Ísland megi ekki glata stöðu sinni meðal fremstu ríkja í tekjujöfnuði

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir ekki boð­legt að launa­hækk­anir for­stjóra fyr­ir­tækja nemi allt að tvennum lág­marks­launum og að allir hljóti að gera þá kröfu að atvinnu­rek­endur sýni hóf­semd í eigin kjörum og tali af ábyrgð.

Katrín fór um víðan völl í ræðu sinni og fjallaði meðal annars um kjarasamninga, vopnalöggjöf, jafnréttis- og lofslagsmál.
Katrín fór um víðan völl í ræðu sinni og fjall­aði meðal ann­ars um kjara­samn­inga, vopna­lög­gjöf, jafn­réttis- og lofslags­mál. Mynd: Bára Huld Beck

Flokks­ráðs­fundur Vinstri grænna fer nú fram á Ísafirði og tók Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Íslands, til máls í kjöl­far setn­ing­ar­ræðu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, vara­for­manns og félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra. Katrín fór um víðan völl í ræðu sinni og fjall­aði meðal ann­ars um kjara­samn­inga, vopna­lög­gjöf, jafn­réttis- og lofslags­mál.

Hvað kjara­samn­inga varðar sagði Katrín að mörg þau jafn­rétt­is­mál sem Vinstri græn ynnu að ættu þau sam­eig­in­leg með verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Samt sem áður þyrfti að muna að það séu full­trúar launa­fólks og atvinnuurek­enda sem sitji við samn­inga­borðið, en ekki stjórn­valda. Sagðist Katrín þó hafa fulla trú á því að þessir aðilar næðu góðum samn­ingum fyrir íslenskt sam­fé­lag að almenn­ing allan.

Aukinn jöfnuður skili aukinni hagsæld

Mik­il­vægt væri að tala ekki niður kröfur launa­fólks um bætt kaup og kjör um leið og launa­hæstu for­stjórar lands­ins, sem hafi marg­föld mán­að­ar­laun venju­legs fólks, fái launa­hækk­anir sem einar nemi hund­ruðum þús­unda á mán­uði, ásamt mögu­legum kaup­réttum og háum arð­greiðslum til eig­enda. Tók Katrín dæmi af for­stjórum sem hafi mán­að­ar­laun sem nemi fimmtán- til sext­án­földum lág­marks­launum á vinnu­mark­aði og launa­hækk­anir einar og sér einum og hálfum til tvennum lág­marks­launum.

[adspot]Í þeirri snúnu stöðu sem við séum öll í sé ein­fald­lega ekki boð­legt að ganga fram með þessum hætti heldur hljótum við öll að gera þá kröfu að atvinnu­rek­endur sýni hóf­semd í eigin kjörum og tali af ábyrgð. „Sú krafa hefur í áranna rás skilað okkur því að Ísland er meðal allra fremstu ríkja innan OECD-ríkja þegar kemur að tekju­jöfn­uði. Við ætlum ekki að glata þeirri stöðu því við vitum, og það er ekki kredda heldur byggt á rann­sóknum, að auk­inn jöfn­uður skilar auk­inni hag­sæld fyrir sam­fé­lagið allt.“

Þá sagði Katrín tíma til kom­inn að breyta skattlaagn­ingu þeirra sem fyrst og fremst hafi fjár­magnstekjur, og tryggja að þau greiði sann­gjarnan hlut í útsvar til sveit­ar­fé­lag­anna til að fjár­magna þau mik­il­vægu verk­efni sem þau sinna ekki síst í félags- og vel­ferð­ar­þjón­ustu. Um það hafi verið talað í tutt­ugu ár en nú væri kom­inn tími aðgerða.

Höfnum almennum vopnaburði

Þá brá Katrín tali sínu að harm­leiknum á Blöndu­ósi þar sem tvö lét­ust og einn særð­ist alvar­lega í skotárás. Katrín sagði Íslend­inga hafa átt því láni að fagna að búa í frið­sælu sam­fé­lagi og að það væri sam­eig­in­legt verk­efni að tryggja það áfram. Takast þurfi á við auk­inn vopna­burð með því að herða vopna­lög­gjöf­ina og ekki þurfi síður að efla umræðu og fræðslu hjá öllum kyn­slóðum – sam­fé­lagið hafni almennum vopna­burði. Eins skipti að sjálf­sögðu máli að fara yfir hlut­verks stjórn­sýsl­unnar. „Á meðan slæmir hlutir geta gerst í öllum sam­fé­lögum hljótum við að læra af þeim og gera allt sem við getum til að þeir end­ur­taki sig ekki.“

Aldrei jafn mikilvægt að standa vörð um íslensk gildi

Katrín sagði skelfi­lega atburði sem þessa skekja sam­fé­lagið, og barst þá talið að vax­andi spennu víða í heim­inum og nefndi Katrín þá inn­rás Rúss­lands í Úkraínu, nær reglu­bundið dráp Ísra­els­manna á óbreyttum borg­urum í Palest­ínu og her­æf­ingar undir ströndum Taívan. „Fyrir okkur sem tölum fyrir frið­sam­legum lausnum er útlitið dökkt.“

[links]Auknum átökum fylgdu einnig ógn­væn­leg þróun í fjölda mann­rétt­inda­brota. Afganskar konur hafi þannig verið sviptar rétt­indum sínum og konur í Banda­ríkj­unum hafi margar verið sviptar sjálf­ræði yfir lík­ömum sínum auk þess sem hat­urs­glæpir gagn­vart hinsegin fólki fær­ist í vöxt.

Fyrir Íslend­inga hafi aldrei verið jafn mik­il­vægt að standa vörð um okkar gildi. Þó að Ísland sé ofar­lega eða jafn­vel efst á listum yfir jafn­rétti sé bar­átt­unni hvergi nærri lokið. Til að mynda sé kyn­bundið og kyn­ferð­is­legt ofbeldi enn of algengt og sagði Katrín ekki geta verið eðli­legt að konur á öllum aldri lifi í ótta. Þannig hafi aukin áhersla verið sett á mála­flokk­inn með auknu fjár­magni til lög­regl­unnar og með auk­inni for­varna­vinnu allt niður í grunn­skóla lands­ins.

Rannsaka á aðra- og þriðju vaktina

Þá sé átakið gegn launa­muni kynj­anna enn í gangi þrátt fyrir að mik­ill árangur hafi þegar náðst með leið­réttum launa­muni upp á 4,1 pró­sent. „Við höldum áfram en aðgerða­hópur sem ég hef skipað vinnur að til­lögum að aðgerðum til að útrýma launa­mun sem skýrist af kyn­skiptum vinnu­mark­aði og kerf­is­bundnu van­mati á hefð­bundnum kvenna­störfum. Það er mín von að þær til­lögur færi okkur nær því að leið­rétta þessa skekkju,“ sagði Katrín, auk þess sem rík­is­stjórnin hafi nýlega sam­þykkt til­lögu hennar um að hefja und­ir­bún­ing að rann­sókn á ólaun­uðum heim­ilis- og ummönn­un­ar­störfum sem unnin séu á annarri og þriðju vakt­inni.

Á sama tíma og Ísland hafi tekið stökk upp á við á regn­boga­korti ILGA Europe vegna fram­fara í lög­gjöf og reglu­verki sé dap­ur­legt að skynja aukna for­dóma og niðr­andi umræðu. Það sýni svo ekki verði um villst að rétt­inda­bar­átt­unni ljúki aldrei. Starfs­hópur um hat­urs­orð­ræðu hafi hafið störf í sumar og meg­in­verk­efni hans sé að að skoða hvort stjórn­völd skuli setja heild­stæða áætlun um sam­hæfðar aðgerðir stjórn­valda gegn hat­urs­orð­ræðu sem er m.a. vegna kyn­þáttar, lit­ar­háttar, þjóð­ern­is­upp­runa, kyn­hneigðar og kyn­vit­undar.

Frelsisstríðið haldi áfram

Annað verk­efni sem eigi eftir að hafa mikil áhrif á rétt­indi fólks í dag­legu lífi sínu sé lög­fest­ing Sáttmála Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Hluti af því verk­efni er að koma á lagg­irnar sjálf­stæðri mann­rétt­inda­stofnun og nú á haust­mán­uðum er að hefj­ast sam­ráðs­ferli um það verk­efni af fullum þunga.

„Mann­rétt­indi eru kjarni í vinstri-grænni póli­tík. Grund­vall­ar­hug­myndin í okkar póli­tík er að tryggja rétt­læti og jöfnuð fyrir okkur öll. Og þar með má segja að mann­rétt­inda­bar­átta sé eitt mik­il­væg­asta verk­efni okkar sem stjórn­mála­hreyf­ingar og það er okkar hlut­verk að halda því frels­is­stríði áfram; taka af öllu afli á móti rang­læti og hatri sem hvergi á að líð­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarasamningar

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Vopnahlé í stétta­stríði

Það fór líkt og spáð var á þessum vett­vangi fyrir fimm mán­uðum síðan, að kjara­samn­ingar fyrir 110 þús­und manns, rúman helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, voru kláraðir með stór­auk­inni aðkomu stjórn­valda sem ætlað er að stuðla að ann­ars konar lífs­kjara­bótum en launa­hækk­unum. Það var talað við fólk, í stað þess að tala á það. [links]Við blasti að annað hefði verið ómögu­legt. Til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár