Björn Leví: Rökstuddur grunur um að Ásmundur hafi dregið sér fé

Þing­maður Pírata end­ur­tók orð Þór­hildar Sunnu sem siða­nefnd Alþingis þóttu brot­leg í pontu Alþingis í dag. Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, taldi þau ekki við hæfi.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, fjall­aði á Alþingi í dag um nýlega nið­ur­stöðu siða­nefndar þings­ins þar sem fram kemur að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður flokks­ins, hafi gerst sek um brot á siða­reglum þing­manna með orðum sínum í Silfrinu og á Facebook-síðu sinni sem vörð­uðu akst­urs­greiðslur Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Í sama áliti kemur fram að ég hafi ekki gerst sekur um brot á siða­reglum af því er virð­ist af því að siða­nefnd skildi mig ekki. Þau orð sem ég lét falla voru efnis- og inni­halds­lega nákvæm­lega þau sömu og hátt­virtur þing­maður Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir var dæmd brot­leg fyrir,“ sagði Björn Leví í pontu.

Hann sagði að vissu­lega hefði hann ekki notað nákvæm­lega sömu orðin og að það gæti vel verið að það skipti máli þegar siða­nefnd legði mat sitt á merk­ingu orð­anna.

Vildi nota orð sem allir skildu

„Forseti, mig langar því að vera eins skýr­mæltur og ég get vegna álits for­sætis­nefndar þegar erindi mínu um end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar var vísað frá þar sem kom fram að Ásmundur Frið­riks­son hafði vissu­lega fengið end­ur­greiðslu frá Alþingi vegna þátta­gerðar fyrir ÍNN. Að hann hafði fengið end­ur­greiðslur fyrir notkun á eigin bíl þrátt fyrir að það var gegn reglum um slíkar end­ur­greiðslur og vegna þess að Ásmundur ját­aði að hafa fengið end­ur­greiðslur vegna próf­kjörs­bar­áttu í eigin flokki sem er klár­lega ekki hluti af starfi hans sem þing­manns,“ sagði Björn Leví.

Hann vildi þess vegna tjá skoðun sína aftur, og nota orð sem allir skildu, þar á meðal siða­nefnd. „Nú er rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rann­sókn í þeim efnum. Ég segi þessi orð með fullri vit­neskju um að þau hafi verið dæmd sem brot gegn siða­reglum þing­manna. Við vitum það hins­vegar öll hérna inni að þau eru sönn,“ sagði hann.

Björn Leví taldi að fyrir því lægi játn­ing og stað­fest­ing við frá­vísun for­sætis­nefndar. Þess vegna væri þetta rök­studdur grunur í allri merk­ingu þeirra orða.

Ummælin stappað nærri því að vera vítaverð

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, greip fram í fyrir Birni Leví og sagði að hann teldi að notkun dag­skrár­lið­ar­ins væri ekki við hæfi, þ.e. störf þings­ins.

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kom í púlt nokkru seinna og tjáði sig um ræðu Björns Levís. „Ég tel nú að ummælin hafi nú stappað nærri að vera víta­verð eins og þing­sköp kveða á um. Ekki ein­göngu vegna þess að í þeim fólst end­ur­tekn­ing á aðdrótt­unum og æru­meið­ingum í garð hátt­virts þing­manns, Ásmundar Frið­riks­sonar.

Heldur líka vegna þess að það er auð­vitað verið að gera lítið úr þeirri máls­með­ferð sem átt hefur sér stað hér á vegum þings­ins, bæði af hálfu hátt­virtrar for­sætis­nefndar og siða­nefndar og ég verð að segja að mér finnst afar sér­kenni­legt að hátt­virtur þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, gangi fram með þeim hætti í ljósi allrar for­sögu máls­ins og hvað það hefur fengið mikla umfjöllun og hvernig þessum ásök­unum hans og fleiri hefur verið svarað,“ sagði hann.

Mannasiðir að láta viðkomandi þingmann vita

Þegar Stein­grímur var spurður nánar út í málið þá sagði hann að undir liðnum „störf þings­ins“ væri sér­stak­lega gert ráð fyrir því að þing­menn gætu átt orða­skipti við hvorn annan. Þeir gætu beint spurn­ingu eða snúið máli sínu að öðrum þing­manni. „En þá eru það mannasiðir að láta við­kom­andi þing­mann vita. Og þá er hann settur á mæl­enda­skrá næstur á eftir þeim sem á orða­stað við hann. Þetta gerði hátt­virtur þing­maður, Björn Leví Gunn­ars­son, ekki,“ sagði hann.

„Hann not­aði dag­skrár­lið­inn „störf þings­ins“ til þess að fara mjög ósæmi­legum orðum um annan hátt­virtan þing­mann,“ sagði Stein­grímur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár