Er Taívan Úkraína Asíu?

Taívan hefur um ára­tuga­skeið litið á sig sem sjálf­stætt ríki þrátt fyrir tak­mark­aðan alþjóð­legan stuðn­ing gegn kín­verska stór­veld­inu, sem hyggst ná Taívan aftur á sitt vald með öllum ráðum.

Tsai Ing-wen, forseti Taívan, við vígsluathöfn nýs herskips í janúar síðastliðnum. Taívan hefur verið að auka varnir sínar vegna yfirvofandi átaka við Kína.
Tsai Ing-wen, for­seti Taívan, við vígslu­at­höfn nýs her­skips í jan­úar síð­ast­liðnum. Taívan hefur verið að auka varnir sínar vegna yfir­vof­andi átaka við Kína. Mynd: EPA

Á dög­unum bár­ust fregnir þess efnis að Kín­verjar myndu lík­lega reyna að læra af inn­rás Rúss­lands í Úkraínu, þar eð læra af mis­tökum Rússa í þeim efnum, í tengslum við hugs­an­lega árás lands­ins á það sem þeir álíta sjálfs­stjórn­ar­hér­aðið Taívan. Í Taívan starfar hins vegar lýð­ræð­is­lega kjörin rík­is­stjórn og líta flestir lands­menn á Taívan sem sjálf­stætt ríki.

Sögu sam­bands Kína og Taívan má rekja allt aftur til sautj­ándu aldar þegar Qing-keis­ara­dæmið tók yfir stjórn Taívan. Stjórn eyj­unnar var svo afhent Japönum árið 1895 eftir að Japanir töp­uðu fyrsta stríð­inu milli land­anna tveggja. Kína tók svo aftur við stjórn Taívan árið 1945 þegar Japanir höfðu tapað Seinni heims­styrj­öld­inni, en skömmu síðar hófst borg­ar­styrj­öld í Kína, þar sem komm­ún­istar háðu stríð við þjóð­ern­is­sinna­stjórn­ina. Borg­ara­styrj­öld­inni lauk með sigri Komm­ún­ista­flokks Maós og flúðu Chiang Kai-shek og aðrir þjóð­ern­is­sinnar sem lifað höfðu stríðið af til Taívan.

Þjóð­ern­is­flokkur Chiang Kai-shek nefnd­ist Kuom­in­tang – og var flokkur hans við stjórn í Taívan næstu ára­tugi, og hefur æ síðan einn stærsti stjórn­mála­flokkur rík­is­ins, sem lítur á sig sem sjálf­stætt.

Kína vísar hins vegar til þess­arar sögu til sönn­unar þess að Taívan hafi alltaf verið hluti af Kína, en Taívan bendir á að ríkið hafi aldrei verið raun­veru­legur hluti af Kína eins og það þekk­ist í dag, hvorki eftir bylt­ing­una árið 1911 né eftir að Maó kom á komm­ún­ista­stjórn í land­inu árið 1949.

Fáir sem viðurkenna sjálfstæði Taívan

Aðeins þrettán ríki, auk Vatík­ans­ins, við­ur­kenna sjálf­stæði Taívan, en Kína beytir flestar þjóðir miklum diplómat­ískum þrýst­ingi til þess að gera það ekki. Kínversk stjórn­völd hafa talað við frið­sam­legri inn­limun Taívan í sam­einað Kína, en jafn­framt sagst ekki myndu úti­loka að beita afli til að ná eyj­unni aftur undir sína stjórn.

Afar ólík­legt er að Taívan gæti með nokkru móti varið sig gegn gíf­ur­legum her­afla Kína, sem eyðir næst­mest allra í hern­að­ar­mál á eftir Banda­ríkj­unum. Taívan gæti í mesta falli reynt að hægja á inn­rásinni með því hindra land­göngu og með aðferðum á borð við guer­illa-hernað á meðan beðið væri eftir utan­að­kom­andi aðstoð. Það er hins vegar óljóst hvort og þá hvaðan hún myndi ber­ast, en þó að fjöl­mörg ríki haldi góðum tengslum við Taívan hika þau við að lýsa yfir hvers kyns opin­berum stuðn­ingi þvert á vilja Kína og eru, eins og áður segir, sárafá sem við­ur­kenna sjálf­stæði þess.

Meðal þeirra ríkja sem hefur vilj­andi haldið stefnu sinni gagn­vart Taívan tví­ræðri eru Banda­ríkin, sem eiga í mik­il­vægu við­skipta­sam­bandi við Kína en hafa þó ávallt haldið góðum tengslum við Taívan. Banda­ríkin selja til að mynda vopn til Taívan, en hafa þó alltaf skautað fram­hjá hvers kyns spurn­ingum um það hvort þau myndu koma rík­inu til varnar kæmi til inn­rásar frá Kína. Það breytt­ist þó í heim­sókn Joes Biden Banda­ríkja­for­seta til Japans í maí síð­ast­liðnum, þegar hann svar­aði spurn­ingu blaða­manns tæpitungu­laust: Já. Þá nefndi hann inn­rás Rúss­lands í Úkraínu og líkti hugs­an­legri árás Kína á Taívan við það sem nú er að eiga sér stað í Evrópu.

Skömmu eftir að Biden lét ummælin falla dró Hvíta húsið þó í land og vildi ekki meina að stefna Banda­ríkj­anna í þessum efnum hefði breyst. Nú hafa fregnir af heim­sókn Nancy Pelosi, for­seta full­trúa­deildar banda­ríska þings­ins, til Taívan svo valdið tals­verðu fjaðrafoki og er heim­sóknin talin ein­hvers konar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing. Kín­verjar eru síður en svo ánægðir með áætl­anir Pelosi og hafa hótað hörðum við­brögðum. Í Taívan hafa við­brögð við loft­árásum verið æfð í und­ir­bún­ingi vegna heim­sókn­ar­innar.

Þurfi fyrst að læra af seinagangi Rússa

Ljóst er að spennan á milli Kína og Taívan fer vax­andi, en Kína hefur veru­lega aukið fjölda flug­ferða inn í sjálf­skip­aða loft­helgi Taívan und­an­farið ár og varn­ar­mála­ráð­herra Taívan segir sam­band ríkj­anna ekki hafa verið eins slæmt í 40 ár. Yfir­maður CIA í Banda­ríkj­unum segir Kína þó ekki hugsa sér gott til glóð­ar­innar í ljósi inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu, heldur þurfi þvert á móti að íhuga stöðu sína í ljósi þess hve illa Rússum hefur gengið. Ekkert bendir til þess að Kína aðstoði eða hafi aðstoðað Rússland með beinum hætti við valda­ránstil­raun­ina þó þeir hafi ekki for­dæmt hana. Þeim skuli hins vegar vera ljóst að það duga engin vett­linga­tök við slíkar aðgerðir, auk þess sem alþjóða­sam­fé­lagið hefur staðið þétt við bakið á Úkraínu. Alls er þó óljóst hversu mikið það myndi grípa inn í kæmi til þess að Kína gerði atlögu að Taívan, í ljósi þess að svo fáar þjóðir við­ur­kenna sjálf­stæði Taívan.

Nái Kína yfir­ráðum yfir Taívan myndi það þó breyta heims­mynd­inni tals­vert, ekki síst í við­skipta­fræði­lega og í tengslum við tækni­fram­farir, en Taívan er langstærsti fram­leið­andi tölvukubba í heim­inum, og knýja því meiri­hluta allra raf­tækja heims­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár