Vilja stofna almenningshlutafélag sem gæti fjárfest í WOW air

Á heima­síð­unni hlut­hafi.com eru ein­stak­ling­ar og fyr­ir­tæki hvött til að leggja fram „lít­ils­háttar hluta­fé“ í krafti fjöld­ans til að tryggja end­ur­reisn WOW air eða stofna nýtt lággjalda­flug­fé­lag.

Ný vefsíða um stofnun almenningshlutafélags sem gæti fjárfest í endurreisn WOW air var opnuð í dag. Á síðunni eru ein­stak­ling­ar og fyr­ir­tæki hvött til að leggja fram „lítilsháttar hluta­fé“ í krafti fjöld­ans til að endurreisa WOW air eða stofna nýtt lággjalda flugfélag. Ekki er ljóst hver eða hverj­ir standa að baki síð­unnar og væntalegs almenningshlutafélags en tekið er fram að þeir ein­stak­ling­ar séu ekki tengdir WOW air á nokk­urn hátt.

Þurfa 10 til 20 þúsund hluthafa

[links]Greint var frá því í síðustu viku að Skúli hygðist end­ur­vekja rekst­ur WOW air. Skúli og aðrir lyk­il­starfs­menn WOW air eru því um þess­ar mund­ir að leita að fjár­mögn­un­ar upp á 40 millj­ón­ir Banda­ríkja­dala, eða sem nem­ur um 4,8 millj­örðum króna, til að standa straum af kostnaði við upp­haf rekst­urs­ins.

Á síðunni, hluthafi.com, segir að með hverjum deginum muni Skúla og hans fólki reynast erfiðara að endurreisa WOW. Þar af leiðandi sé nauðsynlegt að almenningur komi að stofnun almenningshlutafélags sem gæti fjárfest í nýju flugfélagi. Þá segir að ef náist að safna minnst 10 til 20 þúsund hluthöfum þá sé hægt að stofna almenningshlutafélag sem myndi fjárfesta í WOW air eða nýju lággjaldaflugfélagi.

„Við teljum að ef Skúli og hans besta fólk getur endurreist WOW Air þá eigum við sem einstaklingar í þessu landi að sameinast um að hjálpa til. Því hvetjum við einstaklinga og fyrirtæki til að leggja fram lítils háttar hlutafé í krafti fjöldans og tryggja rekstur WOW Air til framtíðar.“ [adspot]

Ekki er ljóst hver eða hverj­ir standa að baki síðunnar

Fjárráða einstaklingar og fyrirtæki geta skráð sig fyrir bindandi hlutafjárloforði í 90 daga á síðunni. Nýliðum í fjárfestingum er hins vegar ráðlagt að lofa ekki meira hlutafé en sem nemur einum fimmta af mánaðarlaunum. Engin nöfn aðstandenda koma hins vegar fram á vefsíðunni og heldur ekki hvað stefnt sé að því að safna miklu.

Einungis er tekið fram á síðunni að þeir einstaklingar sem standi að gerð síðunnar og væntanlegs almenningshlutafélags hafi ekki starfið hjá WOW air og séu ekki tengdir félaginu á nokkurn hátt. Aftur á móti viti þeir að ef samkeppni minnki þá tapi þeir til lengri tíma. „Þetta er ekkert nema tilraun til að stuðla að frekari samkeppni, endurreisa hagvöxt og tryggja kaupmátt, sem enginn þarf að skammast sín fyrir. Ef ekki tekst að endurreisa WOW Air og eða stofna nýtt lággjalda flugfélag þá verða engin hlutafjárloforð skuldbindandi og falla því niður ógild, “ segir á síðunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár