Allt sem þú þarft að vita um kjarasamningana

Kjara­samn­ingar fyrir um 110 þús­und manns, rúm­lega helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, voru und­ir­rit­aðir í gær. Hér er að finna öll aðal­at­riði þeirra samn­inga, for­sendur þeirra og hvað stjórn­völd þurfa að gera til að láta þá ganga upp.

Krónutöluhækkanir og gildir til 2022

Kjara­samn­ing­arnir ná til 110 þús­und manns á íslenskum vinnu­mark­aði en um er að ræða versl­unar-, skrif­stofu- og verka­fólk. Þeir gilda frá 1. apríl 2019 til 1. nóv­em­ber 2022. Launa­hækk­anir sem í honum fel­ast eru taldar í krónum. Almenn laun eiga að hækka um 17 þús­und krónur frá 1. apríl síð­ast­liðnum. Þau hækka síðan aftur um 18 þús­und krónur 1. apríl 2020, um 15.750 krónur 1. jan­úar 2021 og 17.250 krónur 1. jan­úar 2022. Þá var samið um ein­greiðslu til allra almennra launa­manna upp á 26 þús­und krónur sem er til útgreiðslu um næstu mán­aða­mót.

[links]Með því að hafa launa­hækk­anir í krónu­tölum en ekki hlut­falls­tölum er tryggt að þeir sem hafi hæstu launin hækki ekki um fleiri krónur en þeir sem eru með þau lægstu.

Lægstu laun hækka mest

Sér­stak­lega var samið um auknar hækk­anir fyrir þá sem vinna á taxta­launum. Alls munu laun þeirra sem eru með kaup­taxta hækka um 90 þús­und krónur á samn­ings­tím­anum. Lág­marks­tekjur fyrir fullt starf verða 368 þús­und krónur 1. jan­úar 2022. Auk þess hækkar des­em­ber­upp­bót úr 89 þús­und krónum í 98 þús­und krónur á samn­ings­tím­anum og orlofs­upp­bót úr 48 þús­und krónum í 53 þús­und krónur.

Launaauki sem getur hækkað laun enn meira

Á árunum 2020 til 2023 getur komið til fram­kvæmda launa­auki ef hag­vöxtur verður hér­lendis. Þetta er gert til að tryggja launa­fólki hlut­deild í verð­mæta­sköpun sam­fé­lags­ins.

[adspot]Ákvæðið á að nýt­ast tekju­lægri hópum best, en hækk­unin sem kemur til vegna hag­vaxtar legst að fullu á laun þeirra en 75 pró­sent á önnur laun. Að mati Alþýðu­sam­bands Íslands getur þessi hag­vaxt­ar­auki hækkað taxta­laun um 3-13 þús­und krónur á ári.

Óvenjulegar forsendur

Þrjár meg­in­for­sendur eru fyrir gerð kjara­samn­ing­anna. Í fyrsta lagi þarf kaup­máttur launa að aukast á samn­ings­tíma­bil­inu. Sá vöxtur verður metin út frá launa­vísi­tölu Hagstofu Íslands. Í öðru lagi er sú óvenju­lega for­senda sett til grund­vallar gerð kjara­samn­inga að vextir lækki „veru­lega“ og hald­ist lágir út samn­ings­tím­ann. Það þýðir að Seðla­banki Íslands þarf að lækka stýri­vexti til að for­sendur kjara­samn­inga haldi, en hann er sam­kvæmt lögum sjálf­stæð stofnun og hefur það meg­in­hlut­verk að við­halda verð­stöð­ug­leika.

Í þriðja lagi verða stjórn­völd að standa við að fram­kvæma þann pakka sem þau komu með að borð­inu til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga.

For­send­urnar verða metnar tvisvar á samn­ings­tím­anum, í sept­em­ber á næsta ári og í sept­em­ber 2021. Þrír full­trúar frá verka­lýðs­hreyf­ing­unni og þrír full­trúar atvinnu­rek­enda skipa svo­kall­aða for­sendu­nefnd. Ef vextir hafa ekki lækkað nægi­lega mikið að mati þeirrar nefndar þegar fyrsta end­ur­skoðun fer fram haustið 2020 þá er hægt að segja upp kjara­samn­ingum.

Stytting vinnuviku

Í kjara­samn­ing­unum er einnig samið um styttri vinnu­viku með því að taka upp það sem er kallað „virkan vinnu­tíma“ sem verður að jafn­aði 36 stundir á viku. Hana á að inn­leiða með því að gera vinnu­tíma fólks sveigj­an­legri með því að bjóða því að kjósa sjálft um hvaða fyr­ir­komu­lag henti best á hverjum vinnu­stað.

Aðkoma stjórnvalda

Stjórn­völd lofa því að ráð­ast í alls 42 aðgerðir til að liðka fyrir kjara­samn­ingum, eða því sem þau kalla „lífs­kjara­samn­ingum“. Ríkið metur heild­ar­um­fang aðgerð­anna á 80 millj­arða króna, en í gögnum sem átti að kynna á þriðju­dag var umfangið reyndar metið á 100 millj­arða króna.

Sumar aðgerð­irnar eru þegar fram komnar, eins og leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs í 12 mán­uði, aðrar hafa verið lagðar fram áður, eins og upp­bygg­ing í Keldna­landi, heim­ildir til að ráð­stafa 3,5 pró­sent líf­eyr­is­ið­gjalds skatt­frjálst til hús­næð­is­kaupa og áfram­hald­andi nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar til að greiða skatt­frjálst niður íbúða­lán, en það úrræði verður fram­lengt fram á mitt ár 2021.

Það er einnig margt nýtt í pakka stjórn­valda. Það á að gera breyt­ingar á tekju­skatts­kerf­inu með því að bæta við þriðja skatt­þrep­inu sem tryggja m.a. lægstu launa­hóp­unum tíu þús­und króna skatta­lækkun á mán­uði. Þá verða barna­bætur hækk­aðar og skerð­ing­ar­mörk þeirra fara úr 242 þús­und krónum í 325 þús­und krónur á mán­uði. Ráðast á í fjöl­margar aðgerðir í hús­næð­is­málum, halda aftur af öllum gjald­skrár­hækk­unum og ráð­ast í mark­vissar aðgerðir til að draga úr félags­legum und­ir­boðum.

Vægi verðtryggingar minnkað

Á meðal þess sem stjórn­völd hafa skuld­bundið sig til að gera er að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán frá byrjun næsta árs. Þá á að grund­valla verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020.

Í pakk­anum er einnig vil­yrði um að klára skoðun á því hvort að banna eigi alfarið verð­tryggð hús­næð­is­lán fyrir lok árs 2020.

Ljóst er að finna þarf annan val­kost fyrir tekju­lægstu og við­kvæm­ustu hópa sam­fé­lags­ins á lána­mark­aði ef 40 ára jafn­greiðslu­lánin verða bönnuð. Í pakka stjórn­valda stendur að unnið verði með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að því að finna skyn­sam­legar leiðir og útfærslur á þeim til að auð­velda ungu fólki og tekju­lágum fyrstu fast­eigna­kaup. Ein mögu­legra leiða er að veitt verði sér­stök lán, til dæmis frá Íbúða­lána­sjóði, með þeim skil­málum að höf­uð­stóll­inn geti svarað til til­tek­ins hlut­falls af mark­aðsvirði eign­ar­innar. „Slík „hlut­deild­ar­lán“ bæru lægri vexti og afborg­anir fyrstu árin og gerðu tekju­lágum kleift að kom­ast yfir útborg­un­ar­þrösk­uld­inn þar sem krafa um eigið fé væri lægri. Hlut­deild­ar­eig­andi fengi end­ur­greitt þegar eig­andi seldi við­kom­andi íbúð eða greiddi lánið upp á matsvirði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár