Töfrar leikhússins

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Dansandi ljóð þar sem Leik­hús­lista­konur 50+ voru í sam­starfi við Þjóð­leik­húsið.

Leikhúslistakonur 50+ í samvinnu við Þjóðleikhúsið: Dansandi ljóð

Ljóð: Gerður Kristný

Leik­stjórn: Edda Þór­ar­ins­dóttir

Tónlist: Margrét Kristín Sig­urð­ar­dóttir

Leikmynd og bún­ingar: Helga Björns­son

Höfundur sviðs­hreyf­inga: Ingi­björg Björns­dóttir og Ásdís Magn­ús­dóttir.

Hár­greiðsla og förðun: Guðrún Þor­varð­ar­dóttir og Kristín Thors.

Lýsing og tækni­stjórn: Magnús Thorlacius

Leikkonur: Bryndís Petra Brga­dóttir, Helga E. Jóns­dóttir, Júlía Hannam, Margrét Kristín Sig­urð­ar­dóttir, Rósa Guðný Þórs­dóttir, Sólveig Hauks­dóttir, Vilborg Hall­dórs­dóttir og Þórey Sig­þórs­dóttir.

Það er löngu orðin stað­reynd, að Leik­hús­lista­konur 50+ hafa lyft grettistaki þegar kemur að því að mis­kunn­ar­laus leik­hús­brans­inn sendi ekki hæfi­leika­fólk og reynslu­bolta í ótíma­bæra útlegð. Það er hrein­lega eins og það séu álög á leik­hús­lista­konum að dæm­ast úr sam­fé­lagi leik­húss­ins um leið og ein­hverjum aldri er náð og eiga þangað aldrei aft­ur­kvæmt. Þetta er mikil sóun á hæfi­leikum og þekk­ingu. Það þarf ekki nema horfa á and­lit þeirra átta leikkvenna sem flytja Dansandi ljóð til að átta sig á að í þessum konum öllum er að finna kunn­áttu, leikni og þjálfun sem er hrein­lega skaði fyrir leik­húsið að missa. Sjáið and­litin, geislandi af þeirri feg­urð sem lífið, með­læti og mót­læti færir hverjum ein­stak­lingi – hvaða sögur gætu ekki þessi and­lit sagt, ef leik­hús­stofn­an­irnar bara leyfðu það!

 

Dansandi ljóð ber einmitt vott um þetta: hér tala raddir kvenna úr þeim heimi, sem ljóð­skáldið Gerður Kristný hefur skapað og það er eng­inn smá­heimur það, allt frá sköpun til hinstu kveðju­stundar spannar hann og er hag­an­lega lag­aður af leik­stjór­anum, Eddu Þór­ar­ins­dóttur, sem hefur auk þess skapað stíl­hreina og heill­andi fal­lega sýn­ingu með aðstoð hreyf­inga Ingi­bjargar Björns­dóttur og Ásdísar Magn­ús­dóttur, ein­faldrar leik­myndar og bún­inga Helgu Björns­son og skemmti­legri hár­greiðslu Guðrúnar Þor­varð­ar­dóttur og förðun Krist­ínar Thors. Auk þess er á stundum not­ast við grímur sem styrkja blæ sýn­ing­ar­innar: hér er ákveðið ritúal á ferð­inni, við fáum inn­sýn í heim kvenna sem af örlæti, elsku og kær­leika miðla okkur sinni sýn; hér er líkt og átta nornir spinni sinn vef og umvefji hann okkur og geri okkur að banda­mönnum sínum, en rétt eins og þessar átta nornir birt­ast okkur hver með sinni rödd og fasi eru þær þó eins og ein, rödd Konunnar sem er frum­kraft­ur­inn í mann­legu lífi. Það er ein­fald­lega fal­legt og hríf­andi.

[adspot]

Um ljóð Gerðar Kristnýjar þarf ekki að fara mörgum orðum. Þau hafa fyrir löngu unnið sér þann sess að fátæk­leg orð þess sem hér skrifar fá engu þar við bætt. Þau eru til þess að njóta þeirra, það er auð­velt og sjálf­sagt að gang­ast á vald þeirra og láta þau í senn umlykja sig og fylla. Það er ekki lít­ill unaður fólg­inn í því að verða eitt með ljóðum Gerðar Kristnýjar og Edda leik­stjóri hafði raðað þeim í rök­rétta og eðli­lega frá­sögn.

Ekki kann ég skil á því hvort fjallað hefur verið sér­stak­lega um hversu vel ljóð Gerðar Kristnýjar fara í munni, en sé svo má vel nefna það einu sinni enn. Ljóðin hennar eru ákaf­lega fýsisk, lík­am­leg, og ekki síst þar sem fæð­ist hljóðið sem ber þau áfram, frá ein­stak­lingi til ein­stak­lings, frá mann­eskju til mann­eskju.

Og hér er líka að finna einn meg­in­styrk sýn­ing­ar­innar Dansandi ljóð: hver ein­asta leik­kona á svið­inu hafði full­komið vald á fram­sögn og talanda og það var hrein­asta unun að heyra hvert orð, skilja hverja hugsun án þess að nokkur mis­brestur væri þar á. Hér er komin sér­tæk ástæða af hverju íslensku leik­húsi ber að hafa leik­hús­lista­konur 50+ í vinnu: þær kunna að tala! Þær hafa vald á tal­fær­unum, vita hvernig á að beita þeim til að koma á fram­færi ekki bara orð­unum sem slíkum og hljóð­unum, heldur hugs­un­inni sem undir býr og til­finn­ing­unni af þeim sprettur.

Það eru töfrar leik­húss­ins sem eru að verki þegar áhorf­andi og áheyr­andi sér og heyrir per­sónu úr öðrum tíma og öðru rúmi tjá sig þannig að það hrísl­ast um mann hrollur, sælu eða óhugn­aðar eftir atvikum, bara af því hvernig röddin hljómar. Það eru nákvæm­lega þessir töfrar sem gefa leik­hús­inu til­vistar­rétt. Og með því að hafna kröftum þess­ara reyndu kvenna er leik­húsið að fyr­ir­gera til­vistar­rétti sínum. Hver vill sitja undir útblæstri leik­ara sem geta ekki skamm­laust komið frá sér texta eða skiln­ingi?

Dansandi ljóð er öðrum þræði ritúal eins og nefnt var. Það hvílir helgur blær yfir sýn­ing­unni sem er hvergi ýktur eða ofgerður, ávallt hóf­samur, fagur og mátu­lega hlað­inn hátíð­leik eins og ritúali ber. Þess gætti ekki síst í leik­mynd og bún­ingum og upp­setn­ingu hárs, sem hér gaf öllum flytj­endum við­kunn­an­legan heild­ar­blæ.

En hér er eig­in­lega eina spurn­ingin sem skylt er að velta fyrir sér, ein­fald­lega vegna þess að sýn­ingin býr hugs­an­lega yfir mögu­leikum sem ekki hefur verið færi á að nýta, senni­lega vegna skorts á fé og tíma: ljóð Gerðar Kristnýjar búa yfir frá­sögn, það er óvé­fengj­an­legt. En skyldi vera að hægt væri að búa þeim dramat­ískan bún­ing, þar sem hver hinna sjö leikkvenna fengi hreint og beint per­sónu að skapa, sem ásamt öðrum per­sónum fleytti sög­unni áfram fram bor­inni af vilja og átökum milli per­són­anna? Skýrt skal tekið fram að þessi spurn­ing er ekki sett fram af því Dansandi ljóð séu ófull­gerð sýn­ing – það er öðru nær! – heldur ein­ungis til að vekja athygli á því, að ljóð Gerðar Kristnýjar virð­ast búa yfir þeim krafti sem veitt per­sónu af holdi og blóði líf, og því nær tal­máli sem þau eru fram sögð, þeim mun áhrifa­rík­ari verða þau. Hér má því ætla að unnt sé að vinna enn frekar með ljóð hennar og í höndum Eddu og hennar hóps væri gaman að sjá hvort slík þróun sé yfir höfuð mögu­leg.

Ekki verður svo skilið við Dansandi ljóð en vikið sé að tón­list­inni. Hún féll að öllu leyti vel að efni og formi sýn­ing­ar­innar og ekki varð betur fundið en gætti áhrifa frá meðal ann­ars ómstríðum tónum Kurt Weill og Hans Eisler – gaman að því. Tónlist, texti og túlkun mynd­aði í með­förum list­rænna stjórn­enda mark­vissa og með­vit­aða heild og það er í raun ekk­ert eftir en óska Dansandi ljóðum margra og góðra líf­daga og vona að sem flestir rati í Þjóð­leik­hús­kjall­ar­ann til að leyfa ljóðum Gerðar Kristnýjar og gjörn­ingi Eddu og leik­hús­lista­kvenna 50+ hrísl­ast um sig og veita sér sýn inn í margræðan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár