Transavia fyllir upp í hluta af skarðinu sem fall WOW air skilur eftir

Vinna við að fá erlend flug­fé­lög til að koma inn í skarðið sem fall WOW air skilur eftir er að skila árangri.

Flug­fé­lagið Transa­via mun fljúga frá Schiphol í Hollandi til Kefla­víkur þrisvar sinnum í viku frá 5. júlí næst­kom­andi og þannig fylla upp í hluta af því skarði sem varð til við brott­fall WOW air fyrir helgi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Isavia.

Flogið verður á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum og mun fjöldi ferða aukast til fram­tíðar. „Með þessu er Transa­via að bregð­ast við auk­inni eft­ir­spurn eftir flugi til og frá Íslandi í kjöl­far gjald­þrots WOW air. Að sama skapi gefur þetta Transa­via tæki­færi til þess að útvíkka leiða­kerfi sitt til norð­urs,“ segir í til­kynn­ingu frá Isavia.

Ákvörðun um flug Transa­via til Kefla­vík­ur­flug­vallar er tekin með sam­starfs­að­il­anum Voigt Trave. „Við sjáum þetta sem gott tæki­færi fyrir báða aðila og er útvíkkun á okkar sam­starfi. Að auki mun Transa­via fljúga til Akur­eyrar í sam­starfi við Voigt Travel frá og með 27. maí og er við því að gera Ísland enn aðgengi­legri,“ segir Cees van den Bosch, fram­kvæmda­stjóri Voigt Travel, í til­kynn­ingu.

Transa­via Nether­lands er hol­lenskt lággjalda­flug­fé­lag og hluti af Air France KLM Group. Transa­via er annað stærsta flug­fé­lagið í Hollandi. Það flýgur til meira en 110 áfanga­staða, aðal­lega í Evrópu og Norður-Afríku. Transa­via flytur meira en 15 milljón far­þega á ári.

Þegar ljóst var að WOW air myndi hætta starf­semi hafði Isavia sam­band við Transa­via Nether­lands sem höfðu áður sýnt Íslandi áhuga sem áfanga­stað. „Transa­via brást skjótt við og lýsti fljótt yfir áhuga á því að hefja flug milli Kefla­víkur og Amster­dam. Þetta eru virki­lega ánægju­leg nið­ur­staða en Isavia mun áfram leita til flug­fé­laga um að hefja flug til lands­ins,“ segir Hlynur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­sviðs Isavia.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár