WOW air leitast eftir skuldaafskriftum og milljarðainnspýtingu

Skúli Mogensen reynir til þrautar að halda WOW á floti með við­ræðum við kröfu­hafa. Arctica Finance vinnur nú að því að safna 5 millj­arða króna við­bót­ar­fjár­fest­ingu. WOW air tap­aði 22 millj­örðum króna á síð­asta rekstr­ar­ári.

Mikil óvissa ríkir nú um fram­tíð flug­fé­lags­ins WOW air en Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, reynir til þrautar að bjarga flug­fé­lag­inu eftir að það slitn­aði upp úr við­ræðum við Icelandair Group í gær. Samkvæmt til­kynn­ingu WOW air frá því í gær vinnur félagið nú að því að ná sam­komu­lagi við meiri­hluta lán­ar­drottna sinna um að skuldum félags­ins verði að stórum hluta umbreytt í hlutafé og að sömu aðilar tryggi félag­inu fjár­magn til rekstr­ar­ins uns það nái „sjálf­bærum rekstri til fram­tíðar“.

Samkvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins vinnur Arctica Finance nú að því að safna 5 millj­örðum króna í við­bót­ar­fjár­fest­ingu til bjarga flug­fé­lag­inu frá þroti en WOW air skuldar nú um 24 millj­arða króna. Í Morg­un­blað­inu í dag er greint frá því að tap WOW air hafi numið 22 millj­örðum króna í fyrra.

Víða fundað um WOW í gær

[links]Á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku var greint frá því að slitnað hefði upp úr við­ræðum WOW air og banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins Indigo Partners um aðkomu Indigo að félag­inu. Í gær barst Kaup­höll­inni síðan til­kynn­ing um að Icelandair Group hefði slitið við­ræðum sínum við WOW air um kaup á flug­fé­lag­inu að hluta til eða í heild. Umræddar við­ræður voru stuttar en þær hófust á föstu­dag eftir að upp úr flosn­aði milli WOW og Indigo Partners.

Á sjö­unda tím­anum í gær barst síðan til­kynn­ing frá WOW air þar sem fram kom að meiri­hluti skulda­bréfa­eig­enda félags­ins og aðrir kröfu­hafar ættu í við­ræðum um sam­komu­lag um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt því yrði núver­andi skuldum WOW air umbreytt í hlutafé og rekstur félags­ins fjár­magn­aður þannig að það næði sjálf­bærum rekstri til fram­tíðar. Í til­kynn­ing­unni kom fram að frek­ari upp­lýs­ingum yrðu veittar í dag.

Samkvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins í dag er nú ráð­gert að umbreyta skuldum flug­fé­lag­ins í hlutafé sem væru 49 pró­sent hluta­fjár og bjóða 51 pró­sent í félag­inu til kaups. Þá myndu nýir aðilar í eig­enda­hópnum njóta for­gangs, meðal ann­ars varð­andi sölu bréfa í end­ur­skipu­lögðu félagi.

Isavia skuldum breytt í langtímakröfu

Frétta­blaðið greindi frá því í dag að Arctica Finance vinnur nú að því að safna 42 millj­ónum doll­ara, and­virði rúm­lega 5 millj­arða króna, til að bjarga WOW air. Flug­fé­lagið skuldar nú um 200 millj­ónir doll­ara eða um 24 millj­arða íslenskra króna. Þar á meðal skuldar félagið Isavia tvo millj­arða en heim­ildir Morg­un­blaðs­ins herma að Isavia hafi nú komið til móts við erf­iða stöðu WOW air og breytt kröfum vegna lend­ing­ar­gjalda, sem komnar voru yfir gjald­daga, í lán til tveggja ára. Nemur upp­hæð láns­ins um 1,8 millj­örðum króna og ber það 6 pró­sent vexti en lend­ing­ar­gjöld sem komin eru fram yfir gjald­daga bera alla jafna drátt­ar­vexti, eða 10,25 pró­sent.

Ásamt skuld­inni við Isavia er Arion banki stór lán­ar­drott­inn félags­ins en sam­kvæmt Morg­un­blað­inu stendur lánið í tæpum 1,6 millj­örðum króna. Aðrir stórir lán­veit­endur WOW air eru flug­véla- og hreyfla­leigu­fyr­ir­tæki. Stærsta skuldin er við Avolon eða jafn­virði 1,9 millj­arða króna. Þá er einnig 1,6 millj­arða skuld við flug­véla­leigu­fé­lagið ALC sem á flestar þeirra þota sem WOW air not­ast við enn í dag.

WOW tapaði 22 milljörðum í fyrra

Samkvæmt heim­ildum Morg­un­blaðs­ins tap­aði WOW air 22 millj­örðum í fyrra. Þar af var EBITDA félags­ins, afkoma fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta, nei­kvæð sem nam 10 millj­örðum króna. Þar hafi munað gríð­ar­lega um tap vegna sölu fjög­urra nýlegra Airbus-þota til Air Canada undir lok síð­asta árs. Þá segir jafn­framt að eigið fé félags­ins sé um þessar mundir nei­kvætt sem jafn­gildir rúmum 13,3 millj­örðum króna. Það þýðir að eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins er nei­kvætt um 83 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár