Ríkið dæmt skaðabótaskylt vegna ólöglegrar úthlutunar makrílkvóta

Hæsti­réttur snéri dómi hér­aðs­dóms.

Hæstirétt­ur Íslands hef­ur dæmt ís­lenska ríkið skaða­bóta­skylt gagn­vart út­gerð­unum Hug­in og Ísfé­lagi Vest­manna­eyja.

Dómar þess efnis, í tveimur aðskildum málum, féllu í Hæsta­rétti í dag, en þar með var sýknu­dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur snúið.

Engar bætur voru þó dæmdar til útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna heldur ein­ungis við­ur­kennd bóta­skylda. Næsta mál á dag­skrá hjá fyr­ir­tækj­unum er þá að höfða skaða­bóta­mál.

Ráðgjaf­ar- og end­ur­skoðun­ar­fyr­ir­tækið Deloitte tel­ur hagn­að­ar­missi fé­lag­anna nema rúm­um 2,6 millj­örðum króna.

Útgerð­arfé­lög­in kröfð­ust viður­kenn­ing­ar á skaða­bóta­skyldu ís­lenska rík­is­ins vegna fjár­tjóns sem fé­lög­in töldu sig hafa orðið fyr­ir vegna úthlutun á mak­ríl­kvóta.

Snérist málið um það fiski­skip­um þeirra hefði á grund­velli reglu­gerða verið út­hlutað minni afla­heim­ild­um á mak­ríl árin 2011 til 2014 en skylt hefði verið sam­kvæmt lög­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár