Halldór Benjamín: Allir Íslendingar fá launahækkun í gegnum lífskjarasamninginn

Fram­kvæmda­stjóri SA telur að kjara­samn­ing­arnir sem und­ir­rit­aðir voru í gær­kvöldi séu það ábyrgir að þeir skapi skil­yrði fyrir vaxta­lækkun í sam­fé­lag­inu, sem sé gríð­ar­legt hags­muna­mál fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki í land­inu.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Hringbraut

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að aðal­at­riðið í lífs­kjara­samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var í gær­kvöldi sé að verka­lýðs­for­ystan, atvinnu­rek­endur og ríkið séu að snúa bökum saman um það að skyn­sam­leg­asta leiðin til að bæta lífs­kjör lands­manna allra sé sam­sett lausn. Þetta kom fram í við­tali við Halldór í Morg­unút­varp­inu á Rás2 í morgun.

Í lausn­inni felst að hækka lægstu laun, stuðla að auknum sveigj­an­leika til þess að hjálpa fólki að sam­þætta vinnu og fjöl­skyldu­á­byrgð, stuðla að jákvæðu umhverfi þannig að hér geti mynd­ast svig­rúm til vaxta­lækk­unar til fram­tíðar og að ríkið lækki skatta og mest á þá sem tekju­lágir eru. Halldór segir að þetta sé grun­ur­inn að lífs­kjara­samn­ingnum enda sé þetta aðgerð sem bein­ist fyrst og fremst að lág­tekju­fólki.

Samfélagssáttmáli um að hækka lægstu laun

[links]Halldór segir jafn­framt að núna sé ekki rétti tím­inn fyrir efri milli­tekju- og hátekju­fólk til þess að sækja sér launa­hækk­anir. Heldur sé með samn­ingnum verið að búa til sam­fé­lags­sátt­mála um það að hækka laun þeirra sem lægst laun hafa en aðrir fái í sinn skaut aðra hluti sem kynntir eru með samn­ingnum. Hann segir að allir Íslend­ingar fái launa­hækkun í gegnum lífs­kjara­samn­ing­inn en það sé hins vegar með þeim hætti að þetta séu krónu­tölu­samn­ingar. Það er að segja þetta eru krónu­tölu­hækk­anir á hverju ári 2019 til 2022 og krónu­töl­urnar eru byggðar upp með þeim hætti að hæsta hlut­falls­hækk­unin fer til þeirra sem eru með lægstu launin.

Enn fremur segir hann að með þessum samn­ingi sé brotið blað í gerð kjara­samn­inga hér á landi að tvennu leyti. Annars vegar að nú séu kjara­samn­ing­arnir bein­tengdir efna­hags­þróun á Íslandi, á árunum 2020 til 2022. Hann segir að það þýði að launa­hækk­an­irnar séu ekki föst stærð heldur taka þeir mið af hag­vexti í land­inu. Í annan stað er með samn­ingnum kynnt launa­þró­un­ar­trygg­ing sem á að tryggja að þeir launa­menn sem eru á töxtum á launa­töflum stétt­ar­fé­laga séu hluti af því launa­skriði sem geti átt sér stað á almennum vinnu­mark­aði. Hann segir að þannig muni taxta­launa­fólk ekki lengur sitja eftir í almennri launa­þróun eins og gerst hefur frá ári til árs, ára­tugi aftur í tím­ann.

Það þýði að ef efsta lagið í sam­fé­lag­inu sæki sér meiri launa­hækk­anir en inn­stæða sé fyrir, þvert á mark­mið samn­ings­ins, þá fram­kalli það umsvifa­laust launa­hækkun hjá taxta­hópnum. Þeir tekju­lægstu munu því fylgja almennri launa­þróun í sam­fé­lag­inu, ofan á þær launa­hækk­anir sem kjara­samn­ing­arn­ir­tryggi þeim.

Telja að þessi samningur skapi skilyrði fyrir vaxtalækkun

Halldór bendir á að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn sé sátt­máli um að nú sé verið að beina því svig­rúmi sem sé til staðar í hag­kerf­inu á lægri enda tekju­stig­ans. Þá sé á sama tíma verið að kynna til sög­unnar fjölda margar aðgerðir sem gagn­ist öllum heim­ilum lands­ins „Við biðjum fólk að koma með okkur í þessa veg­ferð að byggja hérna undir áfram­hald­andi bætt lífs­kjör á Íslandi í gegnum þennan samn­ing sem kynntur var í gær­kvöldi,“ segir Halldór.

Hann segir jafn­framt að með samn­ingnum séu allir aðilar að axla ábyrgð. Hið opin­bera, atvinnu­rek­endur og verka­lýðs­fé­lögin séu að snúa bökum saman með það fyrir augum að bæta kjör lág­tekju­fólks. Auk þess seg­ist hann vilja hrósa verka­lýðs­hreyf­ing­unni fyrir að taka til­lit til þess að staðan í hag­kerf­inu sé mjög tví­sýn núna.

Halldór segir að í sam­ein­ingu hafi þessir aðilar samið um ábyrgan samn­ing sem skapi skil­yrði fyrir Seðla­bank­ann til að lækka vexti. „Við teljum að þessi samn­ingur sé það ábyrgur að hann skapi skil­yrði fyrir vaxta­lækkun í sam­fé­lag­inu, sem er gríð­ar­legt hags­muna­mál ekki aðeins fyrir heim­ilin en líka fyr­ir­tækin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár