Bótakröfur vegna makrílkvóta gætu numið 35 milljörðum

Rík­is­lög­maður hefur fengið stefnur vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta en ekki er gefið upp fjöldi eða upp­hæð bótakrafa. Formaður stjórnar Lands­sam­bands smá­báta­eig­anda telur að kröf­urnar gætu numið 35 millj­örðum króna.

Rík­is­lög­manni hefur borist stefnur frá útgerð­ar­fé­lögum vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til og með 2014. Rík­is­lög­maður stað­festir þetta í sam­tali við Frétta­blaðið en gefur ekki upp fjölda stefna né hversu háar bóta­kröf­urnar eru. Að mati Axels Helga­sonar, for­manns stjórnar Lands­sam­bands smá­báta­eig­andi, gætu þau fyr­ir­tæki sem ætla sér að sækja sér bætur til rík­is­ins fengið um það bil 35 millj­arða króna.

Sex fyrirtæki stefnt ríkinu

[links]Í des­em­ber í fyrra komst Hæstirétt­ur að þeirri niður­stöðu að ríkið væri skaða­bóta­skylt vegna fjár­tjóns sem út­gerð­arfé­lög hefðu orðið fyr­ir vegna reglu­gerðar um skipt­ingu mak­ríl­kvóta á ár­inu 2011 til 2014, sem reynd­ist ólög­mæt. Hæsti­réttur dæmdi ís­­lenska ríkið skaða­bóta­­skylt gagn­vart út­­gerð­unum Hug­in og Ísfé­lagi Vest­­manna­eyja en engar bætur voru þó dæmdar til útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna heldur ein­ungis við­ur­kennd bóta­skylda.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins í dag segir að rík­is­lög­maður hafi stað­fest að stefn­urnar séu komnar á borð emb­ætt­is­ins en að ekki sé búið að þing­festa þær. Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins eru stefn­urnar bæði frá stórum og með­al­stórum útgerðum en ekki fékkst upp­gefið hjá rík­is­lög­manni hversu margar stefn­urnar væru né hversu háar kröf­urnar væru.

Um háar upphæðir að ræða

Morg­un­blaðið greindi frá því í síð­ustu viku að sex fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi hafi stefnt ís­lenska rík­inu vegna út­hlut­un­ar mak­ríl­kvóta á ár­un­um 2015 til 2018. Um er að ræða Hug­in, Vinnslu­stöð Vest­manna­eyja, Ísfé­lag Vest­manna­eyja, Loðnu­vinnsl­una, Skinn­ey-Þinga­nes og Gjögu.

Axel Helgason, for­maður stjórnar Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að minnsta kosti sex fyr­ir­tæki ætli að sækja bætur. Að hans mati gætu þau fyr­ir­tæki sem ætla að sækja sér bætur til rík­is­ins fengið um það bil 35 millj­arða. Hann bendir á að mak­ríl­kvót­inn sé á bil­inu 65 til 100 millj­arða króna virði og því um háar fjár­hæðir að ræða.

Segja stjórnvöld hygla stórútgerðum

Fyrir Alþingi liggur frum­varp til laga um kvóta­setn­ingu á mak­ríl þar sem minnstu útgerð­unum á mak­ríl er gert að taka á sig 45 pró­sent skerð­ingu í úthlut­uðum afla­heim­ildum. Í þessum flokki útgerða hafa verið stund­aðar veiðar með krókum allt frá árinu 2008. Í fyrra fengu skip úthlutað um 5 þús­und tonnum til veiða, en sam­kvæmt fram­lögðu frum­varpi þá fá þessar útgerðir um 2.700 tonn.

Unn­steinn Þrá­ins­son, for­maður Félags mak­ríl­veiði­manna, sagði í sam­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að frum­varpið væri ósætann­legt og að hans félags­menn væru afar ásóttir. Hann sagði að heim­ild­irnir séu að mestu færðar til „stór­út­gerða lands­ins“, en afgang­ur­inn fari í leigu­pott þar sem veiði­gjald verður tvö­falt, sem sé sér­stak­lega þungt í rekst­ur­inn hjá félags­mönnum Félags mak­ríl­veiði­manna.

Hann sagð­ist enn fremur sann­færður um að efn­is­at­riði fyrr­nefnds frum­varps, eins og það sé nú, stand­ist ekki lög og stjórn­ar­skrá, og að félags­menn muni láta reyna á það fyrir dóm­stól­um. Hefur Jóhannes Bjarni Björns­son hrl. meðal ann­ars unnið minn­is­blað fyrir félag­ið, sem Unn­steinn telur að sýni glögg­lega að laga­legur grunnur máls­ins sé ekki fyrir hendi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár