Transavia hefur sölu á flugsætum til Akureyrar

Hol­lenska flug­fé­lagið Transa­via hef­ur hafið beina sölu á flug­sæt­um til Ak­ur­eyr­ar frá hol­lensku borg­inni Rotter­dam. Um er að ræða ferðir sem farn­ar verða í sum­ar og næsta vet­ur.

Hollenska flugfélagið Transavia hefur hafið beina sölu á flugsætum til Akureyrar frá Rotterdam, í ferðir sem farnar verða í sumar og næsta vetur. Þetta er í fyrsta sinn sem hollenskt flugfélag selur sjálft sæti í ferðir til Akureyrar og því í raun fyrsta sinn sem í boði er áætlunarflug til og frá Akureyri til Hollands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Gríðarlegt tækifæri fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi

Flugið er til­komið vegna ferða á vegum hol­lensku ferða­skrif­stof­unnar Voigt Travel sem hóf á síð­asta ári sölu á skipu­lögðum ferða­lög um Ísland frá Akureyri. Transa­via selur nú hins vegar aðeins sætin, óháð Voigt Travel.

Transa­via Nether­lands er hol­lenskt lággjalda­flug­fé­lag og hluti af Air France KLM Group. Transa­via er annað stærsta flug­fé­lagið í Hollandi. Það flýgur til meira en 110 áfanga­staða, aðal­lega í Evr­ópu og Norð­ur­-Afr­ík­u og flytur meira en 15 milljón far­þega á ári.[adspot]

Í til­kynn­ing­unni segir að Mark­aðs­sofa Norð­ur­lands fagni þessum áfanga enda sé ljóst að þetta skapi gríð­ar­leg tæki­færi fyrir ferða­þjón­ustu á Norð­ur­landi, en einnig fyrir aðrar atvinnu­greinar. Nú býðst Norð­lend­ingum enn fleiri tæki­færi til að kaupa stök flug­sæti til Rott­er­dam en þaðn er hægt að fljúga áfram til fjölda ann­arra áfanga­staða.

[links]Í byrjun apríl var til­kynnt að Transa­via myndi byrja að fljúga frá Schiphol í Hollandi til Kefla­víkur þrisvar sinnum í viku frá 5. júlí næst­kom­andi og þannig fylla upp í hluta af því skarði sem varð til við brott­fall WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár