Telja erindi ekki gefa nægilegt tilefni til frekari athugunar

For­sætis­nefnd hefur afgreitt erindi sem henni barst um meint brot Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar á siða­reglum fyrir alþing­is­menn í til­efni af ummælum hans í frétta­við­tali í kvöld­fréttum RÚV 3. des­em­ber 2018 og síð­ari sam­skipti af því til­efni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Mynd: Bára Huld Beck

For­sætis­nefnd, skipuð 7. og 8. vara­for­seta, þeim Stein­unni Þóru Árna­dóttur og Haraldi Bene­dikts­syni, afgreiddi á fundi sínum þann 25. mars síð­ast­lið­inn erindi sem henni barst um meint brot Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, alþing­is­manns og for­manns Mið­flokks­ins, á siða­reglum fyrir alþing­is­menn í til­efni af ummælum hans í frétta­við­tali í kvöld­fréttum Rík­is­út­varps­ins 3. des­em­ber 2018 og síð­ari sam­skipti af því til­efni. Í erind­inu var vísað til þess að hátt­erni þing­manns­ins hafi verið and­stætt 5., 7. og 8. gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn.

Nið­ur­staða for­sætis­nefndar er sú að erindið gefi ekki nægi­legt til­efni til frek­ari athug­unar, sbr. 1. máls­lið 1. mgr. 18. gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn.

Í erindi máls­hefj­anda, sem ekki er nafn­greindur, vísar hann til þess að í við­tal­inu hafi þing­mað­ur­inn haldið því fram að sam­töl af því tagi sem hljóð­rituð voru, „... þar sem alþing­is­menn níða og nið­ur­lægja aðra þing­menn á óvið­eig­andi og klám­feng­inn hátt, væru og hefðu um langa hríð verið alsiða meðal þing­manna allra flokka og að orð­bragðið væri stundum jafn­vel „tölu­vert gróf­ara““ Hafi þing­mað­ur­inn með þessum orðum sínum brotið gegn hátt­ern­is­skyldum sínum og þeim meg­in­reglum sem gilda um hátt­erni alþing­is­manna sam­kvæmt siða­reglum fyrir alþing­is­menn.

For­sætis­nefnd athug­aði frétt RÚV frá téðum degi, 3. des­em­ber 2018 þar sem fyr­ir­sögnin var „Orðræða sex­menn­ing­anna óverj­andi“. Fréttin hefst á því að farið var yfir við­brögð for­seta Alþingis á þing­fundi fyrr um dag­inn, þar sem hann hafi „[beðið] þjóð­ina alla afsök­unar á óráðs­hjali þing­manna á barnum Klaustri ...“. Þá var greint frá „raf­magn­aðri stemn­ingu“ í þing­sal við upp­haf þing­fundar, að tveir þing­menn Mið­flokks­ins hafi farið í leyfi og þing­menn­irnir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son væru orðnir óbreyttir þing­menn. Þar á eftir kom við­talið við Sigmund Davíð, þar sem hann var kraf­inn við­bragða við atburðum dags­ins og spurður um afstöðu sína til þeirra ummæla sem fjöl­miðlar höfðu greint frá á hljóð­upp­tökum. Í svörum sínum vís­aði hann meðal ann­ars til reynslu sinnar af hátt­erni og ummælum ann­arra þing­manna og að gæta beri sam­ræmis, en jafn­framt að slíkt rétt­læti ekki þau ummæli sem við­höfð hafi verið. Ummæli þing­manns­ins fólu í sér, sam­kvæmt for­sætis­nefnd, full­yrð­ingar um atvik, án frek­ari til­grein­ingar, sem hann telur að hann hafi sjálfur upp­lifað.

Að mati for­sætis­nefndar fólust í ummælum Sig­mundar Davíðs stað­hæf­ingar um atvik, sem hann full­yrti að hefðu verið sam­bæri­leg þeim sem fjöl­miðlar hefðu með ítar­legum hætti fjallað um í hljóð­upp­tök­unum. „Líta verður til þess að ummælin fólu í sér andsvör hans við þeirri umfjöllun. Þegar það er virt og við hvaða aðstæður þau voru látin falla er ekki unnt að full­yrða að hátt­erni þing­manns­ins hafi verið and­stætt hátt­ern­is­skyldum hans,“ segir í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar.

Hægt er að lesa nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár