Korn frá Úkraínu loks á leið til Afríku á barmi hungursneyðar

Flutn­inga­skip á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna er á leið til Afríku með fullan farm af korni frá Úkraínu. Um er að ræða fyrstu korn­flutn­inga frá Úkraínu til Afríku síðan Rússland réðst inn í Úkraínu.

Stór hluti heims­byggð­ar­innar reiðir sig á korn frá Úkraínu, en talið er að á síð­asta ári hafi kornið fætt 400 millj­ónir manns. Fólk í Afríku er meðal þeirra sem reiðir sig einna mest á korn frá Úkraínu og hefur inn­rás Rúss­lands í landið haft þau áhrif að ekki var hægt að flytja út korn frá Úkraínu mán­uðum saman.

Und­an­farnar vikur, sam­hliða því að ástandið á sumum svæðum Úkraínu hefur orðið stöðugra, hefur hins vegar dregið til tíð­inda í útflutn­ingi eftir að Sam­ein­uðu þjóð­irnar og Tyrkland náðu sam­komu­lagi við Rússland um að hefja mætti korn­flutn­inga frá þremur úkra­ínskum höfnum við Svarta­haf til Istanbúl, þaðan sem kornið er svo flutt áfram.

Síðan sam­komu­lagið náð­ist hefur korn verið flutt til Evrópu, Asíu og Mið-Aust­ur­landa, sem einnig reiða sig að miklu leyti á korn frá Úkraínu, en í dag verður korn loks flutt til Afríku, þar sem fjöldi ríkja er á barmi hung­ursneyðar vegna skorts á korni frá Úkraínu.

Samkvæmt umfjöllun New York Times er um að ræða flutn­inga­skipið Brave Commander, sem siglir undir líbönskum fána, sem mun halda til Eþíópíu með 23 þús­und tonn af korni, en flutn­ing­arnir fara fram á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Skipið lagði að bryggju í Pivdennyi höfn­inni í morgun og voru skip­verjar nokkuð hissa á því hve vand­ræða­laus aðgerðin var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár