Líka saga um okkur …

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fór að sjá Kæru Jelenu eftir Ljúdmílu Razúmovskaja í Borg­ar­leik­hús­inu.

Borgarleikhúsið: Kæra Jelena

Höfundur: Ljúdmíla Razúmovskaja

Þýðing: Ingi­björg Har­alds­dóttir/Kristín Eiríks­dóttir

Leik­stjórn: Unnur Ösp Stef­áns­dóttir

Leikmynd og bún­ingar Filippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Björn Berg­steinn Guð­munds­son

Tónlist: Valgeir Sig­urðs­son

Hljóð: Þórður Gunnar Þor­valds­son

Leik­gervi: Elín Gísla­dóttir

Leikarar: Halldóra Geir­harðs­dóttir, Aron Már Ólafsson, Þuríður Blær Jóhanns­dóttir, Haraldur Ari Stef­áns­son, Sigurður Þór Ósk­ars­son.

Mennta­skóla­kenn­ar­inn Jelena und­ir­býr kósí­kvöld, gengur hóg­vær­lega, snyrti­lega og skipu­lega frá öllu, hitar sér te, setur plötu á fón­inn og sest niður með bók. Kyrrðin ríkir, Jelena á afmæli, en það vitum við ekki – ekki enn. Allt í einu er kyrrðin rofin, dyra­bjalla hringir og fjögur vin­gjarn­leg ung­menni birt­ast alls­endis óvænt, færa afmæl­is­barn­inu gjöf, syngja afmæl­is­söng­inn og fagna sinni kæru kennslu­konu. Þau eru að útskrif­ast og vilja gleðja bestu kennslu­kon­una sína áður en leiðir skilja og þau halda út í lífið.

Fljót­lega kemur þó í ljós að sitt­hvað fleira býr undir hjá krökk­unum. Þeim hefur gengið illa á stærð­fræði­prófi og það mun hafa áhrif á fram­tíð þeirra og frama. Lausn á þeim vanda er þó í sjón­máli: ef kæra Jelena lánar þeim lyk­il­inn að skápnum þar sem pró­fúr­lausnir eru geymdar svo þau kom­ist þar inn og geti skipt út röngum svörum fyrir rétt – sem þau eru þegar búin að afla sér – þá er málið dautt og eng­inn verður fyrir neinum skaða.

Jelena neitar. Hún er prinsípmann­eskja. Svona lagað gerir maður ekki. Og hún verður eðli­lega alger­lega bit á nem­endum sínum, að þeim skuli detta annað eins í hug, fyrir nú utan það að þau skuli trúa því upp á hana að taka þátt í svona svindli.

[adspot]

En hvað sem Jelena heldur að nem­endur hennar trúi upp á hana, þá er engum vafa und­ir­orpið að þeir eru til ýmis­legs vísir sem hún hefði aldrei trúað upp á þá. Þau Valdi, Lilja, Pétur og Viktor hefja líkt og for­laga­knú­inn leik sem gengur út á það eitt að brjóta and­spyrnu Jelenu niður og fá hana til að afhenda lyk­il­inn; Jelena sjálf er harð­á­kveðin í að stand­ast árásir ung­menn­ana enda eru hennar prinsíp göfug og góð og skulu ekki brotin. Hennar prinsíp eru jafn­rétti og heið­ar­leiki – sem gerir hana svo alger­lega gam­al­dags að hún reyn­ist auð­veldur skot­spónn fyrir þá kyn­slóð sem hræð­ist ekk­ert og verður einna skýr­ast í upp­gjöri milli Jelenu og Lilju þar sem Jelena spyr hreint út: “Af hverju eruð þið ekki hrædd við neitt?” og svar Lilju er jafn harm­rænt og það er grát­bros­legt: „Ég veit það ekki!“ Í því atriði flettir svo Lilja ofan af Jelenu og það er í sam­ræmi við það sem á eftir fer, þegar kemur að hápunkti sýn­ing­ar­innar – en hér verður ekki upp­ljóstrað hvernig fer að leikslokum enda óhætt að segja að Kæra Jelena er að sumu leyti verk um sið­ferði, en að öðru leyti vissu­lega spennu­saga sem heldur áhorf­anda í hel­greipum allt til loka.

Jelena er í öruggum og þraut­þjálf­uðum höndum Halldóru Geir­harðs­dóttur sem túlkar mennta­skóla­kennslu­kon­una trú­verð­ug­lega. Í með­förum hennar verður Jelena eng­inn eng­ill, þvert á móti – þegar Valdi, aðal­hvat­inn að árásinni á Jelenu, býður henni sjúkra­heim­il­is­vist fyrir aldr­aða og veika móður hennar verður ekki betur séð en Jelena sé hrein­lega til í að ræða málin á þeim grund­velli. Prinsípmann­eskjan gefur í skyn að samn­ingur sé í boði. Þróun atburða verður þó til þess að þetta til­boð er ekki frekar rætt, en óneit­an­lega hefur nokkur skuggi fallið á Jelenu – sem gerir hana bæði mann­legri og skilj­an­legri. Halldóra Geir­harðs­dóttir vinnur full­kom­inn leik­sigur í hlut­verki hinnar sið­mennt­uðu kennslu­konu Jelenu.

Nem­end­urnir eru ekki síður vel leiknir af fjórum leik­urum af yngri kyn­slóð­inni, sem hafa sannað sig á síð­ustu árum: Aron Már Ólafsson leikur Valda, sem á frum­kvæðið að því að fal­ast eftir lykl­inum dýr­mæta, hann er sið­blindan upp­máluð og skilar því með virktum og er einmitt svona ofur­geð­felldur, óhugn­an­legur náungi sem maður vill hreint ekki hafa að óvini og jafn­vel enn síður að vini.

Hlutverk Lilju er í höndum Þuríðar Blævar Jóhanns­dóttur og hún skilar Lilju á áhrifa­mik­inn hátt. Það er eng­inn vandi að finna til sam­úðar með þess­ari stúlku sem hefur barist áfram þrátt fyrir að búa við verri kjör en félagar hennar, búandi með ein­stæðri móður sinni, borin áfram af draumum sem má efast um að verði nokkurn tím­ann að veru­leika – og kannski einmitt þess vegna lætur hún leiða sig svo langt í þeim hættu­lega og við­ur­styggi­lega leik sem Valdi leik­stýrir.

Haraldur Ari Stef­áns­son leikur Pétur, þann sem er í mestri þörf fyrir leið­rétt­ingu á ein­kunnum og það er fyrir hann sem öll atburða­rásin er sett af stað. Hann er auk þess kær­asti Lilju og um það má segja að hann bregst henni verst. Haraldur Ari fer vel með hlut­verkið og tekur vel utanum umkomu­leysi þessa ístöðu­litla drengs .

Viktor er lús­er­inn í þessum hóp og er und­ur­sam­lega fal­lega leik­inn af Sigurði Þór Ósk­ars­syni. Þessi drengur er ljúfur og blíð­lyndur inn við beinið, en átak­an­lega aumk­un­ar­verður. Hann er hel­tek­inn af alkó­hól­isma og svo veik­lund­aður og örgeðja að hann á sér enga fram­tíð nema hann taki sig taki. Samt er alveg auð­séð að hann mun senni­lega aldrei taka sig því taki, hans örlög eru líkt og end­an­lega ráðin. Og það er sárt, ákaf­lega sárt, vegna þess að undir lokin, þegar allt er um seinan, örlög ráðin, spilið búið, er það þó hann sem virð­ist eiga þann kær­leika inn­an­brjósts sem hefði ann­ars getað gefið ein­hverja von.

„ … sem hefði ann­ars getað gefið …“ – svona verður ekki sagt nema um harm­leik sé að ræða og víst er Kæra Jelena harm­leikur fremur en spennu­verk. Sú þraut, sem per­sónur verks­ins takast á um er í raun óleys­an­leg og texti Ljúdmílu Razúmovskaju nær vel utan um það, tog­streitan er ósvikin, hann nær tökum á áhorf­endum og heldur þeim í hel­greipum allt til loka.

Það fer vel á að gefa þessum harm­leik rými á Litla sviði Borg­ar­leik­húss­ins, og skapa þá miklu nánd við áhorf­endur og gert er. Rýmið er líka vel notað, bæði til að sýna hinn lok­aða heim Jelenu, en ekki síður í stað­setn­ingum og hreyf­ingum og ber góðri leik­stjórn vitni. Þá er ekki síður um að ræða góða per­sónu­leik­stjórn, Unnur Ösp treystir sínum leik­urum, þeir fá að vinna hlut­verk sín á eigin for­sendum og það er óhætt að segja, að allur leik­hóp­ur­inn vinni leik­sigur, hvor fyrir sig og sam­eig­in­lega!

Tón­listin og hljóð­myndin fylgir leik­stjórn­ar­lögn­inni fast eftir, þótt megi kannski deila um lok sýn­ing­ar­innar – það er útskýrt í við­tali í leik­skrá hvers vegna það loka­lag sem leikið er var valið, en hefði ekki verið ein­fald­lega sterkara að ljúka sýn­ing­unni í þögn?

Texti Ljúdmílu Razúmovskaju er það klass­ískur að hann þolir vel til­færslu í tíma og rúmi. Þýðing Ingi­bjargar Har­alds­dóttur, sem hefur verið yfir­farin og löguð að nútíma af Kristínu Eiríks­dóttur ýtir undir þann skiln­ing, að þeir mann­legu breysk­leikar sem fjallað er um í Kæru Jelenu blóm­stri ekki ein­göngu í því sam­fé­lagi þar sem verkið var upp­haf­lega skrifað og síðar bannað, þeir blóm­stri líka hjá þjóð eins og okkur Íslend­ingum.

Svo nefnd sé ekki nema spill­ingin af þeim mann­legu veik­leikum sem hér er einn af drif­kröftum sög­unn­ar, þá má auð­veld­lega taka per­sónur leiks­ins í Kæru Jel­enu og raða þeim á hið íslenska flokka­kerfi, og ef byrjað er á slíkum leik á annað borð – sem sjálf­sagt er að gera, því saga Jel­enu og nem­enda hennar er að sumu leyti tíma­laus – má upp­götva sér til nokk­urs óhugn­aðar að Kæra Jel­ena er líka saga um okkur Íslend­inga og er að ger­ast allt í kringum okk­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár