Vextir þurfa að lækka um 0,75 prósentustig til að kjarasamningar haldi

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands þurfa að fara niður í 3,75 pró­sent fyrir sept­em­ber 2020, ann­ars eru for­sendur kjara­samn­inga brostnar. Um þetta var gert hlið­ar­sam­komu­lag sem aðilar kjara­samn­inga eru með­vit­aðir um.

Ef meg­in­vextir Seðla­banka Íslands, oft kall­aðir stýri­vextir, lækka ekki um 0,75 pró­sentu­stig fyrir sept­em­ber 2020 eru for­sendur kjara­samn­inga sem und­ir­rit­aðir voru í nótt brostnar.

Þegar kjara­samn­ing­arnir voru kynntir kom fram að ein af for­send­unum sem þeir hvíldu á væri sú að vextir myndu lækka „veru­lega“ fram í sept­em­ber 2020 og hald­ast lágir út samn­ings­tím­ann.

[links]Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var umtals­vert tek­ist á um þetta ákvæði við gerð kjara­samn­ing­anna og bár­ust meðal ann­ars mót­bárur frá Seðla­banka Íslands til samn­ings­að­ila í gær á meðan að verið var að ganga frá loka­út­gáfu samn­ing­anna. Það var hins vegar ófrjá­v­íkj­an­legt að mati hluta þess hóps sem fór fyrir stærstu stétt­ar­fé­lögum lands­ins að þetta ákvæði væri inni, sér­stak­lega ef semja ætti um hóf­legar launa­hækk­anir næsta árið vegna aðstæðna í efna­hags­líf­inu.

Á end­anum náð­ist sátt um að hafa orða­lagið með þeim hætti sem greint er frá hér að ofan og ekki til­greina neina sér­staka lækkun sem skil­yrði fyrir því að kjara­samn­ingar haldi. Kjarninn hefur hins vegar fengið það stað­fest að til sé hlið­ar­sam­komu­lag, svo­kallað „skúffu­sam­komu­lag“ sem er ekki hluti af opin­berum kjara­samn­ingi, sem feli í sér að vextir verði að lækka um 0,75 pró­sentu­stig fyrir sept­em­ber 2020, þegar fyrsta end­ur­skoðun sér­stakrar for­sendu­nefndar mun eiga sér stað, til að kjara­samn­ingar haldi.

[adspot]Í þeirri nefnd sitja þrír full­trúar atvinnu­rek­enda og þrír full­trúar verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands í dag eru 4,5 pró­sent og þeir þyrftu því að hafa lækkað í 3,75 pró­sent fyrir haustið 2020 til að kjara­samn­ingar haldi.

Afar umdeilt ákvæði

Það er ekki að ástæðu­lausu að þetta ákvæði var umdeilt. Seðla­banki Íslands er ekki aðili að gerð kjara­samn­inga og nýtur fulls sjálf­stæðis í störfum sínum sam­kvæmt lögum. Meg­in­mark­mið hans er stöðugt verð­lag og til að ná því mark­miði skil­greinir Seðla­banki Íslands hlut­verk sitt þannig að hann eigi að reyna að halda verð­bólgu að jafn­aði sem næst 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði. Ekkert er að finna um hlut­verk hans við að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga með vaxta­lækk­unum í lögum um starf­semi Seðla­bank­ans.

Skörp gagn­rýni hefur þegar komið fram á ákvæðið víða að. Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og með­limur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, sem ákveður hverjir meg­in­vextir bank­ans eru, sagði við Bloomberg fyrr í dag að þessi for­senda væri ekki í lagi. Það að setja Seðla­banka Íslands í stöðu þar sem hann getur ekki tek­ist á við hækk­andi verð­bólgu sé „sturluð hug­mynd.“

[adspot]Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og for­maður Banka­ráðs Seðla­banka Íslands, tók í svip­aðan streng. Hann sagði við Bloomberg að það væru mörg ákvæði samn­ing­anna sem væru skrýt­ing, til dæmis þau sem snéru að vöxtum og verð­trygg­ingu. Gylfi sagð­ist ekki sjá hvernig þessi ákvæði myndu gagn­ast laun­þegum.

Þor­steinn Víglunds­son, vara­for­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, sagði við RÚV í morgun að sú for­senda að skil­yrða kjara­samn­ing­anna við lækkun vaxta vegi að sjálf­stæði Seðla­banka Íslands. „Þarna finnst mér samn­ings­að­ilar vera að vega að sjálf­stæði bank­ans og mér þykir það ekki góður bragur af hálfu samn­ings­að­ila og stjórn­valda að það sé verið að gera kjara­samn­ing sem setur spjótin á seðla­bank­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarasamningar

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Vopnahlé í stétta­stríði

Það fór líkt og spáð var á þessum vett­vangi fyrir fimm mán­uðum síðan, að kjara­samn­ingar fyrir 110 þús­und manns, rúman helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, voru kláraðir með stór­auk­inni aðkomu stjórn­valda sem ætlað er að stuðla að ann­ars konar lífs­kjara­bótum en launa­hækk­unum. Það var talað við fólk, í stað þess að tala á það. [links]Við blasti að annað hefði verið ómögu­legt. Til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár