Innlend netverslun blómstrar - Maí veltuhæsti mánuðurinn frá upphafi

Á net­inu jókst velta raf- og heim­il­is­tækja um 156,8 pró­sent á milli ára á meðan veltan í búðum dróst saman um 14,2 pró­sent.

Innlend net­verslun nam 8 millj­örðum króna í mán­uð­inum og var hlut­falls­leg aukn­ing 56 pró­sent. Maí­mán­uður er enn fremur veltu­hæsti mán­uður í inn­lendri net­verslun og net­sölu frá því Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar hóf að birta slíkar tölur, að því er kemur fram í til­kynn­ingu set­urs­ins.

Heild­ar­velta inn­lendra greiðslu­korta nam 69,2 millj­örðum króna í maí og jókst um 14 pró­sent miðað við apríl síð­ast­lið­inn og um 3,5 pró­sent sam­an­borið við maí­mánuð 2018.

Svartur föstudagur hafði áhrif

Í til­kynn­ingu Rann­sókn­ar­set­urs­ins segir að nóv­em­ber 2018 hafi metið ef ein­göngu sé litið til net­versl­unar en ekki net­sölu þjón­ustu­fyr­ir­tækja. Þá hafi verið mark­aðs­dagar líkt og Svartur föstu­dagur.

[adspot]Í til­kynn­ingu set­urs­ins segir að gögnum um korta­veltu Íslend­inga hér­lendis komi frá inn­lendum færslu­hirð­ing­ar­að­ilum korta og öðrum greiðslu­miðl­urum.

Stærsti ein­staki versl­un­ar­flokk­ur­inn er dag­vöru­verslun og stór­mark­aðir sem jókst um 9,7 pró­sent milli ára. Skýr­ingin á því gæti verið sam­spil góðrar grill­tíðar og að í mán­uð­inum hafi verið fimm föstu­dagar sam­an­borið við fjóra í fyrra, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Velta í búðum dregst saman en netverslun eykst

Sam­dráttur var í veltu í búðum í raf- og heim­il­is­tækja­sölu upp á 14,2 pró­sent milli ára. Velta net­versl­unar jókst hins vegar um 156,8 pró­sent milli ára og nam aukn­ingin 244 millj­ónum króna, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni.

Innlend velta í fata­verslun jókst bæði í búðum og á net­inu. Á net­inu var 25,8 pró­sent aukn­ing milli ára og 17,8 pró­sent í búðum.

Hægt að versla lyf á netinu

Nýlega leit fyrsta net­versl­unin með lyf dags­ins ljós. Það er net­verslun Garðs Apó­teks sem hefur hlotið stað­fest­ingu Lyfja­stofn­unar. Hægt er nú að versla bæði lausa­sölu og lyfs­seð­ils­skyld lyf á net­in­u.

Í frétta­til­kynn­ing­u Apó­teks­ins sagði að net­versl­unin væri liður í fram­tíð­ar­þróun apó­teka sem muni skila sér í bættri þjón­ustu við við­skipta­vini og breyttu rekstr­ar­mód­eli apó­teka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár