með, er sú að verð­breyt­ingar urðu ekki á grunnu­þjón­ustu og sam­dráttur varð meiri í bréfa­send­ingum en reiknað var með. Fyr­ir­komu­lag fjár­mögn­unar grunn­þjón­ustu verður að breyt­ast, segir for­stjór­inn.

Íslands­póstur tap­aði 293 millj­ónum á árinu 2018 en hagn­aður var 216 millj­ónir árið á undan. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, segir í til­kynn­ingu að meg­in­á­stæða taps­ins sé sam­dráttur í bréfa­send­ingum og að verð­breyt­ingar hafi ekki orðið á grunn­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins, eins og að var stefnt.

Rekstr­ar­hagn­aður sam­stæð­unnar fyrir afskriftir, EBITDA, nam um 71 milljón og er EBITDA hlut­fallið 0,8 pró­sent en var um 8,3 pró­sent árið áður.

Ingi­mundur segir í til­kynn­ingu að mun­ur­inn á afkomu fyr­ir­tæk­is­ins, í sam­an­burði við áætlun, hafi verið tæp­lega 500 millj­ónir króna.

„Fjár­hags­leg afkoma Íslands­pósts var önnur en að var stefnt á árinu 2018. Meg­in­for­sendur
fjár­hags­á­ætl­unar árs­ins gengu eftir að öðru leyti en því, að verð­breyt­ingar á
einka­rétt­ar­bréfum, sem nauð­syn­legar voru til þess að standa undir alþjón­ustu­skyldu, náðu
ekki fram að ganga og 14,4 % sam­dráttur varð í bréfa­send­ingum innan einka­réttar milli ára, en
hlut­falls­lega var það um tvö­falt meiri sam­dráttur en gert var ráð fyrir í áætlun.

Það leiddi til 517 mkr. lægri tekna en árið áður auk þess sem tekjur af bréfa- og pakka­send­ingum til útlanda dróg­ust saman um 129 mkr. milli ára. Bókfært tap varð því af rekstri Íslands­pósts, sem nam 293 mkr. á árinu 2018 í stað 201 mkr. hagn­aðar, sem fjár­hags­á­ætlun árs­ins gerði ráð fyrir,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá segir að hann að fyr­ir­komu­lag fjár­mögn­unar fyr­ir­tæk­is­ins sé ótækt og það tak­marki starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og rekstur, og komi í veg fyrir að hægt sé að bregð­ast við erf­ið­leikum, meðal ann­ars að hækka laun þeirra sem lægstu launin hafa í fyr­ir­tæk­inu.

Í skýrslu Copenhagen Economics um starf­semi Íslands­pósts, sem Ingi­mundur vitnar til í til­kynn­ingu sinni, segir að það verði að koma til breyt­ingar á lögum og reglum, til að hægt sé að sinna póst­þjón­ustu með þeim hætti sem þarf.

Heild­ar­eignir Íslands­pósts voru 6,3 millj­arðar í árs­lok.

Ítarleg til­kynn­ing Ingi­mundar fer hér að neðan í heild sinni: Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts,

„Fjár­hags­leg afkoma Íslands­pósts var önnur en að var stefnt á árinu 2018. Meg­in­for­sendur
fjár­hags­á­ætl­unar árs­ins gengu eftir að öðru leyti en því, að verð­breyt­ingar á
einka­rétt­ar­bréfum, sem nauð­syn­legar voru til þess að standa undir alþjón­ustu­skyldu, náðu
ekki fram að ganga og 14,4 % sam­dráttur varð í bréfa­send­ingum innan einka­réttar milli ára, en
hlut­falls­lega var það um tvö­falt meiri sam­dráttur en gert var ráð fyrir í áætlun.

Það leiddi til 517 mkr. lægri tekna en árið áður auk þess sem tekjur af bréfa- og pakka­send­ingum til útlanda dróg­ust saman um 129 mkr. milli ára. Bókfært tap varð því af rekstri Íslands­pósts, sem nam 293 mkr. á árinu 2018 í stað 201 mkr. hagn­aðar, sem fjár­hags­á­ætlun árs­ins gerði ráð fyrir.
Í mars 2018 skil­aði ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Copenhagen Economics grein­ar­gerð um mat á kostn­aði
við póst­þjón­ustu á Íslandi.

Í skýrsl­unni er m.a. lagt mat á umfang fjár­hags­legrar byrði,
svo­kall­aða alþjón­ustu­byrði. Aðferðin sem fyr­ir­tækið beitir er vel þekkt um allan heim og
upp­fyllir hún kröfur um útreikn­ing á alþjón­ustu­byrði, sem settar eru fram í við­auka við
póst­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins, sem póst­þjón­ustu á Íslandi ber að fylgja.
Útreikn­ingar Copenhagen Economics eru byggðir á tölum úr kostn­að­ar­bók­haldi Íslands­pósts
fyrir árið 2016. Þeir sýna, að grunn­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins skil­aði um 770 mkr. hagn­aði á árinu
2016 en að um 650 mkr. af þeim hagn­aði fóru í nið­ur­greiðslu á lög­bund­inni póst­þjón­ustu. Ef
árið 2018 er skoðað út frá sömu for­sendum skil­aði grunn­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins 607 millj. kr. í
hagnað á árinu en hreinn kostn­aður við að veita lög­bundna þjón­ustu var um 900 millj. kr. og
var því nið­ur­staðan 293 millj. kr. tap. Slík ráð­stöfun hagn­aðar vinnur gegn
grund­vall­ar­hags­munum félags­ins. Hún tak­markar svig­rúm stjórn­enda til mik­il­vægra
rekstra­legra ákvarð­ana, svo sem varð­andi nauð­syn­lega þró­un­ar­starf­semi, kaup og kjör
starfs­manna, einkum þeirra tekju­lægstu, þar sem þörf er á veru­legri breyt­ingu, sem og
varð­andi mögu­leika á verð­lækkun á vörum og þjón­ustu, bæði þeirri sem bundin er einka­rétti
sem og hinni sem boðin er á sam­keppn­is­mark­aði. Gildandi fyr­ir­komu­lag á fjár­mögnun alþjón­ustu hefur leitt til yfir­vof­andi rekstr­ar­stöðv­unar Íslands­pósts að óbreyttri þjón­ustu­skyldu. Slíkt fyr­ir­komu­lag geta stjórn­endur hluta­fé­laga ekki búið við, enda er það með öllu á svig við skyldur þeirra sam­kvæmt ákvæðum laga um hluta­fé­lög.

Þann 23. októ­ber síð­ast­lið­inn mælti sam­göngu­ráð­herra fyrir frum­varpi að nýjum lögum um póst­þjón­ustu. Núgild­andi lög­gjöf var sam­þykkt árið 2002 og í ljósi þeirra breyt­inga, sem orðið hafa á rekstr­ar­um­hverfi póst­þjón­ustu síðan, er afar brýnt að þau verði end­ur­nýjuð og færð til sam­ræmis við þriðju póst­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins frá árinu 2008. Í því felst m.a. til­skilið afnám einka­réttar rík­is­ins á dreif­ingu árit­aðra bréfa undir 50 g. Þá er í frum­varp­inu opnað fyrir mögu­leika á fjár­mögnun á þeim hluta lög­bund­innar póst­þjón­ustu, sem ekki stendur undir kostn­aði tengdum henni, og er það afar þýð­ing­ar­mikið nýmæli, sem tryggja á póst­rek­endum eðli­lega greiðslu fyrir veitta þjón­ustu. Nauð­syn­legt virð­ist þó að laga­text­inn kveði skýrar á um skyldu rík­is­ins til þess að gera þjón­ustu­samn­ing um þann hluta póst­þjón­ust­unnar, sem ekki á sér mark­aðs­legar for­sendur, þar sem óvíst er hvort póst­rek­andi lifi þann máls­með­ferð­ar­tíma af, sem frum­varpstext­inn ber með sér. Mik­il­vægt er að ný lög um póst­þjón­ustu verði afgreidd á vor­þingi 2019, svo sem áformað er, þannig að þau geti tekið gildi frá árs­byrjun 2020, eins og að er stefnt.

Við afnám einka­réttar er afar þýð­ing­ar­mikið að fyrir liggi skýrar leik­reglur um fyr­ir­komu­lag
póst­dreif­ingar. Hug­myndin um einka­rétt rík­is­ins á dreif­ingu bréfa allt að 50 g byggir á því að
tekjum einka­réttar er ætlað að standa undir annarri þjón­ustu, sem einka­rétt­ar­hafi veitir
ein­göngu á grund­velli alþjón­ustu­skyldu og ekki er hag­kvæmt að veita á við­skipta­legum
for­sendum. Því þarf að liggja fyrir hvernig stjórn­völd hyggj­ast tryggja póst­þjón­ustu, sem
flutn­ing­að­ilar hafa ekki for­sendur til þess að sinna, hvernig verð­lagn­ingu þeirrar þjón­ustu verði
háttað og hvernig standa eigi undir kostn­aði við að veita þá þjón­ustu lögum sam­kvæmt. Á
sama hátt þarf að sam­ræma reglur og eft­ir­lit með póst­dreif­ingu og annarri vöru­dreif­ingu,
þannig að leið­rétt verði sú mis­munun, sem nú er fyrir hendi eftir því hvort fyr­ir­tæki er skil­greint
sem póst­fyr­ir­tæki eða flutn­inga­fyr­ir­tæki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár