Ætlar að hóp­fjár­magna endurreisn WOW air

Skúli Mogensen hyggst nýta sér erlendan hóp­fjár­mögn­un­ar­vett­vang til að safna 670 millj­ónum króna til að end­ur­reisa WOW air. Lág­marks­fjár­hæðin sem hægt verður að leggja til verk­efn­is­ins verður á bil­inu 200 til 250 þús­und krónur.

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen Mynd: WOW air

Skúli Mogensen, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri flug­fé­lags­ins WOW air, hyggst efna til hóp­fjár­mögn­unar á erlendum hóp­fjár­mögn­un­ar­vett­vangi, svip­uðum Karolina fund, til þess að end­ur­reisa flug­fé­lagið WOW air. Mark­miðið er að safna 670 millj­ónum króna en lág­marks­fjár­hæðin sem hægt verður leggja til flug­fé­lags­ins verður um 200 til 250 þús­und íslenskra króna. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Leita af innspýtingu upp á 4,8 milljarða króna

[links]Greint var frá því í síð­ustu viku að Skúli væri að reyna afla fjár­magns til að end­ur­vekja flug­fé­lagið WOW air sem tekið var til gjald­þrota­skipta fyrir 11 dögum. Í fjár­festa­kynn­ingu fyrir nýja flug­fé­lagið kom fram að Skúli og aðrir lyk­il­starfs­menn WOW air ­væru að leita að 40 millj­­ón­ir Banda­ríkja­dala inn­spýt­ingu i félag­inu, sem nem­ur um 4,8 millj­­örðum króna, til að standa straum af kostn­aði við upp­­haf rekst­­ur­s­ins.

Í kynn­ing­unni kom fram að nýja flug­fé­lagið muni hafa lággjalda­stefnu í hávegum líkt og á fyrstu árum WOW air. Þá segir að Skúli og aðrir sem munu koma að stofnun félags­ins muni eiga 51 pró­sent hlut í flug­fé­lag­inu en fjár­festar sem leggi því til 40 millj­ónir Banda­ríkja­dala 49 pró­sent. Auk þess sé stefnt að því að kaupa helstu eignir úr þrota­búi WOW air, þar á meðal vöru­merkið.

Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins hafa skipta­stjórar þrota­bús WOW air tekið vel í hug­myndir um að Skúli og þeir lyk­il­starfs­menn sem taka þátt í fjár­mögn­un­inni taki yfir kröfur um tvö hund­ruð starfs­manna um van­goldin laun og fyr­ir­geri þar með rétti sínum á þriggja mán­aða upp­sagn­ar­fresti sem þeir eiga inni hjá flug­fé­lag­inu. Þá segir að þetta sé „sam­fé­lags­lega ábyrgt“ og til þess fallið að almennir kröfu­hafar eigi meiri mögu­leika á heimtum úr þrota­bú­inu. Í stað­inn fái Skúli að halda vöru­merk­inu WOW. Tímara­mm­inn er þó sagður naumur þar sem flug­vél­arnar sem nýja flug­fé­lagið vill taka á leigu muni ekki standa auðar mikið lengur en út vik­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár