Svara ekki hverjir standa að baki söfnuninni fyrir WOW

Aðstand­endur síð­unnar hlut­hafi.com, sem efnt hafa til söfn­unar til að end­ur­reisa flug­fé­lagið WOW air eða stofna nýtt­flug­fé­lag, svara ekki fyr­ir­spurnum um hverjir standa að baki síð­unni. Vænta má yfir­lýs­ingu frá vef­síð­unni á morgun eða þriðju­dag.

Af vefnum hluthafi.com
Af vefnum hlut­hafi.com Mynd: SKJÁSKOT/HLUTHAFI.COM

Ekki fást svör við hver eða hverjir standa að baki vef­síð­unnar hlut­hafi.com þar sem óskað er eftir því að lands­menn taki sig saman til að end­ur­reisa flug­fé­lagið WOW air eða stofna nýtt lággjalda­flug­fé­lag. Ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum er boðið að skrá hluta­fjár­lof á vef­síð­unni en hvergi á síð­unni kemur fram hverjir standa að baki síð­unni eða hvað þá söfn­un­inni. Einu upp­lýs­ing­arnar eru þær að þeir ein­stak­lingar sem standa að gerð síð­unnar og vænt­an­legs almenn­ings­hluta­fé­lags hafa ekki starfað hjá WOW air og eru ekki tengdir félag­inu á nokkurn hátt.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að heima­síðan hlut­hafi.com sé aðeins vett­vangur til þess að safna saman áskrif­endum svo að þeir hafi síðar heim­ild til að sækja stofn­fund, það er ef skil­yrðin eru upp­fyllt sem eru að ann­ars vegar að end­ur­reisa félag eða hins vegar stofna nýtt lággjalda­flug­fé­lag. Ef það tekst ekki þá verði engin áskrift og þar með verði ekk­ert af þeim lof­orðum, sem þegar hafa verið gefin og falla þau þá niður ógild. Ekki feng­ust svör við hver eða hverjir standa að baki vefnum og söfn­un­inni

Jafn­framt kemur fram í svar­inu að aðstand­endur síð­unnar stefna að því að senda frá sér yfir­lýs­ingu á morgun eða þriðju­dag.

Þurfa 10 til 20 þús­und hlut­hafa

[links]Greint var frá því í síð­ustu viku að Skúli Mogensen hygð­ist end­­ur­vekja rekst­ur WOW air. Skúli og aðrir lyk­il­­starfs­­menn WOW air eru því um þess­ar mund­ir að leita að fjár­­­mögn­un­ar upp á 40 millj­­ón­ir Banda­­ríkja­dala, eða sem nem­ur um 4,8 millj­­örðum króna, til að standa straum af kostn­aði við upp­­haf rekst­­ur­s­ins.

Á síð­unn­i, hlut­hafi.com, segir að með hverjum deg­inum muni Skúla og hans fólki reyn­ast erf­ið­ara að end­ur­reisa WOW. Þar af leið­andi sé nauð­syn­legt að almenn­ingur komi að ­stofn­un al­menn­ings­hluta­fé­lags sem gæti fjár­fest í nýju flug­fé­lag­i. Þá segir að ef náist að safna minnst 10 til 20 þús­und hlut­höfum þá sé hægt að stofna al­menn­ings­hluta­fé­lag ­sem myndi fjár­festa í WOW a­ir eða nýju lággjalda­flug­fé­lag­i.

Fjár­ráða ein­stak­ling­ar og fyr­ir­tæki geta skráð sig ­fyrir bind­andi hluta­fjár­lof­orði í 90 daga á síð­unn­i. Ný­liðum í fjár­fest­ingum er hins vegar ráð­lagt að lofa ekki meira hlutafé en sem nemur einum fimmta af mán­að­ar­laun­um. Ekki fást hins vegar svör hverjir standa að baki söfn­un­inni eða hvað stefnt sé að því að safna miklu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár