Bögglapóstur frá Kína

Kín­verskir póst­menn eiga ann­ríkt. Fyrir utan allan þann póst sem sendur er inn­an­lands í fjöl­menn­asta ríki heims fara dag­lega millj­ónir póst­send­inga til ann­arra landa. Til Dan­merkur ber­ast dag­lega 40 þús­und pakkar frá Kína.

Allir Íslend­ingar þekkja Hagkaup sem var stofnað árið 1959 og var sjö fyrstu árin ein­göngu póst­verslun. Þetta var löngu fyrir daga nets­ins og Hagkaup lét reglu­lega prenta bæk­linga sem dreift var með pósti og lands­menn lágu yfir við eld­hús­borðið. Margir minn­ast þess­ara bæk­linga og sögur heyrð­ust af heim­il­is­erjum þar sem tek­ist var á um hver fyrstur fengi að skoða nýjasta Hag­kaups­list­ann. Svo var að panta og bíða eftir að pakki bær­ist með póst­inum.

Þessi póst­verslun var nýlunda á Íslandi og lagði grunn­inn að því stór­veldi sem Hagkaup varð í íslensku við­skipta­lífi. Reyndar voru vöru­list­arnir frá Hagkaup, sem voru ein­ungis nokkrar svart­hvítar blað­síður hverju sinni, ekki einu vöru­list­arnir sem Íslend­ingar þekktu. Margir muna lit­prent­aða þver­hand­ar­þykka (þykk­ari en gamla Síma­skráin) vöru­lista, prís­lista, frá Quelle, Sears og fleiri versl­unum. Margir sátu löngum stundum yfir þessum þykku doð­röntum og víða þótti það góð skemmtan að blaða í vöru­list­unum og iðu­lega margra kvölda verk. En nú heyra þessir lit­prent­uðu vöru­listar sög­unni til, eins og allt annað eru þeir á net­inu.

Gjörbreyttir verslunarhættir

Nú eru all­mörg ár síðan inter­netið varð til. Ekki þarf að fjöl­yrða um þá bylt­ingu sem til­koma þess hafði í för með sér. Þar er hægt að finna flesta hluti, nán­ast allt milli him­ins og jarðar „bara að gúggla það“.

Versl­anir voru frekar seinar að til­einka sér þá mögu­leika sem inter­netið býður upp á. Í grein sem birt­ist fyrir skömmu í breska blað­inu Guardian veltir grein­ar­höf­undur fyrir sér ástæðum þess að versl­anir voru svo seinar að ,,hoppa á inter­net­vagn­inn“ eins og hann orðar það. Nið­ur­staða hans er að fæstir hafi haft trú á því að net­verslun myndi ná hylli almenn­ings. Það að fara í búð­ina væri ein­fald­lega svo veiga­mik­ill þáttur hins dag­lega lífs að fæstir væru til­búnir að fórna því. Fólk vildi hand­fjatla hlut­ina, rölta um í búð­unum og sjá með eigin augum það sem væri í boði.

Grein­ar­höf­undur segir að þarna hafi margir feil­reiknað sig eins og sjá­ist best á því sem gerst hefur. Net­verslun verður sífellt meiri. Það gildir jafnt um fatnað, hús­búnað, raf­tæki, snyrti­vörur og mat og margt fleira. Afleið­ing­arnar eru þær að æ færri leggja leið sína í versl­anir og mörg stór vöru­hús, þar sem áður var krökkt af fólki allan lið­langan dag­inn, eiga nú í erf­ið­leikum. Kúnn­arnir sitja ein­fald­lega heima við eld­hús­borðið og skoða og panta gegnum tölv­una. Sænski versl­un­ar­ris­inn IKEA ákvað fyrir skömmu að versl­un­ar­hús sem verið var að byggja við mið­borg Kaup­manna­hafnar yrði tals­vert minna en til stóð í upp­hafi. Ástæðan er netið, það koma ein­fald­lega færri í IKEA búð­irnar.

Bara að skoða

Kaupmenn, ekki síst þeir sem selja fatnað, verða í auknum mæli varir við „bara að skoða“ fólkið. Það eru þeir sem koma í búð­ina og skoða fatnað og fá jafn­vel að máta en láta þar við sitja. Fara svo heim leita að vör­unni og kaupa hana á net­inu þar sem verðið er iðu­lega lægra.

Höfundur þessa pistils sá fyrir nokkru miða í búð­ar­glugga þar sem á stóð að þeir sem væru bara að skoða væru beðnir um að koma ekki inn. Aðspurður sagð­ist kaup­mað­ur­inn, sem selur mynda­vélar og fleira af því tagi, vera búinn að fá nóg af því að útskýra mögu­leika hinna mis­mun­andi mynda­véla fyrir fólki sem svo „ætl­aði að athuga málið“ og keypti svo hlut­ina á net­inu. Þessi kaup­maður er ekki með net­verslun en sagði aðspurður að hann væri að und­ir­búa slíkt.

Margar versl­anir hafa reynt að mæta breyttum versl­un­ar­háttum með því að reka net­verslun sam­hliða hefð­bund­inni verslun. Við­skipta­vin­irnir geta þá iðu­lega pantað vörur á net­inu og sótt þær í versl­un­ina. Eða látið senda þær heim ef það hentar betur. Og heim­send­ing­ar­leiðin er sú sem sífellt fleiri velja.

40 þúsund pakkar frá Kína á hverjum degi

Danmörk er eitt þeirra landa þar sem íbú­arnir hafa til­einkað sér þessa nýju við­skipta­hætti, að kaupa á net­inu. Það gildir bæði um vörur sem keyptar eru inn­an­lands í Danmörku og frá öðrum löndum, einkum Kína. Á hverjum ein­asta degi árs­ins koma fjöru­tíu þús­und pakkar frá Kína til Dan­merkur. Þetta svarar til þess að hver ein­asti íbúi Kópavogs og Sel­tjarn­ar­ness fengi dag­lega árið um kring send­ingu frá Kína. Sem sé fjórtán millj­ónir og sex­hund­ruð þús­und pakka á ári. Bara frá Kína. Danir kaupa einnig mikið á net­inu frá öðrum löndum, einkum Þýska­landi og Svíþjóð. Við þetta bæt­ist svo versl­unin inn­an­lands í Danmörku.

Gamlar úreltar reglur og lítið eftirlit

Ára­tuga­gam­all samn­ingur um póst­send­ingar, sem gerður var þegar Kína var talið „þró­un­ar­land“, er enn í gildi. Þessi samn­ingur skuld­bindur dönsku póst­þjón­ust­una til að bera út og afhenda send­ingar frá Kína gegn lágu gjaldi. Gjaldið er 6.50 danskar krónur (109 krónur íslenskar) en að senda venju­legt umslag á milli húsa í Danmörku kostar 9 krónur (151 íslenskar) og pakka marg­falt meira.

Þrátt fyrir að danskir kaup­menn, og margir fleiri, hafi marg­sinnis bent á þennan úrelta samn­ing hefur ekk­ert gerst. Póst­ur­inn tapar árlega stórfé vegna þessa samn­ings en sam­kvæmt honum á gjaldið á „kína­send­ingum“ að hækka lít­ils­háttar árið 2021 en það hrekkur skammt. Og þetta er ekki allt. Reglur um sölu­skatt á erlendum póst­send­ingum segja að ef verð­gildi ein­stakrar send­ingar er 80 krónur danskar (1.350 íslenskar) eða minna skal ekki greiddur sölu­skattur, sem í Danmörku er ann­ars 25%. Þess vegna er stærri send­ingum iðu­lega skipt í margar smærri til að losna við sölu­skatt­inn. Og svo er það toll­ur­inn. Danska toll­þjón­ustan hefur mátt þola mik­inn nið­ur­skurð á síð­ustu árum og ein afleið­ing þess er lítið eft­ir­lit. Svo lítið að erlendar net­versl­anir aug­lýsa fullum fetum „sölu­skatts­lausar“ send­ingar til Dan­merkur.

Danskir kaup­menn eru mjög ósáttir við þessa ójöfnu sam­keppni og hafa reiknað út að árlega verði danska ríkið af tekjum sem nema millj­örðum króna vegna þess­ara úreltu reglna og slæ­legrar toll­skoð­unar. Innan Evr­ópu­sam­bands­ins hefur náðst sam­komu­lag um að breyta regl­unum um sölu­skatt­inn þannig að frá árs­byrjun 2021 skuli allar send­ingar frá löndum utan ESB, sölu­skatt­skyldar. Danskir kaup­menn vilja að þessar reglur taki gildi þegar í stað.

Eftirlíkingavörurnar

Dönsku neyt­enda­sam­tökin, For­bru­ger­rá­det Tænk, gerðu fyrir nokkrum mán­uðum athugun á margs konar vörum sem Dönum standa til boða hjá kín­verskum net­versl­unum. Þar var bæði um að ræða þekkt og óþekkt vöru­merki, snyrti­vörur, raf­magns­tæki og leik­föng. Nið­ur­stöð­urnar voru athygl­is­verðar og nið­ur­staða Tænk var að mikið skorti á að umræddar vörur upp­fylltu þær kröfur sem gerðar eru til evr­ópskra fram­leið­enda. Tænk var­aði sér­stak­lega við snyrti­vörum sem keyptar væru hjá kín­verskum net­versl­unum. Þótt þær heiti jafn­vel sömu nöfnum og í dönskum versl­unum (Nivea krem var tekið sem dæmi) er inni­haldið ekki endi­lega það sama. Kín­verjar eru ekki háðir fram­leiðslu­kröfum Evr­ópu­sam­bands­ins. Danir virð­ast hins vegar kæra sig koll­ótta um þessar við­var­anir, þeir hafa frekar áhyggjur af því hvort greiðslu­mát­inn sé öruggur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár