Segir niðurstöðu siðanefndar vekja upp ótal spurningar

Jón Ólafsson, pró­fessor og for­maður nefndar um traust á stjórn­málum, segir að nið­ur­staða siða­nefndar Alþingis um brot Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur veki upp margar spurn­ingar og að það út af fyrir sig sé ótrú­verð­ugt.

Jón Ólafsson prófessor og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona.
Jón Ólafsson pró­fessor og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­kona. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Ólafsson, heim­spek­ingur og pró­fessor við Háskóla Íslands sem var for­maður starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra um efl­ingu trausts á stjórn­málum, segir fyrstu nið­ur­stöðu siða­nefndar vekja upp ótal spurn­ingar. Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Jón að siða­nefnd hafi túlkað orð Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­flokks­for­manns Pírata með ein­streng­ings­legum hætti og að erfitt sé að fylgja rök­semd­ar­færslu nefnd­ar­innar.

Ekki í samræmi við siðareglur Alþingis

[links] Greint var frá því í gær að siða­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Þór­hildar Sunnu um akst­urs­greiðslur þings­ins til Ásmundar Frið­riks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­­reglur fyrir alþing­is­­menn.

Ásmundur óskaði eftir því við for­sætis­nefnd þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn að tekið væri til skoð­unar hvort þing­menn Pírata Björn Leví Gunn­ars­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­ur­greiðslur þings­ins á akst­urs­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

Nið­ur­staða siða­nefndar liggur nú fyrir en nefndin telur að ummæli Þór­hildar Sunnu frá 25. febr­úar 2018 séu ekki í sam­ræmi siða­reglur fyrir alþing­is­menn. Nefndin komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Björns Levís hafi ekki brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

Orðalag túlkað einstrengingslega

Ummælin sem Þór­hildur Sunna lét falla í Silfr­inu á RÚV þann 25. febr­úar 2018 og hljóða þau svo: „Við sjáum það að ráð­herrar þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­um, þing­menn þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ing­um. Nú er uppi rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almanna­fé, og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að segja á fót rann­sókn á þessum efn­um.“

Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Jón Ólafsson að siða­nefndin hafi túlkað orð Þór­hildar Sunnu með ein­streng­ings­legum hætt. Hann segir að gall­inn við siða­nefndir sé að þeim hættir til að líta „þröngt og ein­streng­ings­lega“ á orða­lag, merk­ingu eða aðra þætti í úrskurðum sínum, sem virð­ist síðan leyfa skýra nið­ur­stöðu.

„Siða­nefnd Alþingis kýs (í máli Ásmundar Frið­riks­sonar) að skilja orðin „rök­studdur grunur“ svo, að þau hljóti að hafa þá til­teknu lög­fræði­legu merk­ingu, að minnsta kosti í með­förum Alþing­is­manns, að með þeim full­yrði hann/hún til­vist áþreif­an­legra upp­lýs­inga eða gagna um það sem grun­ur­inn bein­ist að,“ segir Jón.

Hann segir hins vegar að lög­fræði­leg merk­ing þessa orða­sam­bands trompi alls ekki hvers­dags­lega merk­ingu orð­anna rök og grunur í póli­tískum umræðum. „Þess vegna er engin knýj­andi ástæða fyrir siða­nefnd­ina að halda því fram að þing­maður sem notar þessi orð sé að full­yrða annað eða meira en að marg­vís­leg rök séu fyrir því að gruna eitt­hvað.“

Jón segir siða­nefnd­ina ekki vera þá fyrstu til að falla í gryfju „absolútisma“ þar sem því er haldið fram að ein­hver til­tekin merk­ing orða hljóti að hafa for­gang fram yfir aðra merk­ingu. „En fall hennar vekur vissu­lega spurn­ingar um hvort það er heppi­legt að fylgja sið­ferði­legum við­miðum þing­manna eftir með úrskurð­ar­nefnd,“ segir Jón að lokum.

Torskilinn munur á afstöðu

Jón segir jafn­framt í sam­tali við Frétta­blaðið í dag að munur á afstöðu siða­nefnd­ar­innar til ummæla Björns Levís og Þór­hildar Sunnu sé torskil­inn. Siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Þór­hildar Sunnu frá 25. febr­úar 2018 séu ekki í sam­ræmi við a- og c-lið 1. mrg. 5. gr. og 7 gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Í þeim segir að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörnir full­trúar rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Þing­menn skuli í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.

Siða­nefnd komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að Björn Leví Gunn­ar­son hafi haldið sig innan þess svig­rúm sem þing­menn hafa til að leggja fram gagn­rýni hver á annan „sem oft kann að vera hörð og óvægin“.

„Þessi nið­ur­staða vekur ótal spurn­ingar. Það út af fyrir sig er ótrú­verð­ugt,“ segir Jón í sam­tali við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár