„Þetta er óásættanlegt með öllu“

Þungt hljóð er í mak­ríl­veiði­mönnum, sem segja stjórn­völd hygla stór­út­gerðum í mak­ríl­frum­varpi. Minn­is­blað Hæsta­rétt­ar­lög­manns gefur til kynna að stjórn­völd séu á hálum ís.

Fyrir Alþingi liggur frum­varp til laga um kvóta­setn­ingu á mak­ríl þar sem minnstu útgerð­unum á mak­ríl er gert að taka á sig 45 pró­sent skerð­ingu í úthlut­uðum afla­heim­ildum.

„Þetta er óásætt­an­legt og mínir félags­menn eru afar ósáttir. Ef þetta fer svona í gegnum Alþingi þá minnkar nú til­trú manns á stjórn­völdum,“ segir Unn­steinn Þrá­ins­son, for­maður Félags mak­ríl­veiði­manna.

Í þessum flokki útgerða hafa verið stund­aðar veiðar með krókum allt frá árinu 2008. Í fyrra fengu skip úthlutað um 5 þús­und tonnum til veiða, en sam­kvæmt fram­lögðu frum­varpi þá fá þessar útgerðir um 2.700 tonn.

Unn­steinn segir að heim­ildir séu að mestu færðar til „stór­út­gerða lands­ins“, en afgang­ur­inn fari í leigu­pott þar sem veiði­gjald verður tvö­falt, sem sé sér­stak­lega þungt í rekst­ur­inn hjá félags­mönnum Félags mak­ríl­veiði­manna.

„Þessar litlu útgerðir munu því tapa heim­ild­unum sínum og verða gert að borga leigu­gjald fyrir að leigja þær aftur af rík­inu. Gjaldið ásamt veiði­gjöldum nemur tvö­földu veiði­gjaldi ann­arra útgerða. Stór­út­gerðin seg­ist illa eða ekki geta staðið undir helm­ingi þess fjár­hæðar. Minnstu útgerð­unum verður því gert að lifa við tvö­faldar álögur með mun dýr­ari og áhættu­sam­ari rekstur. Það er verið að rífa minnsta útgerð­irnar á hol með þessu,“ segir Unn­steinn.

Þeir útgerð­ar­flokkar sem fá til sín heim­ild­irnar eru stærri útgerðir sem bæta við sig um 15 pró­sent af heild­ar­kvót­anum og síðan félags­legur pottur fyrir strand­veiði­menn sem er tvö­fald­aður að stærð frá því sem áður var. „Eðlilega eru útgerðir smá­báta og skipa sem stundað hafa veiðar á mak­ríl með línu-og hand­færum (krókum) brjál­aðar yfir þessum til­lögum,“ segir Unn­steinn.

Hann seg­ist enn fremur sann­færður um að efn­is­at­riði fyrr­nefnds frum­varps, eins og það sé nú, stand­ist ekki lög og stjórna­skrá, og að félags­menn muni láta reyna á það fyrir dóm­stólum. Hefur Jóhannes Bjarni Björns­son hrl. meðal ann­ars unnið minn­is­blað fyrir félagið, sem Unn­steinn telur að sýni glögg­lega að laga­legur grunnur máls­ins sé ekki fyrir hendi.

Lesa má minn­is­blaðið hér með­fylgj­andi, þar sem fjallað er um álita­efni er tengj­ast mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár