Skúli ætlar að stofna nýtt flugfélag á grunni WOW air

Skúli Mo­gen­sen stofn­andi flug­fé­lags­ins WOW air, sem tekið var til gjald­þrota­skipta í síð­ustu viku, hyggst end­ur­vekja rekst­ur nýs flug­fé­lags­ á grunni WOW air.

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen Mynd: Skjáskot/RÚV

Skúli Mogensen stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri flug­fé­lags­ins WOW air, sem tekið var til gjald­þrota­skipta í síð­ustu viku, reynir nú að afla fjár­magns til að end­ur­vekja flug­fé­lagið. Frétta­blaðið greindi fyrst frá mál­inu en Skúli hefur einnig stað­fest tíð­indin í sam­tali við Frétta­stofu RÚV.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins er vísað til fjár­festa­kynn­ingar, sem dag­sett er í gær og blaðið hefur undir hönd­unum, fyrir nýja flug­fé­lagið. Þar kemur fram að Skúli og aðrir lyk­il­stjórn­endur WOW air leiti nú að fjár­mögnun upp á 40 millj­ón­ir Banda­ríkja­dala, eða sem nem­ur um 4,8 millj­örðum króna, til að standa straum af kostn­aði við upp­haf rekst­urs­ins. Flug­fé­lagið muni hafa lággjalda­stefnu í hávegum líkt og á fyrstu árum Wow air. Þá segir að Skúli og aðrir sem munu koma að stofnun félags­ins muni eiga 51 pró­sent hlut í flug­fé­lag­inu en fjár­festar sem leggi því til 40 millj­ónir Banda­ríkja­dala 49 pró­sent. [adspot]

Jafn­framt kemur fram í kynn­ing­unni að stefnt sé að því að nýja flug­fé­lagið reki til að byrja með fimm Airbus- far­þega­þotar, fjór­ar af gerð­inni A321neo og eina af gerð­inni A320neo. Þá segir að nýja flug­fé­lagið stefni að því að öðl­ast flug­rekstr­ar­leyfi á þeim for­sendum að það sinni fyrstu vik­urnar leigu­verk­efnum fyrir stórt evr­ópskt flug­fé­lag. Auk þess sé mark­miðið að kaupa helstu eignir þrota­bús WOW air, þar á meðal WOW-vöru­merkið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár