Benedikt Árnason leiðir nefnd um vísitölu neysluverðs

For­sæt­is­ráð­herra hefur skipað nefnd sem skoða á aðferða­fræði við útreikn­ing vísi­tölu neyslu­verðs út frá alþjóð­legum sam­an­burði. Skipun nefnd­ar­innar er liður í stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um að draga úr vægi verð­trygg­ingar.

Benedikt Árnason, skrifstofustjóri forsætisráðuneytsins.
Benedikt Árnason, skrif­stofu­stjóri for­sæt­is­ráðu­neyts­ins.

For­sæt­is­ráð­herra hefur skipað nefnd um aðferða­fræði við útreikn­ing vísi­tölu neyslu­verðs. Skipun nefnd­ar­innar er liður í sam­komu­lagi rík­is­stjórn­ar­innar og aðila vinnu­mark­að­ar­ins um að vinna mark­visst að því að draga úr vægi verð­trygg­ing­ar­innar. Benedikt Árnason, skrif­stofu­stjóri for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, mun leiða nefnd­ina en hún á að ljúka störfum fyrir lok júní 2020.

Aðferðafræði við húsnæðislið vísitölunnar tekið til athugunar

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar frá 30. nóv­em­ber 2017 segir að rík­is­stjórnin muni taka mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum en sam­hliða þeim verði ráð­ist í mót­væg­is­að­gerðir til að standa vörð um mögu­leika ungs fólks og tekju­lágra til að eign­ast hús­næði. Auk þess segir að sér­stök áhersla verði lögð á að gæta efna­hags­legs stöð­ug­leika. „Rík­is­stjórnin vill enn fremur skapa hvata og stuðn­ing til þess að heim­ili sem það kjósa geti breytt verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð,“ segir í sátt­mál­anum.[adspot]

Í apríl síð­ast­liðnum voru aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til stuðn­ings lífs­kjara­samn­ingum aðila vinnu­mark­að­ar­ins kynntar. Þar á meðal er aðgerð um að draga úr vægi verð­trygg­ingar og birt var yfir­lýs­ingrík­is­stjórn­ar­innar um þau mark­vissu skref sem tekin verða á gild­is­tíma kjara­samn­ing­anna til afnáms verð­trygg­ingar á lánum.

Liður í þeirri vinnu er skipun nefnd­ar­innar en verk­efni hennar er að skoða aðferða­fræði við útreikn­ing vísi­tölu neyslu­verðs út frá alþjóð­legum sam­an­burði og leita álits erlendra sér­fræð­inga. Meðal ann­ars verður aðferða­fræði við hús­næð­islið vísi­töl­unnar tekin til athug­unar auk svo­kall­aðs vísi­tölu­bjaga.

Nefndina skipa:

  • Benedikt Árnason, for­sæt­is­ráðu­neyti, for­maður
  • Dagný Ósk Ara­dóttir, til­nefnd af BSRB
  • Georg Brynjars­son, til­nefndur af BHM
  • Hannes G. Sig­urðs­son, til­nefndur af Samtökum atvinnu­lífs­ins
  • Heiðrún Erika Guð­munds­dóttir, til­nefnd af Hagstofu Íslands
  • Henný Hinz, til­nefnd af Alþýðu­sam­bandi Íslands
  • Karen Á. Vign­is­dóttir, til­nefnd af Seðla­banka Íslands
  • Oddur Jak­obs­son, til­nefndur af Kenn­ara­sam­bandi Íslands
  • Sigurður Páll Ólafsson, til­nefndur af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu
  • Sigurður Á. Snævarr, til­nefndur af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarasamningar

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Vopnahlé í stétta­stríði

Það fór líkt og spáð var á þessum vett­vangi fyrir fimm mán­uðum síðan, að kjara­samn­ingar fyrir 110 þús­und manns, rúman helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, voru kláraðir með stór­auk­inni aðkomu stjórn­valda sem ætlað er að stuðla að ann­ars konar lífs­kjara­bótum en launa­hækk­unum. Það var talað við fólk, í stað þess að tala á það. [links]Við blasti að annað hefði verið ómögu­legt. Til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár