„Hefðum getað klárað þetta“

For­stjóri WOW air seg­ist hafa verið njörv­aður niður í það sæti að sætta sig við stað­reyndir máls­ins í morgun. Hann seg­ist trúi því ennþá að ef félagið hefði fengið aðeins meiri tíma þá hefði verið hægt að klára end­ur­fjár­mögnun.

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen Mynd: Skjáskot/RÚV

Skúli Mogensen, for­stjóri WOW air, seg­ist trúa því að ef þau hefðu fengið aðeins meiri tíma þá hefði verið hægt að klára samn­inga­við­ræður við kröfu­hafa. Frá þessu greinir hann í sam­tali við frétta­stofu RÚV í dag. 

[links]Hann segir að félagið hafi verið í sam­tali við nokkuð marga aðila í nótt og undir morgun sem því miður hafi ekki heppn­ast. Hann telur að þeim aðilum sem hann var í við­ræðum við hafi verið alvara í samn­inga­við­ræð­unum en hann seg­ist ekki getað tjáð sig um það hverjir nákvæm­lega hafi komið að þessum við­ræð­um.

Skúli segir jafn­framt að ekki sé rétt að WOW air hafi skuldað leigu­sala 300 millj­ónir sem hafi verið á gjald­daga á mið­nætti í gær sem flug­fé­lagið hafi ekki getað greitt.

Eitt leiðir af öðru

Skúli segir enn fremur að eðli­lega hafi menn ætl­ast til þess að WOW air myndi klára fjár­mögnun og þegar það heppn­að­ist ekki þá voru flug­vél­arnar kyrr­settar.

„Þetta er svo­lítið þannig að eitt leiðir af öðru. Þegar einn byrjar þá fellur þetta mjög hratt og það var ekk­ert eitt umfram annað. Menn voru ein­fald­lega orðnir óþreyju­fullir að sjá okkur klára fjár­mögn­un­ina,“ segir hann í sam­tali við RÚV.

Hann seg­ist hafa verið njörv­aður niður í það sæti að sætta sig við stað­reyndir máls­ins. „Auðvitað er þetta búið að vera mikil bar­átta. Ég er líka óheyri­lega þakk­látur fyrir þann mikla stuðn­ing og hvatn­ingu frá starfs­fólki mínu, frá fólki út um allan bæ og fjölda landa um það að halda áfram og gef­ast ekki upp,“ segir hann og bætir því við að honum finn­ist leið­in­legt og sorg­legt að bregð­ast því fólki.

Hefði átt að hefja endurskipulagningu fyrr

Skúli segir að hann hafi alltaf ætlað að klára við­ræð­urnar og að það hafi því ekki verið ábyrgða­laust að segja fólki að treysta WOW air. Hann seg­ist stoltur af þeirri vinnu sem hafi verið unnin hjá fyr­ir­tæk­inu.

Hann bendir á að flug­um­hverfið sé búið að vera sér­stak­lega erfitt í vetur og að fjöldi flug­fé­laga hafi því miður farið í þrot. Ytri skil­yrði hafi því líka verið erfið.

„Það sem ég hefði átt að gera var að hefja þessa end­ur­skipu­lagn­ingu fyrr. Því að árang­ur­inn sem við erum að sjá núna eftir að hafa skilað breið­þot­unum og tekið til í rekstr­inum og farið aftur í lággjalda­bún­ing­inn er strax orð­inn miklu betri en hann var í haust,“ segir hann. Þannig hafi hann átt að byrja á þessu fyrir ári síðan.

Hægt er að hlusta á við­talið í heild sinni á vef RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár